blaðið - 25.05.2007, Blaðsíða 9

blaðið - 25.05.2007, Blaðsíða 9
blaðiö FÖSTUDAGUR 25. MAÍ 2007 9 kkanna eru í stjórnarsáttmálanum? og trúfélögum heimilt aö staðfesta samvist samkynhneigðra Samkomulag: Kynbundinn launamunur hjá ríkinu verði minnkaður um helming, komið verði á samvinnu aðila vinnumarkaðarins og hins opinbera til að eyða þeim launamun á almennum vinnumarkaði, launafólk má skýra frá launakjörum sínum ef það svo kýs og trúfélögum verður veitt heimild til að staðfesta samvist samkynhneigðra. MENNTAKERFI í FREMSTU RÖÐ Samfylklng: Stuðla að gjaldfrjálsri menntun frá leikskóla til og með háskóla, bjóða uþp á ókeypis námsbaekur íframhaldsskólum, nið- urfella innritunar- og efnisgjöld og breyta 30 prósentum námslána í styrk að námi loknu. Sjálfstæðisflokkur: Losa um miðstýrðar kröfur í menntakerfinu, styðja við mismun- andi rekstrarform skóla, gera framhalds- skólum kleift að bjóða upp á fjölbreyttari námsleiðir, nemendurtaki í auknum mæli þátt í kostnaði við nám sitt og Lánasjóður íslenskra námsmanna (LÍN) veiti lán fyrir skólagjöldum. Samkomulag: Stefna að auknu faglegu og rekstrarlegu sjálfstæði skóla, minni miðstýr- ingu, fjölgun námsleiða og að lög um LÍN verði endurskoðuð. !> OG VÍMUEFNAVARNIR_________________ Samfylking: Einfalda greiðsluþátttöku sjúklinga, tryggja lágt lyfjaverð, auka vægi útboða og þjónustusamninga, taka upp blandaða fjármögnun á heilbrigðisstofn- unum þar sem fjármagn fylgir sjúklingum, setja á laggirnar ráð sem fer með yfirumsjón á öllu sem lýtur að vimuefnum, hætta að dæma fíkla í fangelsi fyrir fíkniefnaneyslu og skilgreina hana sem heilbrigðismál. Sjálfstæöisflokkur: Fella niður virðisauka- skatt á lyfseðilsskyldum lyfjum til samræmis við aðra heilbrigðisþjónustu, bjóða út lyfjakaup, kostir fjölbreyttra rekstrarforma skoðaðir, sjálfstæðum aðilum gefið færi á að taka að sér verkefni á sviði heilbrigðismála og fylgja eftir uppbyggingu fangelsa. Samkomulag: Leitað leiðatil að lækka lyfjaverð, einfalda greiðsluþátttöku hins oþ- inbera, taka uþþ blandaða fjármögnun á heil- brgiðisstofnunum þar sem fjármagn fylgir sjúklingum, skapa svigrúm til fjölbreytilegri rekstrarforma, áhersla lögð á nægjanleg meðferðarúrræði fyrir vímuefnaneytendur. Fylgja eftir uppbyggingu fangelsa. V LANDIÐ VERÐI EITT__________________ BÚSETU- OG ATVINNUSVÆÐI Samfylking: Stórátak í samgöngumálum til að stytta vegalengdir, til dæmis með gerð jarðganga og endurvekja strandsiglingar. Sjálfstæðisflokkur: Unnið að gerð jarð- ganga um landið til að stytta vegalengdir, fara í samgönguframkvæmdir á höfuðborg- arsvæðinu og skoðaðar leiðir til að efla almenningssamgöngur. Samkomulag: Stórátak i samgöngumálum, beita sér fyrir úrbótum á samgöngukerfi höfuðborgarsvæðisins og gera áætiun um eflingu almenningssamgangna. í SÁTT VIÐ UMHVERFIÐ Samfylking: Fresta frekari stóriðjufram- kvæmdum, úthluta mengunarkvótum til stóriðju og beita hagrænum hvötum til að minnka notkun mengandi eldsneytis. Sjálfstæðisflokkur: Beita efnahagslegum hvötum til að ýta undir notkun vistvænna ökutækja, gera verndar- og nýtingaráætlun varðandi náttúruauðlindir og skoða að færa eignarhald ríkisins á orkufyrirtækjum til einkaaðila. Samkomulag: