blaðið - 05.07.2007, Side 4

blaðið - 05.07.2007, Side 4
FRÉTTIR FIMMTUDAGUR 5. JÚLÍ 2007 blaðiö Mikil átök hafa átt sér stað imdanfama daga um eignarhald í orkufyrirtækinu Hitaveitu Suðumesja Hvað er svona eftirsóknarvert við hitaveituna? 1 Hitaveita Suðurnesja (HS) hefur verið hlutskörpust í flokki rafveitufyrirtækja í mælingum íslensku ánægjuvogarinnar í fimm ár. Fyrirtækið hefur í tím- ans rás þróast í alhliða orkufyrir- tæki. Það annast framleiðslu og sölu á heitu vatni og raforku til notenda, ferskvatnsöflun fyrir Suðurnesjabúa og Vestmanna- eyjar auk þess sem það selur jarðgufu til iðnaðar. Hitaveitan vinnur hreina orku á hagkvæman hátt. Talið er að orkuþörf manna gæti nánast tvö- faldast á næstu 50 árum á sama tíma og háværar kröfur eru uppi um minnkandi notkun mengandi orkugjafa. Því er helst horft til sjálfbærrar orkuframleiðslu. Evr- ópusambandið stefnir til dæmis að því að auka slíka framleiðslu um helming fyrir árið 2020. 2 HS fékk nýverið rannsóknarleyfi til að kanna orkunýtingarmögu- leika á Krýsuvíkurvæðinu. Fyr- irtækið hefur enn ekki fengið nein vinnsluleyfi á þessu svæði en vonir eru bundnar við að þar gætu leynst miklar orkuupp- sprettur. Auk þess er HS aðili að djúpborunarverkefninu svokall- aða, en vonast er til að með djúpborun sé hægt að ná allt að fimmfalt meiri orku úr jarðhita- svæðum en nú er mögulegt. Sú þekking sem er til innan HS skiptir miklu máli því fyrir- tækið hefur gífurlega reynslu af rekstri virkjana við erfiðar aðstæður. Auk þess býr HS að yf- irgripsmikilli þekkingu í nýtingu jarðhitasvæða til orkuvinnslu. Margar aðferðir til slíkrar nýt- ingar hafa verið þróaðar innan HS og aldrei framkvæmdar annars staðar. Því er fyrirtækið talið leiðandi í greininni. Ný tegund gangbrautarljósa Fyrstu gangbrautarljósin á Álftanesi verða tekin í notkun í dag. Ljósunum, sem eru við Suðurnesveg, fylgir skynjari þannig að græna ljósið logar á meðan gengið er yfir götuna. „ Annað sem er nýtt varðandi þessi ljós er að hnappurinn er á sama stað og græni og rauði karlinn," segir Bjarni S. Einarsson, bæjar- tæknifræðingur Álftaness. Hljóð heyrist á meðan græna ljósið logar, sem auðveldar blindum að nota ljósið. Vaka Rún Þórsdóttir, sem sést prófa ljósin á myndinni hér að ofan, mun eflaust nota ljósin mikið, enda þarf hún að fara yfir Suðurnesveg á hverjum degi til að komast í skólann. hos Piparscsa... ... þeqár vimdur (ivín! Tilv\in köld út á kjötiö, í fiskrétti, með reyktum silungi og sjáv&fangi. Góð meö köldum, steiktum lunda og sem ídýfa. Frábær köld úr dósinni eða hituð upp, með lambakjöti, nautakjöti, fiski eða kjúklingaréttum í ofni. VOGABÆR lefur setið inni i 7 ár ergþóra Guðmundsdóttir afplánar 2 ára fangelsisdóm í Kópavogs- rngelsinu. Hún hetði viljað omast a opnari deild eftir tveggja I þriggja ára vist. Blaöið/Ásdis Oll fangelsi geti hýst konur ■ Nýtt fangelsi rís mögulega eftir fjögur ár ■ Ekki hefur tekist nógu vel að taka tillit til þarfa