blaðið - 05.07.2007, Blaðsíða 30
38
FIMMTUDAGUR 5. JÚLl' 2007
blaöió
FÓLK
folk@bladid.net
„Það er enginn verri þótt
hann vökni aðeins og ætli
sumir verði ekki vætunni
fegnir í þessum þurrki."
Lauk sumrinu formlega í gær?
Theodór Freyr Hervarsson veðurfræðingur
segir veðurspár benda til þess að þurrum
góðviðriskafla sé lokið. Von sé á vætusöm-
um dögum, sérstaklega á Suðaustur- og
Suðvesturlandi.
HEYRST HEFUR
Fjallageitin Sigurður G. Guð-
jónsson fór í svakalega svaðilför
um daginn þegar hann reyndi
að klífa Mont Blanc í Frakk-
landi ásamt fríðu föruneyti.
Fjallið, sem er 4,808 metra hátt,
hafði þó betur að þessu sinni,
því hópurinn
átti einungis
400 metra eftir
á toppinn
þegar hætta
þurfti við vegna
veðurs. Náðu
vindar allt
að 60 kíló-
metra hraða á klukkustund sem
jafnan getur skapað snjóflóða-
hættu. Sigurður hyggst þó reyna
aftur að ári, því eins og hann
sagði sjálfur: „Ég læt þetta fjall
ekki sigra mig...“
Landsmót UMFf verður haldið
í Kópavogi um helgina. Þar er
jafnan margt um manninn og
mikið um að vera. Þar keppa
konur og menn í
ýmsum iþótta-
greinum og
skondnum
viðburðum,
einsog pönnu-
kökubakstri,
dráttarvéla-
akstri,beitn-
ingu, staf-
setningu, jurtagreiningu og
línudansi. Hafa gárungar gert
því skóna að við hæfi væri að
fyrrverandi utanríkisráðherra,
Valgerður Sverrisdóttir, myndi
skrá sig til leiks, enda alvön frá
því hér um árið ...
í því blíðviðri sem ríkt hefur á
landinu undanfarið hafa margir
tekið fram veiðistangirnar og
freistað gæfunnar í okkar rán-
dýru laxveiðiám. Þeirra á meðal
er íslandsvinurinn Eric Clapton
sem jafnan ver hluta af sum-
arfríi sinu hér á landi í þeim
erindagjörðum. Er hann nú við
Vatnsdalsá, en
laxveiðiár hafa
flestar gefið illa
það sem af er
sumri. Spurn-
ing hvort
Clapton
sleppi
ekki
stöng-
inni
og grípi frekar í gítarinn, það
hefur gefist honum ágætlega
fram til þessa...
Jean Antoine Posocco Segist
gefa út blaöið af hugsjón
Myndasögublaðið Neo-Blek kemur út í tólfta sinn
í þessu af hugsjón
Jean Antoine Posocco
er franskur myndlistar-
maður og auglýsinga-
teiknari sem heldur úti
eina reglulega
teiknimyndasögublaðinu
á íslandi. Blaðið kemur út
einu sinni á ári og heitir
Neo-Blek.
Eftir Trausta Salvar Kristjánsson
traustis@bladid.net
Jean Antoine Posocco hefur staðið
að útgáfu teiknimyndasögublaðsins
Neo-Bleks undanfarin tólf ár af ein-
skærum áhuga og hugsjón. Hann
hefur búið hér á landi síðan 1983 og
segist hvergi annars staðar vilja vera.
„Allar aðstæður eru frábærar hér
á landi, nema helst veðrið. Reyndar
hefur það verið óvenjugott undan-
farið, það var ekki svona gott fyrir 25
árum,“ segir Jean sem kynntist konu
sinni, Hildi Bjarnason, forðum daga
í Frakklandi.
„Það lenda allir í ástinni sem koma
til Frakklands, ekki satt? Hún var
að læra frönsku í heimabæ mínum
og ég kynntist henni þar. Ég var ný-
skriðinn úr skóla og í atvinnuleit.
Þannig að í stað þess að bora í nefið
í Frakklandi áfram ákvað ég að slá
MAÐURINN
Jean kom hingað til lands
árið 1983
Jean er lærður auglýsinga-
teiknari
Hann hefur komið að útgáfu
Neo-Bleks frá upphafi, 1996
til og elta hana til íslands, enda mjög
ástfanginn. Mér leist síðan mjög vel
á aðstæður og hef verið hér síðan. Ég
lít á ísland sem land tækifæranna. I
Frakklandi gæti ég ekki staðið einn
í útgáfu myndasögublaðs til dæmis.
Hér getur maður gert það sem maður
vill. I Frakklandi eru fleiri hindranir
á vegi manns og erfitt að komast
áfram í bransanum nema maður
komi sér í mjúkinn hjá stóru útgáfu-
fyrirtækjunum. Að vísu mættu þau
vera duglegri hérna líka að styðja við
teiknimyndasögur, því það er frekar
erfitt að standa einn í þessu."