Stefnt að þvi að Ijúka ramma- áætlun um verndun náttúru og orkunýtingu fyrir árslok 2009, að gerð verði skýr áætlun um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda og hagrænum hvötum verði beitt til að auka notkun vistvænna ökutækja. UMBÆTUR í INNFLYTJENDAMÁLUM Samfylking: Atvinnuleyfi fólks af eriendum uppruna bundið við einstaklinga, stuðla að aukinni viðurkenningu á menntun og námi innflytjenda, setja á fót miðstöð innflytj- endamála, tryggja islensku- og samfélags- kennslu fyrir innflytjendur endurgjaldslaust og að börn innflytjenda fái sömu þjónustu og íslensk börn. Sjálfstæðisflokkur: Átak i íslenskukennslu fyrir útlendinga, reglur og viðmið á mati á menntun og námi innflytjenda verði skýrar og vernda samningsbundinn rétt erlends starfsfólks. Samkomulag: Unnin verði heildstæð framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda, tryggt verði að útlendingar á vinnumarkaði njóti sambærilega réttinda og íslenskt launafólk. ÖRUGG HEILBRIGÐISÞJÓNUSTA FRUMKVÆÐI í ALÞJÓÐAMÁLUM Samfylking: Taka Island af lista hinna vígfúsu þjóða og draga formlega til baka þólitískan stuðning Islands við ólöglega innrás í Irak. Sjálfstæðisflokkur: Að hagsmuna Islands sé gætt af festu á alþjóðavettvangi. Samkomulag: Ný ríkisstjórn harmar stríðs- reksturinn í írak. J OPINSKÁ UMRÆÐA UM EVRÓPUMÁL Samfylkingin: Að Island sæki um aðild að Evrópusambandinu og hefji aðildarviðræður. Sjálfstæðisflokkur: Teiur aðild að ESB ekki þjóna hagsmunum íslensku þjóðarinnar eins og málum er háttað. Samkomulag: Settur verði á fót fastur sam- ráðsvettvangur stjórnmálaflokka á Alþingi til að fylgjast með þróun mála í Evrópu. F=OREST£R SUBARU 200.000 kr. ferðapakki fylgir öllum nýjum Forester. Innifalicí: Upphækkun, heilsársdekk og dráttarbeisli. Subaru Forester sameinar þad besta úr fólksbíl og jeppa. Hann er lipur í akstri eins og fólksbíll en hefur dráttar- og drifkraft á vid marga stærri jeppa. „Mér finnst stundum eins og ég sé á tveimur bílúm. Ég kemst í þröng stædi innanbæjar en dríf sídan í torfærum á landsbyggdinni eins og ekkert sé." Forester liggur mjög vel á veginum en er samt med mun meiri veghæd en adrir jepplingar. Hann er á svipudu verdi og venjulegur fólksbíll þrátt fyrir ad vera med 158 hestafla vél, sem er mun meiri kraftur en í mörgum stærri jeppum. „Madur er ordinn of gódu vanur á Forester. Þad er í raun ótrúlegt hvad madur fær rosalega mikid fyrir lítid." Subaru hefur verid seldur á íslandi í yfir 30 ár. Reynslan af bílnum vid þær erfidu og óvenjulegu adstædur sem hér eru hefur gert Subaru ad samnefnara fyrir endingu, hörku og úthald. Raunar er hvergi selt meira af Subaru midad vid höfdatölu en einmitt á fslandi. Þad ætti enginn ad kaupa sér bíl án þess ad koma fyrst og reynsluaka Subaru. Spyrdu bara Subarueigendur. Þeir vita af hverju Subaru eru sennilega gáfulegustu bílakaup sem þú gerir: „Hey, þetta er ísland!" Forester 2.590.000,- Forester PLUS 2.890.000,- Forester LUX 3.190.000,- Ingvar Helgason Sævarhöfða 2 Slmi 525-8000 Opið: Mán. 10-18, þri.-fös. 9 -18, lau. 12 -16. Umboðsmenn Akureyri Njarðvlk Höfn I Hornafirói —I um land allt 464-7940 421-8808 478-1990 J

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.