kvenfanga Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur ingibjorg@bladid.net „Aðstaðan fyrir kvenfanga sem þurfa að sitja lengi inni verður að verabetri. I nýju fangelsiskerfiverða minni einingar þar sem hægt verður að hafa konur. Eins og aðstaðan er í fangelsunum í dag er ekki hægt að hafa konur sér. Þær eru ekki það margar í afplánun," segir Erlendur Baldursson, afbrotafræðingur hjá Fangelsismálastofnun. Kvenfangar vist- ast nú eingöngu í Kópavogsfang- elsinu ásamt sérvöldum karl- föngum. Aðstaðan í Kópavogsfangels- inu, þar sem rými er fyrir 12 fanga, þykir óviðunandi fyrir konur sem þurfa að dvelja þar lengi. Karlar geta flust milli fangelsa þegar líður á vistina en það geta konur ekki. Að sögn afbrotafræðingsins er unnið á fullu við þarfagreiningu og hönnun nýs fangelsis sem mögu- lega verður risið eftir fjögur ár. Rætt hefur verið um að það verði á Hólms- heiði en ekki hefur þó verið tekin ákvörðun um endanlega staðsetn- Erlendur S. Baldursson KÓPAVOGSFANGELSIÐ ► Fangelsið, sem áður var Unglingaheimili ríkisins, var opnað 1989. Þar eru allir kvenfangar, nú 7 talsins, vistaðir. Rýmin í fangelsinu eru 12 og fá sérvaldir karl- fangar líka vist þar. ► Á veturna er einn klefi notað ur sem skólastofa. Kennar- ar koma frá Menntaskólan- um í Kópavogi. ► Eigi kona ungbarn við upp- haf afplánunar, eða fæði hún í afplánun, má hún í samráði við barnavernd- arnefnd hafa það hjá sér í fangelsinu. ingu þess á höfuðborgarsvæðinu. „Nýja fangelsið verður móttöku- og gæsluvarðhaldsfangelsi og þar verður afplánun fyrir skammtíma- fanga. Þar verður meðferðardeild fyrir þá sem koma inn í tómu rugli auk siúkradeildar," greinir Erlendur frá. I nýja fangelsinu verður rými fyrir á sjötta tug fanga. Hann telur fullvíst að þegar nýtt fangelsi rís muni Kópavogsfangelsinu og Hegn- ingarhúsinu á Skólavörðustíg verða lokað. Stefnt er að því að aðstaða verði í öllum fangelsum fyrir konur. Verið er að fjölga rýmum á Kvíabryggju úr 14 í 22 og fangelsið á Akureyri er verið að endurbyggja. Þar verða 10 rými í stað 8 og á framkvæmdum að vera lokið um næstu áramót. Fangelsið á Litla-Hrauni, þar sem eru 87 pláss, á að endurbæta til muna samkvæmt stefnumótun dóms- og kirkjumálaráðuneytis og Fangelsismálastofnunar. Brýnast í málefnum kvenfanga er að taka tillit til sérþarfa þeirra, að því er Erlendur segir. „Það verður að taka tillit til þess að þær eru konur. Þær lyfta ekki lóðum í fangelsum. Þær vilja gera eitthvað annað og við verðum að taka tillit til þess. Það hefur ekki tekist nógu vel hingað til að mínu mati. Aðstaðan í Kópavogi er reyndar ágæt að ýmsu leyti miðað við skammtímaafplánun. Erlendu konurnar sem koma þangað og hafa reynslu af öðrum tukthúsum brosa út undir bæði eyru. Aðstaðan fyrir langtímakvenfanga þarf hins vegar að batna og það er markmiðið með áætlunum okkar.“ ÞEKKIR ÞÚ TIL? Hringdu í síma 510 3700 eða sendu póst á bladid@bladid.net

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.