blaðið - 05.07.2007, Síða 20
FIMMTUDAGUR 5. JULI 2007
blaöió
LÍFSSTÍLLKONAN
konan@bladid.net
Stjórnvöld í Evrópu hafa almennt forð-
ast að grípa til róttækra aðgerða eins og
kynjakvóta til að brjóta þetta glerþak
Nafn: Katrín
Júlíusdóttir
Aldur: 32ára
Starf: Alþingiskona,
formaður iðnaðar-
nefndar Alþingis og
nýskipaður formaður
þingmannanefndar
EFTAog EES.
Blaöið/SteinarH
Hvað œtlaðirþú að verða þegarþú
varst lítil?
Ég ætlaði að verða ýmislegt, allt
frá því að verða spretthlaupari
og skóhönnuður og upp í það að
verða framkvæmdastjóri Samein-
uðu þjóðanna.
Efekki hér, þá hvar?
Eg bý í Kópavogi en er stödd núna
fyrir norðan, í Þverárdal í Axar-
firði og ég hef það ansi fínt þar og
líka á Húsavík.
Hvað er kvenlegt?
Bara allt. Allt í okkar samfélagi er
kvenlegt, konur koma að öllu.
Er munur á körlum og konum, og
ef svo er, hver er hann?
Já, auðvitað er munur á körlum
og konum. Bæði er kvennamenn-
ing öðruvísi en karlamenning, af
sögulegum ástæðum, og svo er
náttúrlega munur á stöðu karla
Mikill raki, kælir húöina og
djúpnærir. Ekkert klístur.
Gott eftlr sólbruna og rakstur.
www.Misus.ia Fæst í apótekum
og kvenna í samfélaginu, því
miður. Margt sem á eftir að laga
þar, bæði hvað varðar launajafn-
rétti og stöðu kvenna í atvinnu-
lífinu í stjórnunarstöðum og í
pólitíkinni.
Erjafnrétti náð?
Nei, langt frá því. Það er svo margt
sem við eigum eftir að gera og mörg
stór skref sem við eigum eftir að
stíga.
Hvað skiptir þig mestu máli í
lífinu?
Sonur minn.
Helstu fyrirmyndir?
Þær eru mjög margar. Ég á fyr-
irmyndir úti um allt í samfélag-
inu, bæði þekktar persónur og
líka fólk í minni fjölskyldu og úr
vinahópnum. í samskiptum við
fólk er maður alltaf að eignast
fyrirmyndir.
Ráð eða speki sem hefur reynst þér
vel?
Það sem takmarkar mig mest
er ég sjálf. Út frá þessari speki
hef ég reynt að nálgast aðra
fordómalaust.
Uppáhaldshók?
Ég á nokkrar uppáhaldsbækur
og held til dæmis mikið upp á
Flugdrekahlauparann, sem ég er
nýbúin að lesa. Svo er önnur bók
sem hefur setið í mér alveg frá því
að ég las hanaíyrir svona 10 árum.
Og það er Konan sem gekk á
hurðir eftir Roddy Doyle. Eg mæli
með þeirri bók fyrir alla.
Draumurinn þinn?
Mig dreymir um frið og
umburðarlyndi.
Prófessor á Bifröst rannsakar þróun jafnréttis í Evrópu
Jákvæðar breytingar
og neikvæðar
Dr. Lilja Mósesdóttir,
prófessor við viðskipta-
deild Háskólans á Bifröst,
tók þátt í ráðstefnu sem
fór fram í Manchester í
júnílok. Þar kynnti hún
niðurstöður rannsóknar
sinnar á því hvers vegna
framþróun þekkingarsam-
félagsins í Evrópu tryggir
ekki kynjajöfnuð, eins og
ESB stefnir að.
