blaðið


blaðið - 22.05.2007, Qupperneq 18

blaðið - 22.05.2007, Qupperneq 18
34 ÞRIÐJUDAGUR 22. MAÍ 2007 blaðið ferði m ferdir@bladid.net Utrunnið? Nú fer í hönd mikið ferðatímabil og vissara að hafa öll smáatriðin á hreinu. Vegabréfið er eitt af því sem þarf að vera í lagi og því ekki úr vegi að kanna tímanlega hvort það er nokkuð útrunnið. Það getur tekið nokkra daga að endurnýja það og því ekki ráð nema í tíma sé tekið. Vel tryggð Það er alltaf gott að vera vel tryggður á ferðalögum því það er aldrei að vita hvað getur gerst. Oft er trygging innifalin ef ferð er greidd með kreditkorti en gott er að kanna nákvæmlega hvað felst í slíkri tryggingu. Wánast ókeypis Þrátt fyrir aö flestir hafi gaman af ferðalögum á milli landa þá geta þau verið heldur dýr, sérstaklega ef um er að ræða stóra fjölskyldu. Flugið eitt og sér kostar sitt að ógleymdu hótelverðinu sem jafnan er stór hluti verðsins. Sífellt fleiri kjósa að sleppa þeim kostnaði en skipta á heimili við aðra í svipuðum sporum. Þetta er til dæmis hægt á heimasíðunni lntervac.com en á síðunni má finna heimili víðs vegar um heim og því ekki erfitt að finna eitthvað við sitt hæfi. Eini kostnað- urinn er vægt árgjald en gistingin sjálf er ókeypis, enda hreinlega verið að skiptast á heimilum. Mun fleiri kostir Áhættan við slík skipti ætti að vera í lágmarki þar sem báðir aðilar eru í sömu sporum, að treysta ókunnugum fyrir heimilum sínum. Kostirnir eru mun fleiri enda hægt að ferðast út um allan heim og kostnaðurinn er töluvert minni en ella. Heimilum á skrá er raðað eftir staðsetningu og stærð auk þess sem hægt er að sjá myndir af sumum heimilum. í sumum tilfellum er bíll látinn fylgja með sem gerir kostnaðinn enn minni. Á þennan hátt verður ferðalagið mun persónu- legra og skemmtilegra en ef búið er á köldu hóteli. Cóð ráð og gagnlegar upplýsingar um heita vatnið www.stillumhitann.is Auglýsingasíminn er 510 3744 Guðmundur Þ. Jónsson: ..Eflingar- ferdirnar hafa heppnast vel í gegnum tiöina, fólk er ánægt með þær og Slaöid/RiynjorOtítiti kemur aftur og aftur." Eflingarferðirnar svokölluðu eru ætíð vinsælar Seljast nær alltaf upp Eftir Svanhvíti Ljósbjörgu Guðmundsd. svanhvit@bladid.net Á hverju sumri býður stéttarfélag- ið Efling upp á vinsælar utanlands- ferðir sem seljast jafnan upp á fyrstu dögunum. í ár seldust ferð- irnar upp nær samstundis enda höfðu áhugasamir staðið í biðröð frá sex um morguninn. Guðmund- ur Þ. Jónsson, i. varaformaður Efl- ingar, segir að um hundrað manns á ári fari í þessar vinsælu ferðir. „Almennt hafa þessar ferðir verið vel sóttar en ég hugsa að ferðin í sumar sé sérstök enda virðist mér sem mestur áhugi hafi verið fyrir henni. Við förum hringinn í kring- um finnska flóann, byrjum á því að fljúga til Helsinki þar sem við stoppum í tvo daga. Þaðan för- um við til Sankti Pétursborgar og þremur dögum síðar förum við til Tallinn.“ Skemmtileg stemning í hópnum Guðmundur segir að farið hafi verið í utanlandsferðir á vegum Efl- ingar allt frá því Efling var stofnuð. „Þetta var líka hefð hjá félögunum sem stóðu að Eflingu en við förum jafnan tvær ferðir á sumri; einn hóp- ur kemur heim og annar fer út í stað- inn. Það hefur yfirleitt verið uppselt í ferðirnar þótt ekki hafi alltaf verið svona mikil aðsókn. Ferðirnar hafa heppnast vel í gegnum tíðina, fólk er ánægt með þær og kemur aftur og aftur. Að hluta til er þetta því sama fólkið í ferðunum en vitanlega er alltaf einhver endurnýjun í hópnum, eins og gengur og gerist. Það mynd- ast líka alltaf skemmtileg stemning í hópnum og allir verða vinir,“ segir Guðmundur en það eru helst félags- menn sem sækja í ferðirnar auk maka eða vina. „Það er fólk á öllum aldri sem sækir í Eflingarferðirnar en helst miðaldra fólk. Við erum reyndar líka með ferðir fyrir eldri félagsmenn, fjögurra vikna ferðir til sólarlanda sem eru sérstaklega sniðnar fyrir þann hóp.