blaðið - 05.07.2007, Side 2
2
FRÉTTIR
FIMMTUDAGUR 5. JÚLÍ 2007
blaðið
Bent gefur þrjátíu
milljónir til LSH
Bent Scheving Thorsteinsson
hefur gefið Landspítala-háskóla-
sjúkrahúsi þrjátíu milljónir að gjöf
sem stofnfé í styrktar- og verðlauna-
sjóð sem stofnaður hefur verið í
hans nafni.
Sjóðurinn var formlega stofnaður
í gær en markmið og hlutverk hans
er að veita verðlaun og styrki fyrir
vísindaleg afrek, ritgerðir, rann-
sóknir og skylda starfsemi á sviði
hjarta- og lungnalækninga.
I fyrstu stjórn sjóðsins sitja
Magnús Pétursson, forstjóri LSH,
Uggi Agnarsson hjartalæknir og
Þórarinn Arnórsson, hjarta- og
lungnaskurðlæknir.
Bent Scheving fæddist 12. janúar
1922 í Árósum í Danmörku en for-
eldrar hans voru Þorsteinn Sche-
ving Thorsteinsson, lyfsali í Reykja-
vík, og Guðrún Sveinsdóttir.
Bamaníðingar ágimast sumarfrísmyndir á Netinu
Barnafjölskyldur varaðar við
Lögregla í Svíþjóð hefur varað
barnafjölskyldur við að birta ljós-
myndir úr sumarfríi sínu á Netinu,
vegna hættu á að barnaníðingar
dreifi myndunum. „Foreldrar verða
að vera meðvitaðir um möguleikann
á að myndir af börnum þeirra geti
lent í röngum höndum, ef þær eru
birtar á Netinu,“ segir Jenny Sones-
son sem starfar hjá Ecpat, alþjóðlegri
stofnun sem vinnur gegn hvers kyns
barnamisnotkun. 1 Svíþjóð er áætlað
að áttunda hver fjölskylda birti ljós-
myndir úr sumarfríi sínu á Netinu,
í þeim tilgangi að fjölskylda og vinir
geti notið þeirra.
Per-Áke Wecksell hjá sænska rík-
islögreglustjóraembættinu segir í
Dagens Nyheter að barnaklám á
Netinu hafi aukist gríðarlega að
undanförnu og að nýjar myndir séu
forsenda þess að barnaníðingar fari
inn á slíkar heimasíður. „Barnaníð-
ingar skiptast á myndum og hættan
er sú að þeir nýti sumarfrísmyndir
annarra í þeim tilgangi. Þar að auki
bendir margt til þess að myndir af
berum börnum séu skoðaðar oftar
en myndir af fullklæddum börnum.
Ég myndi aldrei mæla með að for-
eldrar birti myndir af berum börnum
sínum á Netinu.“ atlii@bladid.net
Fleiri vélar þótt
herinn sé farinn
Lendingum herfiugvéla á Kefla-
víkurflugvelli fækkaði um 45
prósent í febrúar miðað við sama
tíma í fyrra. Samkvæmt flugmála-
stjórn á Keflavíkurflugvelli skýr-
ist hluti samdráttarins af brottför
varnarliðsins.
Millilandaflug um Keflavíkur-
flugvöll jókst samt um 7,2 prósent
á fyrri helmingi þessa árs miðað
við sama tíma í fyrra. Flugvélum
í almennu flugi fjöigaði um 13 pró-
sent. Farþegum fjölgaði á sama
tíma um 8,5 prósent eða úr 240
þúsund í 257 þúsund. gag
Gæsluvarðhald
staðfest
Hæstiréttur hefur staðfest að karl-
maður sem hefur verið ákærður
fyrir tilraun til manndráps í
Hnífsdal þann 8. júní, verði í
gæsluvarðhald þar til dómur
fellur í máli hans, þó ekki lengur
en til 14. ágúst. Aðalmeðferð í
málinu fer fram fyrir Héraðs-
dómi Vestfjarða á miðvikudag í
næstu viku. aí
Sjóvá vill aðgang
að ökuferilsskrám
■ Veitt samþykki fyrir notkun skránna skal vera frjálst og óháð
■ Vafi leikur á um að aðferðin standist lög um persónuvernd
Eftir Hlyn Orra Stefánsson
hlynur@bladid.net
Hugmyndir Sjóvár-Almennra
tryggingafélags um að notfæra
sér upplýsingar úr ökuferilsskrám
tryggingahafa til að ákvarða upp-
hæð þeirra iðgjalda sem þeir borga
af ökutækjatryggingum sínum
gætu stangast á við lög um persónu-
vernd. Þetta segir Þórður Sveinsson,
lögfræðingur Persónuverndar.
Hugmynd Sjóvár er að bjóða trygg-
ingahöfum að veita samþykki fyrir
aðgangi að ökuleyfisskrám og greiða
lægri iðgjöld ef punktar vegna um-
ferðarlagabrota eru fáir. Vafi leikur
þó á hvort slíkt samþykki sé í raun
frjálst.
„Þegar kemur að samþykki um
öflun eða veitingu persónulegra upp-
lýsinga er spurningin hvort veitt sam-
þykki hafi verið frjálst og óþvingað.
Samþykki er til dæmis ekki frjálst
og óþvingað ef það að veita ekki sam-
þykki hefur ákveðnar afleiðingar í
för með sér,“ segir Þórður.
Sjóvá reynir við bakdyrnar
I árslok 2006 kom mál inn á
borð Persónuverndar þar sem Sjóvá
hafði óskað eftir aðgangi að ökufer-
ilsskrám til að kanna punktastöðu
ökumanna vegna ákvörðunar um
upphæð iðgjalda vegna ökutækja-
trygginga. Ibyrjun þessa árs komst
Persónuvernd að þeirri niðurstöðu
að það stangist á við þau lög sem
gilda um meðferð lögregluskráa.
