blaðið - 23.05.2007, Page 17

blaðið - 23.05.2007, Page 17
blaðið MIÐVIKUDAGUR 23. MAÍ 2007 25 . r: V', U *’TÖ. v ^3) ’ s\P menning@bladid.net Dýrin i Hálsaskógi Leikhópurinn Lotta frumsýnir barnaleikritið Dýrin í Hálsaskógi, hvítasunnudaginn 27. maí. Sýningin fer fram í Elliðaárdalnum og er ætluð börnum og ungu fólki á öllum aldri. Góðar viðtókur Cortes, plata Garðars Thórs Cortes, er enn mest selda klassíska platan í Bretlandi og kom í verslanir á íslandi í síðustu viku. í sept- ember eru fyrirhugaðir útgáfutónleikar hjá Garðari en þeir verða haldnir I Barbican Centre í London 26. september. Daglegt líf í árdaga bæjarins Eftir Hlldi Eddu Einarsdóttur hilduredda@bladid.net Bókasafn Kópavogs hefur gefið út bók með samsafni minninga fólks víða að úr bænum. Þau Hrafn Andrés Harðarson forstöðumað- ur og Inga Kristjánsdóttir barna- bókavörður höfðu veg og vanda af útgáfu bókarinnar, sem kom út í síðustu viku. „Þetta kom þannig til að Kópa- vogsbær var að halda upp á 50 ára afmæli sitt árið 2005 og við hérna á bókasafninu ákváðum að okkur langaði til að gera eitthvað svona til hátíðabrigða. Þá kom þessi hug- mynd upp,“ útskýrir Inga. „Við auglýstum eftir minningum Kópa- vogsbúa í blöðunum og fengum ágætis viðbrögð. Sumir komu til okkar með greinar sem þeir höfðu skrifað sjálfir heima hjá sér, aðrir komu og skrifuðu minningarnar sínar hérna á Bókasafninu hjá okkur og sumir sögðu okkur sög- ur sem við skrifuðum niður. Við söfnuðum öllu saman í möppu hérna þannig að fólk gæti lesið það sem aðrir hefðu skrifað og ef til vill bætt í sjálft, en um síðustu áramót var mappan orðin svo væn og uppfull af góðum minningum að okkur fannst við verða að gera eitthvað við efnið og gefa það út.“ Inga segist ekki vita til þess að þessi hugmynd eigi sér fyrirmynd annars staðar. „Þetta var bara hug- myndin okkar hérna á safninu og við unnum alfarið að þessu sjálf. Það tók vissulega siníi tíma, enda erum við öll hér í okkar föstu vinnu og þetta var aukaverkefni sem við unnum að hluta til heima hjá okkur, en við þurftum að lesa allar grein- arnar yfir og koma þeim fyrir.“ Fólk sem skrifar greinarnar er að sögn Ingu flest í eldri kantinum og gefur bókin því góða innsýn í lífið í bænum í árdaga hans. „Þetta eru að stórum hluta sögur úr daglega lífinu og margir segja frá því þegar þeir fengu blett hérna í Kópavogi vegna mikils húsnæðisvanda í Reykjavík. Fólk fékk gjarnan blett hér um miðja síðustu öíd og byrjaði að ryðja hann og byggja kofa. Svo voru allavega hús byggð út frá kof- anum. Á þessum tíma var nokkuð algengt að fólk væri með hænur auk þess sem sumir voru með fjós, ekki síst í Fossvogsdalnum. Ég man einmitt vel eftir því sjálf þegar ég flutti hingað ung manneskja en þá voru hér bæði hestar og kýr. Svo má geta þess að í bókinni er líka bréf sem maður einn skrifaði syni sínum árið 1951, þar sem hann seg- ir frá því að hann hafi fengið blett í Kópavogi með kofa sem var tveir og hálfur sinnum þrír metrar að þver- máli og það var allt og sumt, og kost- aði 3000 krónur. Þannig að það sést glögglega að margt hefur breyst í Kópavogi á hálfri öld.