Neo-Blek hefur komið út einu
sinni á ári síðan 1996 og er eina ís-
lenska myndasögublaðið sem kemur
út með reglulegu millibili. Því má að
stærstum hluta þakka Jean Antoine.
„Hefðin fyrir myndasögum er mjög
sterk í Frakklandi. Mig hafði alltaf
langað til að teikna og voru mynda-
sögur í sérstöku uppáhaldi hjá mér.
Þegar ég hafði verið hér á landi í
næstum tvö ár ákvað ég að fara í
Myndlistaskólann og ég útskrifaðist
aðan 1989 sem auglýsingateiknari.
g vann sem slíkur í nokkur ár en
smám saman fór sá bransi dalandi.
Þá tók við það starf sem ég hef unnið
að síðastliðin 15 ár, að myndskreyta.
Ég hef myndskreytt fjölda barnabóka
í gegnum tíðina ásamt því að sinna
öðrum verkefnum með. Eitt slíkt
verkefni er útgáfa Neo-Bleks, sem
byrjaði árið 1996. Þá hafði Hitt Húsið
fengið styrk frá Reykjavíkurborg til
þess að virkja unga myndasöguhöf-
unda og gefa út myndasögublað. I
fyrstu mættu yfir 20 manns og voru
allir mjög áhugasamir. Siðan fóru
menn að gera sér grein fyrir umfangi
vinnunnar sem er á bak við svona út-
gáfu og smám saman fækkaði alltaf
í hópnum. Brátt höfðum við teikn-
ararnir tekið blaðið yfir og sáum
alfarið um útgáfu þess. Loks vorum
við aðeins tveir eftir í fyrra og nú er
ég einn eftir! Þetta er auðvitað áhuga-
mál mitt og því hef ég enst í þessu. Eg
gef alla mína vinnu og allur ágóði, ef
einhver er, rennur beint í næsta blað.
Annars bendi ég áhugasömum teikn-
urum á að hafa samband við mig á
neo-blek@hive.is ef þeir vilja leggja
mér lið,“ sagði Jean að endingu.
Blaðið er selt í mekka myndasögu-
áhugamanna á íslandi, Nexus.
BLOGGARINN...
Steypt af stóli
„Bill Gate s hefur drottnaö yfir viðskipta-
heiminum sem ríkasti maður heims í ára-
raðir. Enginn hefur komist nærri honum.
Nú bendir flest til þess að hinn mexikóski
Carlos Slim sé orðinn ríkari. Það eru
auðvitað stórfréttir. Siðan að stóra tölvu-
bylgjan varð að veruleika, með nýjum
timum tölvuheimsins, með tæknivæð-
ingu Microsoft undir leiðsögn hans fyrir
rúmum áratug hefur hann verið sem Guð
ibransanum. Hann hefur drottnað. Áhrif
hans eru óumdeild, hann hefur markað
mikil spor á sínum vettvangi. “
Stefán Friðrik Stefánsson
stebbifr.blog.is
Björn Willis
„Kvikmyndin Die Hard með Bruce Willis
er talin magnaðasta spennu- og átaka-
mynd kvikmyndasögunnar samkvæmt
mælingum. Nú höfum við tækifæri til að
sjá Die Hard 04 og veldur hún ekki von-
brigðum. Sögusviðið dregur athygli að
hættum, sem steðja að hátæknivæddum
þjóðfélögum okkar. “
Bjöm Bjarnason
bjorn.is
Silfur hafsins
„Þingmenn eiga það til, eins og við flest,
að mismæla sig, eins og gengur. Það
gerði til að mynda Guðmundur Árni Stef-
ánsson, fyrrverandi krataþingmaður, er
hann sagði eitt sinn iumræðum á Alþingi
að silfurhafsins væri... þorskur. Orðrétt
sagði hann: „Við viljum að silfur hafs-
ins þorskurinn isjónum, verði sameign
allrar þjóðarinnar en ekki örfárra útvaldra. “
Svo mörg voru þau orð.“
Arna Schram
ama.eyjan.is
Opið virka daga: 10-18, lau: 11-16 Reykjavík: Mörkin 4, s: 533 3500
Su doku
1 4 5 7 9
4
2 9 1 3 6
8 3
5 3 2 7
6 7 4 5 1
3 6 2
9 8 1 7 2 4
5 1
Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum frá 1-9 lárétt og
lóðrétt í reitina, þannig að hver tala komi ekki nemá einu sinni
fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu má
aukin heldur aðeins nota einu sinni innan hvers níu reita fylkis.
Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem upp eru gefnar.
9-4 e LaughingStock Inlemational Inc./disl. by Unltad Madla. 2004
Hann Atli er ekki við, get
ég tekið skilaboð?