Nú hyggst Sjóvá hins vegar bjóða
Ökumaður stöðvaður Sjóvá-Almennar
vilja nota upplýsingar úr ökuferilsskrám
til að ákvarða UDDhæð iðalalda.
AÐGANGUR AÐ ÖKUFERLI
í árslok 2006 bað Sjóvá um
aðgang að ökuferilsskrám.
►
í byrjun þessa árs komst
Persónuvernd að þeirri
niðurstöðu að það stangist
á við þau lög sem gilda um
meðferð lögregluskráa.
Nú hyggst Sjóvá bjóða trygg-
ingahöfum að veita aðgang
að ökuferilsskrám sínum.
tryggingahöfum að veita aðgang að
ökuleyfisskráningum sínum, gegn
því að fá iðgjöld lækkuð reynist
punktar vegna umferðarlagabrota
fáir.
Ökuníðingar borgi meira
Þóra Hallgrímsdóttir, fram-
kvæmdastjóri tjónasviðs Sjóvár,
segir óljóst hvort iðgjöld hækki neiti
einstaklingur að veita aðgang að
ökuferilsskrám. „Þá fá menn ekki
tækifæri til að tryggja sér sömu kjör
og þeir sem geta sýnt fram á flekk-
lausan ökuferil.“
Einar Magnús Magnússon, upp-
lýsingafulltrúi Umferðarstofu, segir
ekki sanngjarnt að ökumaður sem
hagar akstri samkvæmt aðstæðum
borgi jafn há iðgjöld og sá sem
hagar sér eins og hann sé einn í
heiminum.
ÞEKKIRÞÚ TIL?
Hringdu í síma 510 3700 eða
sendu póst á bladid@bladid.net
■■■■■
vírkjum ORKUSTÖÐVARNAR
Hefurðu hugleitt hvar þú
færð ódýrasta eldsneytið?
VEÐRIÐ í DAG
Rignir austanlands
Skýjað með köflum vestan- og suðvest-
anlands og úrkomulaust. Upp úr hádegi
er spáð nokkuð eindreginni rigningu um
austanvert landið. Hiti 11 til 19 stig, en 7 til
9 á annesjum norðantil.
ÁMORGUN
Hlýjast á Vesturlandi
Fremur hæg austlæg átt og rigning með
köflum suðaustanlands og á Austfjörðum,
en úrkomulítið eða úrkomulaust í öðrum
landshlutum. Fer að rigna norðan- og norð-
austanlands undir kvöldið. Hiti 9 til 18 stig,
einna hlýjast á Vesturlandi og Vestfjörðum.
VIÐA UM HEIM
Algarve 30
Amsterdam 17
Ankara 38
Barcelona 24
Berlín 14
Chicago 32
Dublin 17
Frankfurt 19
Glasgow 17
Halifax 16
Hamborg 18
Helsinki 25
Kaupmannahöfn 18
London 17
Madríd 31
Milanó 23
Montreal 20
Munchen 18
New York 22
Nuuk
Orlando 24
Osló 18
Palma 24
París 19
Prag 20
Stokkhólmur 19
Þórshöfn 11
Njálsgata 74
Átta í stað tíu
heimilismanna
Velferðarráð Reykjavíkur-
borgar hefur ákveðið að hefja
rekstur heimilis fyrir átta heim-
ilislausa karlmenn við Njáls-
götu 74 ekki síðar en 1. október
næstkomandi. Tillagan var
samþykkt samhljóða á fundi
ráðsins í gær.
Skiptar skoðanir hafa verið um
staðsetningu heimilisins meðal
íbúa í nágrenninu, en í tilkynn-
ingu frá velferðarráði segir að
ákveðið hafi verið að koma til
móts við gagnrýnisraddir með
því að hafa heimilismenn átta
í stað tíu, eins og áður var gert
ráð fyrir. ai
STUTT
• Flóttamenn Ákveðið hefur
verið að taka á móti hópi flótta-
fólks frá Kólumbíu á þessu ári.
Alls koma 10 konur og 20 börn
þeirra en konurnar hafa verið
skilgreindar sem konur í áhættu
samkvæmt mati Flóttamanna-
stofnunar Sameinuðu þjóðanna.
Reykjavíkuborg hefur samþykkt
að taka á móti flóttafólkinu, sem
kemur til landsins í september.
• Samráðsvettvangur Fyrsti
fundur á samráðsvettvangi
ríkisins, sveitarfélaga og aðila
vinnumarkaðarins verður
l dag. Fjallað verður um að-
gerðir og langtímamarkmið
á sviði efnhags-, atvinnu- og
félagsmála. Vettvangurinn er í
samræmi við stefnuyfirlýsingu
ríkisstjórnarinnar.
• Fíkniefnafundur Fíkni-
efnahundar fundu lítilræði af
amfetamíni og hassi í fjórum
bifreiðum um helgina á höf-
uðborgarsvæðinu. Að sögn
lögreglu voru efnin vel falin í
bifreiðunum en þau höfðu ekki
fundist eftir hefðbundna leit
lögreglumanna.
• Húsleit Tveir karlmenn
og ein kona voru handtekin
í vesturborginni síðdegis á
þriðjudag eftir að 100 grömm
af ætluðu hassi og rúmlega 2
grömm af ætluðu amfetamíni
fundust við húsleit. Fólkið er
allt á fimmtugsaldri en því var
sleppt að lokinni yfirheyrslu.
Málið telst upplýst.
Leiðrétt
Ritstjórn Blaðsins vill leiðrétta hvaðeina,
sem kann að vera missagt í blaðinu.
Leiðréttingar birtast að jafnaði á síðu 2.