“ Bókin er afar fræðandi fyrir ungt fólk sem þekkir til í Kópavogi, enda er í flestum tilfellum sagt frá því á hvaða svæði sögurnar gerast. „Flest götunöfnin hafa haldið sér en þar sem þeim hefur verið breytt er það tekið fram í bókinni þannig að fólk geti áttað sig. Svo eru líka sumir sem lýsa framkvæmdum og bygg- ingu húsa sem enn eru til. Einn talar til dæmis um það að hann vildi hafa kjallara undir húsinu en lurRúnarúuömundsson lenti þá á klöpp sem hann varð að berja með hamri og meitli til að hægt væri að ná honum, enda var ekki hægt að sprengja og það voru engar loftpressur. Svo er annar sem lýsir því hvernig hann steypti stórt og mikið hús. Steypan var hrærð á palli og síðan halað upp í fötum. Það hús stendur enn þá við Þing- hólsbraut 13,“ segir Inga. Bókin er nýkomin út og er að- gengileg á bókasafninu. „Þó nokkr- ir hafa komið hingað og kíkt í bók- ina og haft mjög gaman af. Það er aldrei að vita nema hún verði í nánustu framtíð seld í bókabúðinni við Hamraborg, en það fer bara eft- ir því hvernig eftirspurnin verður,“ segir Inga að lokum. Hreint hljóð lcelandic Sound Company spilar í Hallgrímskirkju klukkan 20 í kvöld, en hljómsveitin einbeitir sér að tónlist sem hefur hreint hljóð að sinni þungamiðju. í því skyni notast hún við hljóðfæri eins og gong og tamtam ásamt öðrum ásláttarhljóðfærum og rafgítar. Ekki er einungis leikið á hljóðfærin ein og sér heldur er hljóðið leitt f gegnum hljóðbreytitæki sem móta hljóð þeirra enn frekar. Á þessum tón- leikum koma svo saman tvö af voldugustu hljóðfærum íslands, Klais-orgel Hallgrímskirkju og slagverkssafn Gunnars Kristins- sonar. Tónleikarnir eru haldnir á vegum Listahátíðar í Reykjavík 2007. Leiðsögn á Kjarvalsstöðum Hönnuðir og arkitektar, sem eiga verk á sýningunni Magma/ Kvika á Kjarvalsstöðum, taka þátt í 20 mínútna hádegisleið- sögn þar sem fjallað er um verk þeirra og feril, alla fimmtudaga klukkan 12. Fyrsttil að kynna verk sitt er arkitektinn Theresa Himmer sem starfar hjá Studio Granda. Verk hennar á sýn- ingunni er hinn athyglisverði pallíettufoss sem teygir sig eftir langvegg kaffiteríunnar. Frítt er í safnið á fimmtudögum og opið daglega frá 10 til 17. A íslenskri menningar- hátíð í Frakklandi Kammerkór Suðurlands ásamt Sigrúnu Hjálmtýsdóttur söng- konu og Gunnari Þórðarsyni tónskáldi heldur til Frakklands núna í byrjun júní og tekur þar þátt í íslenskri menningarhátíð. Hátíðin samanstendur af tón- leikum og hátíðarhöldum í Als- ace-héraði og mun kórinn meðal annars halda tónleika í kirkju heilags Tómasar í Strasborg. Frönsk-íslensk samtök að nafni Alsace-Islande halda þessa hátíð árlega, en þetta er í fyrsta skipti sem Kammerkór Suðurlands tek- ur þátt. Diddú hefur hins vegar verið þar árlegur gestur síðan hún fór fyrst á hátíðina með Skál- holtskórnum árið 1998. Gunnar Þórðarson hefur sam- ið nýtt verk fyrir kórinn, Ave Maria, sem er fyrir kór og ein- söngvara og verður það frum- flutt á tónleikum í Þorlákshöfn í næstu viku í tilefni af ferðinni til Frakklands. Kammerkór Suðurlands held- ur upp á 10 ára starfsafmæli á þessu ári og er stjórnandi hans Hilmar Örn Agnarsson, tónlist- arstjóri í Skálholti, sem stofnaði kórinn árið 1997 og hefur stýrt honum allar götur síðan. blaöi á laugardögum Auglýsingasíminn er 510 3744

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.