blaðið - 05.07.2007, Side 17
blaóið
FIMMTUDAGUR 5. JÚLÍ 2007
25
LÍFSSTÍLL48K
48k@bladid.net
Að sögn Steingríms Árnasonar, þróunar-
stjóra Apple á íslandi, er stefnt að því að
koma upp iPhone-sýningareintaki í verslun
Apple í Kringlunni, strax í næstu viku.
KÍLÓBÆT
• Krossleggið fingurna Þeir
sem bíða í ofvæni eftir Heavenly
Sword á PlaySt-
ation 3 geta nú
farið að setja sig
í stellingar því
innan tíðar er
væntanlegt demó
af leiknum í PSN
búðina. Mat Hart,
framleiðandi leiksins, segir að
Ninja Theory hafi unnið að demó-
inu um tíma og það sé væntanlegt í
mjög nálægri framtíð.
• Xbox360 óáreiðanlegust?
Samkvæmt
könnunum
DailyTech þá
er bilanatíðni á
Xbox3óo hæst af
þriðju kynslóðar
leikjatölvunum.
Þar er hlutur hins svokallaða
rauða hrings dauðans mikill en
samkvæmt könnunum síðunnar
þá kemur sá kvilli upp í um 33
prósentum allra Xbox3óo-tölva.
Þess ber þó að geta að könnun Da-
ilyTech var síður en svo vísindaleg.
• Það er fylgst með þér Sony
og markaðsfyrirtækið Nielsen
hafa gert með sér samning þess
efnis að Nielsen muni fylgjast með
venjum netspilenda á PlayStation3.
Hugsunin er sú að
hægt verði að setja
auglýsingar í net-
leiki semhöfða sér-
staklega til hvers
og eins spilara. Til
að byrja með fer
þetta aðeins fram
í Bandaríkjunum og lofa bæði fyrir-
tækin að engar persónuupplýsingar
verði notaðar.
• Mannkyninu eytt í þriðja sinn
Fyrsti Destroy all Humans-leikur-
inn var einfaldur 0
vel gerður en
ótrúlega skemmti-
legur vegna þess
að hann tók sig
ekki alvarlega.
Seinni leikurinn
tók allt sem gerði þann fyrri góðan
og gerði það betra. Nú er þriðji De-
stroy all Humans-leikurinn væntan-
legur á allar leikjatölvurnar ásamt
því að útgáfur af honum verða
gefnar út á PSP og Nintendo DS.
• Mortal Kombat á DS Midway-
fyrirtækið mun koma til með að
gefa út Ultimate
Mortal Kombat
á Nintendo DS-
tölvuna. Leikur-
inn mun vera í
tvívídd eins og
klassísku Mortal Kombat-leikirnir
og bjóða upp á alla þekktustu ka-
rakterana. Þá mun leikurinn styðja
Nintendo Wi-Fi, sem býður fólki
upp á að keppa hvað á móti öðru í
DS-tölvunum sínum. Leikurinn er
væntanlegur í nóvember.
• Besti leikur allra tíma? Breska
tölvutímaritið Edge gerði könnun
meðal lesenda sinna um hvað væri
besti tölvuleikur allra tíma. Þar
mega Nintendo-
menn vera ánægðir
þar sem Zelda:
The Ocarina of
Time barhöfuð
og herðar yfir aðra
leiki. Einnig átti
Nintendo 5 af 10 bestu leikjunum.
Aðrir leikir sem náðu á topp tíu
voru meðal annars Final Fantasy
XII, Halo og Half Life 2.
MEGABÆT
Nördaflóð til íslands
Hcimasíðan Infoworld.com
birti nýverið topp tíu lista yfir
þá staði sem henta vel fyrir hið
fullkomna nördafrí. Það sem
vekur athygli er að á þessum
lista er ísland nefnt sérstaklega
til sögunnar sem hinn kjörni
dvalarstaður fyrir nörda og
er það þá einvörðungu vegna
fjölda háhraðainternettenginga.
í pistli Infoworld er sagt að ís-
lensk menning sé ein sú einangr-
aðasta í heimi en þó sé ísland
það land í heiminum sem skarti
hvað flestum háhraðainternet-
tengingum miðað við höfðatölu.