Eftir Hildi Eddu Einarsdóttur
hilduredda@bladid.net
„Markmið Evrópusambandsins
er að tryggja framgang þekkingar-
samfélagsins ásamt því að ná fram
kynjajöfnuði. Mælingar okkar sýna
hins vegar að framþróun þekking-
arsamfélagsins í aðildarlöndum
ESB auk Islands hefur verið mun
hraðari en þróun kynjajafnréttis,"
segir Lilja. „Ástæður fyrir því að
hægt miðar tengjast meðal annars
framþróun þekkingarsamfélags-
ins. Þjónustugeirinn hefur vaxið og
menntuðum konum fjölgar á vinnu-
markaði. í þjónustugeiranum hafa
skapast mörg ný atvinnutækifæri
fyrir konur. Atvinnuþátttaka kvenna
hefur því aukist í Evrópu og konum
í stjórnunarstöðum fjölgað. Þessi
jákvæða þróun hefur þó ekki aukið
mikið á kynjajafnréttið í Evrópu, þar
sem launamunur kynjanna hefur
lítið breyst undanfarin 10 ár. Samt
fer munurinn á atvinnuþátttöku og
menntun kynjanna stöðugt minnk-
andi. Láglaunakonum hefur fjölgað
á vinnumarkaði og í sumum löndum
hefur dregið verulega í sundur með
þeim sem eru neðst (konur) og efst
(karlar) í launadreifingunni. Með
aukinni menntun kvenna fjölgar
þeim hlutfallslega í stjórnunar-
stöðum. Launadreifing meðal stjórn-
enda er mun meiri en í stéttum sem
krefjast minni menntunar. Launa-
munur kynjanna eykst því við það að
konum fjölgi meðal stjórnenda, þar
sem konur fá frekar störf neðarlega
í launadreifingunni. Auk þess hefur
einstaklingssamningum fjölgað, en
Lilja Mósesdóttir „Það er einfalt aö
auka atvinnuþátttöku kvenna en erfið-
ara aö taka á kynbundnum launamun.
KONAN
Lilja Mósesdóttir, prófessor
á Bifröst, hefur gert rann-
sóknir á þróun þekkingar-
samfélagsins í Evrópu og
þróun kynjajafnréttis.
Menntun og atvinnuþátt-
taka kvenna hefur aukist
en svokallað „glerþak" í
stjórnunarstöðum viðheldur
kynbundnum launamun.
Aðildarríki Evrópusam-
bandsins eru almennt treg
til að grípa til róttækra
aðgerða.
launamunur kynjanna er meiri þar
sem slíkt launaákvörðunarferli er
ríkjandi. Mér finnst einkennilegt
að slíkum samningum fjölgi á sama
tíma og þjónustustörfum fjölgar.
Rökin fyrir einstaklingssamningum
eru þau að þeir leyfi atvinnurek-
endum að verðlauna starfsfólk með
mikla framleiðni. Það er þó miklum
erfiðleikum bundið að mæla fram-
leiðni starfsfólks í þjónustustörfum,
þar sem þjónusta snýst um mannleg
samskipti."
Glerþakið skýrir margt
En hver er skýringin á launamun-
inum í stjórnunarstöðum?
„Það er hið svokallaða glerþak.
Þegar konur fara upp í stjórnun-
arstöður hafna þær í meira mæli
en karlar í stjórnunarstöðum sem
eru neðst í launadreifingunni og
komast oft ekki upp í hinar betur
launuðu. Stjórnvöld i Evrópu hafa al-
mennt forðast að grípa til róttækra
aðgerða eins og kynjakvóta til að
brjóta þetta glerþak. Ástæðan er
meðal annars sú að slíkar aðgerðir
miða að því að fá karla til að láta
konum eftir hluta af sinum völdum
og góðu störfum,“ útskýrir Lilja.
Erfitt að taka á kynbundnum
launamun
Ertu vongóð um sýnilegan ár-
angur í jafnréttismálum í Evrópu á
næstu árum?
„Nei, í rauninni ekki,“ segir Lilja.
„Mér finnst stjórnvöld í aðildar-
löndum ESB og á íslandi draga lapp-
irnar, sérstaklega þau lönd þar sem
atvinnuþátttaka kvenna er þegar
mikil. Það er einfalt að auka atvinnu-
þátttöku kvenna en erfiðara að taka
á kynbundnum launamun, enda er
þá farið að naga svolítið í völd karla.
Þetta er að mínu mati skýringin á
þvi hvers vegna Norðurlöndin ná
ekki meiri árangri í þekkingarsamfé-
laginu. Ungar konur innan ESB eru
almennt meira menntaðar en ungir
karlar og það hefur verið notað
sem rök fyrir því að konur verði
sigurvegarar þekkingarsamfélags-
ins. Það lítur þó ekki út fyrir að svo
verði, nema karlar séu tilbúnir að
gefa eitthvað eftir af forréttindum
sínum í samfélaginu, en það hafa
þeir hingað til ekki þurft að gera,“
segir Lilja að lokum.
bt hjúlpm inBQt 1 TDi'iiil miiL
Dzifíum Timimig, - Jutki llxiÍjÉrris - sSíswö - Dpniit 'WíuiiBy