“ „Að hluta til er þetta því sama fólkið í ferðunum en vitanlega er alltaf einhver endumýjun í hópnum, eins og gengur og gerist. Það myndast líka alltaf skemmtileg stemning í hópnum og allir verða vinir" Ferðast líka innanlands Guðmundur talar um að ferðir Efling- ar séu ódýrari en allajafna vegna þess að Efling greiðir þær að einhverju leyti niður. „Það er mjög víða sem við höfum drepið niður fæti í þess- um ferðum, Gardavatn, Feneyjar, Hjaltlandseyjar og víðar um Evrópu. Það er mikið ferðast um í rútum og stundum eru þetta ansi drjúgar dagleiðir en það er alltaf stoppað einhvers staðar," segir Guðmundur og bætir við að svona ferðir séu hluti af orlofsdagskrá Eflingar. „Við för- um ekki bara í utanlandsferðir því við ferðumst líka um ísland. 1 fyrra fórum við á Strandirnar og gistum í Djúpavík í þrjár nætur. Það var mjög vinsæl ferð, aðsóknin var það mikil að við ætlum að endurtaka hana í sumar og það er þegar orðið uppselt í hana. Auk ferðarinnar á Strandir förum við á Vatnsnes og Skaga en það eru nokkur sæti laus í þá ferð,“ segir Guðmundur að lokum en itrek- ar að þessum vinsælu ferðum verður haldið áfram. „Við erum strax farin að hugsa um áfangastað fyrir næsta sumar en gefum það ekki upp fyrr en þar að kemur.“ Tónlist víðs vegar um Evrópu Sumrin eru sennilega skemmti- legasti tími tónlistarunnenda enda sjaldan sem er eins auðvelt að kom- ast í návígi við góða tónlist. Víðs veg- ar um Evrópu eru haldnar tónlistar- hátíðir og ef vel er að gáð má finna nokkrar hátíðir í hverjum mánuði. Enda myndu sumir halda því fram að besti staðurinn til að hlýða á fal- lega tónlist sé einmitt úti í náttúr- unni, umvafinn öðrum unnendum tónlistar. Hér er stiklað á stóru og aðeins örfáar hátíðir nefndar en auk þessara má nefna Glastonbury-há- tíðina, Electric Picnic á írlandi, ío days off í Belgíu og fleiri. Hróarskelduhátíðin 5.-8. júlí, Danmörk Flestir kannast við Hróarskeldu- hátíðina en þessi fjögurra daga hátíð hefur verið sérstaklega vinsæl und- anfarin ár, ekki síst hjá íslenskum tónlistarunnendum. Á hátíðinni í ár má sjá okkar einu sönnu Björk, Base- ment Jaxx, The Who, Arctic Mon- keys, Beastie Boys og marga, marga fleiri. Fyrir þá sem hafa aldrei far- ið á Hróarskelduhátíðina er ekki seinna vænna að skella sér. Það er skylda fyrir alla tónlistarunnendur eða bara þá sem kunna vel að meta góða útilegu með skemmtilegri tón- list og enn skemmtilegra fólki. Exit-hátíðin 12-15. júlí, Serbía Það hafa eflaust ekki margir Is- lendingar ferðast alla leið til Serbíu á Exit-hátíðina en sú hátíð var fyrst haldin árið 2000 sem mótmæli gegn stjórn Milosevic. Hátíðin er orðin ár- legur viðburður sem rúmlega 400 þúsund manns sækja. Exit hreykir sér af því að vera pólitísk hátíð en í ár koma þar fram Beastie Boys, Wu- Tang Clan, Robert Plant, Lauryn Hill, Snoop Dogg og fleiri. Montreux-jasshátíðin 6. -21. júlí, Sviss Það eru ekki bara unnendur rokks og popps sem sækja tónlistar- hátíðir því djasshátíðin í Montreux hefur verið haldin síðan árið 1967. Á hátíðinni eru margir minni tón- leikar víðsvegar í kringum vatnið en þar troða upp Norah Jones, Van Morrison, Rufus Wainwright, Sal- omon Burke og fleiri. Bestival 7. -9. september, Bretland Bestival er tiltölulega ný hátíð sem hefur samt sem áður fest sig í sessi. Kannski ekki að furða enda margt áhugavert sem þar má finna, utan tónlistar. Þar á meðal er litrík- ur Bollywood-bar, uppblásin Veg- as-kirkja, hof fyrir mæður og svo mætti lengi telja. Ekki er búið að tilkynna um hvert þemað verður í ár en glöggir menn muna eftir þeg- ar gestir Bestival komust í Heims- metabók Guinness þegar tíu þúsund manns gengu saman, allir klæddir sem kúrekar og indíánar. í ár munu Chemical Brothers, Gossip, Primal Scream og margir fleiri troða upp á Bestival.

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.