Þeir félagar segja ennfremur að
internettengingarnar hér á landi
séu í jafnmiklu magni og ís.
iPhone-síminn kominn í sölu í Bandaríkjunum
Bylting eða ekki?
iPhone-síminn frá Apple
kom út í Bandaríkjunum
föstudaginn 29. júní.
Síðan síminn var fyrst
kynntur í byrjun janúar
hefur hans verið beðið
með óþreyju, enda að
mati margra um byltingu
að ræða í símaheiminum.
Eftir Elías R. Ragnarsson
elli@bladid.net
Fólk var byrjað að blða fyrir
utan Apple-verslanir mörgum
dögum áður en síminn fór
í sölu, enda vildu allir vera
vissir um að þeir fengju
síma. Þessir sem biðu hefðu þó
getað beðið heima hjá sér í meiri
þægindum því síminn seldist ekki
upp. Miðað við þá umfjöllun sem
síminn hefur fengið um heim allan
undanfarna mánuði þótti nokkuð
líklegt að hann myndi seljast upp.
En þó seldist nóg af honum, meira
en Apple spáði, rúmlega 500.000
eintök fyrstu helgina í sölu.
Erfitt að rispa
Síminn þykir mjög traustlega
byggður, þunnur og þyngri en hann
lítur út fyrir að vera. Líkt og iPod-spil-
ararnir verður hann fljótt kámugur
en þökk sé hágæðagleri á skjánum
þykir mjög erfitt að rispa hann. Það
er ekkert lyklaborð á iPhone heldur
aðeins stór snertiskjár. En notenda-
viðmót símans má einfaldlega kalla
byltingarkennt. Símanum er öllum
stjórnað með fingrunum og það er
hægt að nota fleiri en einn putta
til að stjórna hlutum, til dæmis að
stækka og minnka myndir með því
að klemma puttana saman.
Kosturog galli
Skjárinn er stærsti kostur símans
en einnig stærsti galli. Þar
sem ekkert lyklaborð er á
símanum þarf að nota skjá-
inn. Flestir virðast sammála um að
lyklaborð símans sé mun betra en
búast mátti við, en það sé samt erfið-
ara að venjast þvi að skrifa á skjáinn
heldur en að nota takka.
Sem sími stendur iPhone sig vel, en
ekki frábærlega. Hljómgæðin eru
mjög góð þegar sambandið er gott
en fer hratt versnandi í minna sam-
bandi. Það þarf þó að hafa í huga að
þetta á ekki endilega við um Evrópu
þar sem símakerfin í Bandaríkj-
unum eru talsvert frábrugðin því
sem við þekkjum.
iPhone ber af þegar skoða þarf
vefinn. Þar sem síðurnar eru sýndar
eins og þær koma fram á venju- J
legri borðtölvu og notandinn notar
fingurna til að skoða þær þykir sú
aðferð betri en á nokkrum öðrum
síma. Hægt er að nota Wi-Fi-teng-
ingu símans til að tengjast Netinu
eða notast við EDGE-tæknina þegar
ekkert þráðlaust net er til staðar.
Síminn hefur verið harðlega gagn-
rýndur fýrir að styðja ekki þriðju
kynslóð farsímakerfa.
Síminn virðist hafa slegið í gegn
í Bandaríkjunum og hefur staðist
væntingar flestra. Eina vafamálið
fyrir okkur Islendinga er hvenær
síminn lendir í Evrópu. Enn sem
komið er segir Apple aðeins að hann
sé væntanlegur fyrir árslok.
Markaðurá íslandi
Að sögn Steingríms Árnasonar.þró-
unarstjóra Apple á íslandi, er stefnt
að því að koma upp iPhone-sýninga
reintaki í verslun Apple í Kringlunni
strax næstu viku. Steingrímur segir
að gríðarlegur áhugi sé fyrir iPhone
símanum hér á Islandi og að fjöldi
fólks hafi skráð sig á pöntunarlista,
þrátt fyrir að vita hvorki útgáfudag
né verð á símans.
GIGABÆT
Atvinnublaðid
alla