blaðið - 25.05.2007, Blaðsíða 8
8 FÖSTUDAGUR 25. MAÍ 2007
H
blaöiö
Hver af kosningamálum stjórnarflo
Eftir Þórð Snæ Júlíusson
thordur@bladid.net
Ný ríkisstjórn kynnti nýlega stefnu-
yfirlýsingu sína með viðhöfn á
Þingvöllum. Flokkarnir lögðu báðir
fram stefnu í aðdraganda kosn-
inga með sínum áherslum í hinum
ýmsu málaflokkum. En hverjar af
áherslum stjórnarflokkanna tveggja
rötuðu inn í stefnuyfirlýsinguna?
f hvaða málum gáfu þeir afslátt og
hvar gáfu þeir raunverulega eftir?
Blaðið bar saman kosningastefnur
þeirra og stefnuyfirlýsingu nýrrar
ríkisstjórnar.
TRAUST OG ÁBYRG____________________
EFNAHAGSSTJÓRN
Samfylking: Samstarf ríkis, aðila vinnu-
markaðaríns og sveitarfélaga um aðgerðir
til að tryggja þjóðarsátt um nýtt jafnvægi í
efnahagsmálum.
Sjálfstæðisflokkur: Áframhald á sinni efna-
hagsstefnu, draga úr hömlum á innflutningi
og að ríkið dragi sig alfarið úr verslunar-
rekstri.
Samkomulag: Áframhald efnahagsstefnu
síðustu ára. Settur verður á laggirnar sam-
ráðsvettvangur milli ríkis, aðila vinnumarkað-
arins og sveitarfélaga.
D
KRAFTMIKIÐ ATVINNULÍF
Samfylking: Hverfa frá miðstýrðum land-
búnaði og skapa sátt um nýtingu auðlinda
hafsins. Auðvelda aðgang nýliða að útgerð.
Sjálfstæðisflokkur: Fjölbreyttur landbún-
aður á grundvelli einkaframtaks og að festa
eigi aflamarkskerfið enn betur í sessi.
Samkomulag: Landbúnaðarkerfið endur-
skoðað til að auka þar frelsi, bæta stöðu
bænda og lækka verð til neytenda. Tryggja
stöðugleika í sjávarútvegi.
HVETJANDI SKATTAUMHVERFI
Samfylking: Skattleysismörk leiðrétt,
stimpilgjöld af lánum vegna húsnæðiskaupa
og tollar og vörugjöld afnumin, aukið vægi
grænna skatta og gjaldtaka fyrir afnot af
sameiginlegum auðlindum þjóðarinnar
samræmd.
Sjálfstæðisflokkur: Skattar á einstaklinga
og fyrirtæki lækkaðir, öll stimpilgjöld felld
niður. Lagst gegn hækkun fjármagnstekju-
skatts og skatts af hagnaði fyrirtækja.
Samkomulag: Skattar á einstaklinga lækk-
aðir, meðal annars með hækkun persónuaf-
sláttar. Reynt að lækka skatta á fyrirtæki.
Umhverfisþættir fá aukið vægi í skattastefn-
unni. Kerfi óbeinna skatta endurskoðað og
stimpilgjöld í fasteignaviðskiptum afnumin.
MARKVISS RÍKISREKSTUR
Samfylking: Fækka ráðuneytum, að fagleg
sjónarmið ráði skipan hæstaréttardómara,
endurskoða lög um ráðherraábyrgð, færa ný
verkefni til sveitarfélaganna og tryggja þeim
nýja tekjustofna.
Sjálfstæðisflokkur: Fækka ráðuneytum,
styrkja stöðu sveitarfélaga með nýjum tekju-
stofnum og flytja verkefni frá hinu opinbera
til einkaaðila.
Samkomulag: Starfssviði ráðuneyta var
breytt en peim ekki fækkað, alþingismönn-
um og stjórnsýslu ríkisins verða settar
siðareglur og tekju- og verkaskipting ríkis
og sveitarfélaga endurskoðuð.
BARNVÆNT SAMFÉLAG
Samfylking: Móta heildstæða stefnu
í málefnum barna og ungmenna, bæta
tannvernd, hækka barnabætur, tryggja að öll
börn geti tekið þátt í íþrótta-, tómstunda- og
félagsstarfi, skólamáltíðir verði ókeypis, for-
varnarstarf gegn kynferðisofbeldi verði eflt
og fæðingarorlof lengt.
Sjálfstæðisflokkur: Bæta tannheilsu barna,
taka hart á heimilisofbeldi og leggja áherslu
á hlutverk íþrótta- og æskulýðsmála. Lengja
fæðingarorlof.
Samkomulag: mótuð heildstæð aðgerða-
áætlun í málefnum barna og ungmenna,
tannvernd barna bætt, forvarnarstarf gegn
kynferðislegu ofbeldi eflt og barnabætur
hækkaðar til þeirra sem hafa lágar tekjur.
BÆTTUR HAGUR_____________________
ALDRAÐRA OG ÖRYRKJA______________
Samfylking: Útrýma biðlistum eftir hjúkrun-
arrýmum, afnema þvingað fjötbýli aldraðra,
tryggja að lífeyrir mæti framfærslu lífeyris-
þega, lækka skatta á lífeyrissjóðsgreiðslum
úr 35,72 prósentum í 10 prósent, hækka
frítekjumark vegna tekna aldraðra i 100
þúsund krónur á mánuði og tryggja réttindi
fatlaðra þannig að þeir búi við sambærileg
lífskjör og aðrir þjóðfélagsþegnar.
Sjálfstæðisflokkur: Lækka almennar
skerðingar í almannatryggingakerfinu úr
40 prósentum í 35 prósent, endurskoða
skerðingar vegna lífeyrisgreiðslna, tryggja
ellilífeyrisþegum að lágmarki 25.000 kr. á
mánuði úr lífeyrissjóði til viðbótar við greiðsl-
ur frá Tryggingastofnun, tryggja að eldri
borgarar geti tekið virkan þátt í atvinnulífinu,
efla heimaþjónustu við aldraða, fjölga bú-
setuúrræðum fyrir fatlaða og að fötluðum sé
tryggt jafnrétti og sambærileg lífskjör á við
aðra þjóðfélagsþegna.
Samkomulag: Stefnt að uppbyggingu 400
hjúkrunarrýma fyrir aldraða, að fritekjumark
þeirra verði hækkað og afnema að fullu tekju-
tengingu launatekna 70 ára og eldri. Tryggja
ellilífeyrisþegum að lágmarki 25 þúsund
krónur á mánuði frá lífeyrissjóði, lækka
skerðingarhlutfall þeirra í 35 prósent, stór-
efla starfsendurhæfingu fatlaðra og setja á
laggirnar nýtt matskerfi varðandi örorku og
starfsgetu.
JAFNRÉTTI f REYND
Samfylking: Minnka kynbundinn launamun
hjá hinu opinbera um helming, afnema
launavernd, gera kaup á vændi refsiverð,
samþykkja ný jafnréttislög, koma á sam-
vinnuvettvangi aðila vinnumarkaðarins og
hins opinbera til að vinna bug á kynbundn-
um launamun og tryggja að samkynhneigðir
geti gengið í hjónaband.
Sjálfstæðisflokkur: Stórátak í að jafna kyn-
bundinn launamun, launavernd sé valkostur
HVER NENNIR AÐ HANGA
I BÆNUM A SUMRIN?