blaðið - 20.06.2007, Qupperneq 1
112. tölublað 3. árgangur
Ungur á uppleið
Jóhannes Haukur Jóhannesson
er ungur leikari sem hefur m.a.
leikið í Eilífri hamingju en hann
var tilnefndur til Grímunnar
fyrir bestan leik í aðal-
hlutverki þar.
Losar um spennu
Ragnheiður Guðnadóttir er höfuð
beina- og spjaldhryggsjafnari en
með þessari meðferð er hægt
að viöhalda heilbrigðu
jafnvægi á öllum sviðum
líkamsstarfseminnar.
Talar í Simpson
„Ég las fyrir Wiggum lögreglu-
stjóra, Kent Brockman og
Quimby bæjarstjóra," segir
Hjálmar Hjálmarsson leikari en
hann leikur nokkur hlutverk í
Simpson-bíómyndinni.
SÉRBLAÐ »
miðvikudagur
20. júní 2007
FRJALST, OHAÐ &
Nautahakk
998 kr.
kílóið
Opið alla daga frá kl. 10.-20
SPT R
Bæjarlind 1 - Sími 544 4510
Helgi Magnús Gunnarsson, saksóknari efnahagsbrota, vill opinberari refsingar:
Hvítflibbar kaupa
sig f rá ábyrgö
■ Segir efnahagsbrotadeildina of fámenna ■ Skortir fjármagn og refsiheimildir
Eftir Þórð Snæ Júliusson thordur@bladid.net
„Þegar hvítflibbar eiga í hlut og það fréttist að þeir
hafi jafnvel stungið ævitekjum verkamannsins
undan skatti skapast oft engin opinber umræða
um málið. Það er þetta sem ég vil að fólk vakni til
vitundar um,“ segir Helgi Magnús Gunnarsson,
saksóknari efnahagsbrota hjá ríkissaksóknara. í
ítarlegu viðtali við Blaðið í dag lýsir hann þeirri
skoðun sinni að deildin sem hann stjórnar hafi
ekki fengið að þróast í takt við þær breytingar
sem orðið hafa í viðskiptalífinu á Islandi á undan-
förnum árum né við þau brot sem þær sviptingar
hafa leitt af sér.
Hann vill að þeir sem gerist sekir um stórfelld
efnahagsbrot verði refsað með opinberari hætti.
,Annars er hættan sú að refsingarnar verði hugs-
aðar sem herkostnaður. Ef það kemst upp um
menn í eitt skipti af tíu þá er hættan sú að þeir
borgi einfaldlega sekt og þakki fyrir að enginn viti
af brotinu. Þá er þetta orðið eins og að menn séu að
kaupa sig út úr ábyrgð með greiðslu sektanna."
Helgi telur að refsi- og sektarheimildir opin-
berra eftirlitsstofnana eigi heima inni á borði sak-
sóknara efnahagsbrota. „Það hafa verið gerð mis-
tök að mínum dómi í þróun þessa kerfis á síðustu
árum. Það hafa vaxið upp eftirlitsaðilar hér og þar
sem heyra undir hin og þessi ráðuneyti. Þar er
verið að gæta ákveðinna afmarkaðra hagsmuna og
þar hefur verið ásókn í að flytja refsiheimildir inn
í stjórnsýsluna. Þetta hefur verið rökstutt með því
að það sé svo þungt og flókið að fara með málin
fyrir dómstóla. Það sé svo miklu einfaldara ef
sami aðili rannsakar, ákærir og dæmir menn inni
á skrifstofum eftirlitsstofnana.“
FRÉTTIR »10-11
Vilja taka lögin
í sínar hendur
Á spjallsvæði heimasíðunnar hsl.is,
sem er vefsvæði mótorhjólaklúbbsins
HSL, eru félagsmenn hvattir til að taka
lögin í eigin hendur ef bílstjórar svína á
þeim í umferöinni.
(færslu á síðunni segir: „Þegar að þú,
hjólari góöur, lendir í svona, leggöu þá
númerið á bílnum á minnið, það er hægt
að finna fólk og benda því á hvað það
er að gera, og ef að það vill ekki taka
því með góðu, þá er alveg sjálfsagt að
útskýra málið með ILLU.“ Annars staðar
á síöunni er tiltekinn ökumaður nafn-
greindur og heimilisfang hans birt.
„Við erum komnir með bakið upp að
vegg í þessu máli. Þegar svo er þá bregð-
ast menn við með því aö segja eitthvað
svona. Að sjálfsögöu ætlum við ekki að
labba hér um með hnúajárn og hagla-
byssur.“ Þetta segir Þórður Magnússon
umsjónarmaður heimasíðunnar.
„Það er alveg Ijóst að eftir að lögreglan
kom með ákall til landsmanna um
að fylgjast sérstaklega með bifhjóla-
mönnum eru sjálfskipaðir lögreglumenn
úti um allt að svína á okkur “ segir
Þórður og bætir við: „Þaö að svína á
bifhjól er morðtilraun." Þórður segir
bifhjólamenn oft hafa tilkynnt lögregu
um þessi atvik við dræmar undirtektir
og því grípi menn til þessara örþrifaráða
til þess að minna á sig.
BLAÐIÐ/FRIKKI
Börnin fagna 50 árum
Líf og fjör var á ióð Barnaspítala Hringsins í gær en þá var haldið var upp á hálfrar aldar afmæli spítalans. Núverandi og fyrrverandi
sjúklingar tóku þátt í hátíðahöldunum ásamt starfsfólki, gestum og gangandi. Þegar Kvenfélagið Hringurinn stofnaði spítalann var
hann á efstu hæð í fyrstu byggingu Landspítalans en er nú í glæsilegu húsnæði sem vígt var árið 2003.
Tók öndunarvélina
úr sambandi
Sautján ára þýskur karlmaður,
Frederik Mölner, tók öndunarvél 76
ára herbergisfélaga síns á sjúkrahúsi
í Þýskalandi, úr sambandi eftir að
hávaðinn í vélinni hélt ítrekað fyrir
honum vöku. Mölner liggur nú á
gjörgæslu í Landshut í suðurhluta
landsins þar sem hann jaf nar sig
eftir að hafa lent í bílslysi. „Hann
sagði okkur að hávaðinn hefði farið
svo mikið í taugarnar á sér að hann
hefði haldið að þetta væri besta
leiöin til þess að fá ró og næöi,“
sagði talsmaður lögreglunnar.
Starfsfólki gjörgæslunnar barst
þó merki um að ekki væri allt með
felldu og tókst að tengja öndunar-
vélina á ný í tæka tíð. Mölner verður
yfirheyrður af lögreglu í dag.
Farsímanotkun ,
Fyrirtæki Krónur
Vodafone, innan kerfis 36,60
Vodafone, milli kerfa 73,20
Siminn, innan kerfis 36,90
Siminn, milli kerfa 72,90
Sko, innan og milli kerfa 49,60
Farsímanotkun (símtal í 3 mín. í frelsi)
Upplýsingar frá Neytendasamtökunum
GENGI GJALDMIÐLA
■1 USD SALA 62,49 % 0,13 ▲
ftggjsai kSR GBP 124,19 0,43 ▲
nn mmm DKK 11,25 0,12 ▲
• JPY 0,51 0,30 ▲
ÍÉ EUR 83,79 0,13 ▲
GENGISVÍSITALA 113,72 0,18 A
ÚRVALSVÍSITALA 8.180,33 0,20 A
VEÐRIÐ í DAG
VEÐUR » 2
. bilolondJs
L Mikið úrval notaðra bíla á góðum kjörum! j