blaðið - 10.07.2007, Qupperneq 2
2
FRÉTTIR
ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚLÍ 2007
blaöió
Skaut kött
til bana
Dæmdur fyrir vopna-
lagabrot og í sekt
Tæplega sjötugur karlmaður á
Egilsstöðum var í gær dæmdur til
að greiða íoo þúsund krónur í ríkis-
sjóð og sæta upptöku á riffli í Héraðs-
dómi Austurlands Maðurinn skaut
kött út um glugga á svefnherbergi
sínu, með þeim afleiðingum að
hann drapst. Dómurinn áleit mann-
inn hafa með þessu valdið hættu að
nauðsynjalausu, en hann framdi
brotið á vormánuðum 2006.
Vildi halda rifflinum
Maðurinn játaði skýlaust brot sitt,
en mótmælti því að riffillinn yrði
gerði upptækur þar sem um væri
að ræða gamlan minja- og erfðagrip
af Winchester-gerð. Við ákvörðun
refsingar m.a. litið til þess að ráða
mætti af framburði mannsins að
erfitt væri að miða og skjóta úr um-
ræddum riffli og hefði hann því
ekki verið öruggur.
atlii@bladid.net
STUTT
• Björgun Leiguskip á vegum
Eimskips var dregið til hafnar
við strendur Danmerkur. Þyrla
flutti hluta áhafnarinnar frá
borði vegna leka sem varð í
vélarrúmi. Skipið, sem var á leið
til Islands, var leigt í því skyni
að anna umframeftirspurn í
flutningum frá Rotterdam og
Árhúsum til íslands.
Fjármagnseigendur skila meiru í ríkissjóð
50% tekjuaukning
Innheimtar tekjur ríkissjóðs
vegna skatta á tekjur og hagnað
fyrstu fimm mánuði ársins voru
tæpir 67 milljarðar, sem er um 11
milljörðum meira en sömu mánuði
í fyrra. Mestu munar um aukningu
tekna ríkissjóðs vegna skatts á fjár-
magn, en þær jukust um tæp 50
prósent.
Tekjur ríkisins vegna tekjuskatts
á einstaklinga fyrstu 5 mánuði árs-
ins voru tæpum 16 prósentum hærri
en sömu mánuði í fyrra, þrátt fyrir
að tekjuskattsprósentan hafilækkað
um síðustu áramót. Endurspeglar
það hækkun tekna og aukningu um-
svifa i þjóðfélaginu, að sögn Baldurs
Guðlaugssonar, ráðuneytisstjóra
fjármálaráðuneytisins.
Ef skoðaðar eru innheimtar tekjur
ríkissjóðs vegna skatta á fyrirtæki
fyrstu fimm mánuði ársins kemur í
ljós að þær eru tæpum 9 prósentum
lægri en á sama tímabili í fyrra.
Baldur segir skýringuna á því vera
þá að lokagjalddagi fyrir desember-
skattgreiðslu fyrirtækja árið 2005
hafi verið í byrjun janúar 2006. Ef
hins vegar eru bornar saman skatt-
greiðslur af tekjum fyrirtækja fyrstu
5 mánuði árs 2006 og áætlaðar skatt-
greiðslur sömu mánuði í ár, kemur í
ljós að skatttekjur ríkissjóðs af fyrir-
tækjum hafa aukist um 3 milljarða,
eða 30 prósent.
hlynur@bladid.net
■ Skattur á fjármagnstekjur
Tekjuskattur lögaðila
2005 2006 2007
Tekjur ríkissjóðs janúar-maí
í milljónum króna
Mikil viðbrögð
■ Forsvarsmaður MínLyf bíður eftir svari Lyfjastofnunar
■ Fagnar umræðunni sem farin er af stað um lyfjaverð á íslandi
Eftir Elías Jón Guðjónsson
elias@bladid.net
Aðalsteinn Arnarson, forsvars-
maður vefsíðunnar minlyf.net, seg-
ist bíða eftir formlegum viðbrögðum
frá Lyfjastofnun. Hann telur þá þjón-
ustu sem í boði er á vefsíðunni stand-
ast íslensk lög fullkomlega, en hann
selur lyf frá Svíþjóð.
I gær sendi Lyfjastofnun Aðal-
steini formlegt svar stofnunarinnar
bréfleiðis og því má hann búast við
því í dag. Fulltrúi stofnunarinnar
sagðist ekki vilja tjá sig um inni-
hald bréfsins áður en það bærist
Aðalsteini.
Aðalsteinn Arnarson
Megintilgangurinn að
koma umræðu af stað.
ÞRJÚ LYF í ÞREMUR LONDUM
Lyf og framleiðandi
Blóðfitutulyf, 20 mg. 98 stk. Virkt efni: Simvastatin 20 mg, 98 stk.
Simvastatin PortFarma (sland 4239
Simvastatin Actavis Danmörk 1216
Simvastatin Actavis Svíþjóð 551
Blóðþrýstingslyf, 10 mg, 100 stk. Virkt efni: Amlodipin
Amlodipin PortFarma ísland 6253
Amlodipin Alpharma Danmörk 798
Amlodipin Copyfarm Svíþjóð 773
Þungiyndislyf, 20 mg, 100 stk, virkt efni Citalopram
Cipramil ísland 6075
Citaham Actavis Danmörk 656
Citalopram Actavis Svíþjóð 741
• Sólheimar Nýtt einbýlishús
var tekið í notkun á Sól-
heimum í síðustu viku. Um er
að ræða fyrsta einbýlishúsið
sem byggt er gagngert fyrir
fólk með þroskahömlun.
Fyrstu íbúar Grænhóls, en
svo nefnist nýja húsið, eru
sambýlisfólkið Reynir Pétur
Ingvarsson og Hanný M. Har-
aldsdóttir. Búsetu- og heimilis-
svið Sólheima annast þjónustu
við íbúana.
• Hornafjörður Bæjarráð
Hornafjarðar lýsir yfir þungum
áhyggjum af afleiðingum hinnar
miklu kvótaskerðingar fyrir
næsta fiskveiðiár. Árni Rúnar
Þorvaldsson, forseti bæjar-
stjórnar, vill sjá uppbyggingu
Vatnajökulsþjóðgarðsins flýtt
og að hluti af starfsemi Um-
hverfisstofnunar verði fluttur til
Hornafjarðar.
Brýtur ekki lög
Forstjóri Lyfjastofnunar sagðist
í samtali við Blaðið í síðustu viku
telja að MínLyf væri fyrirtæki í lyfja-
dreifingu og því þyrfti það sérstakt
leyfi. Þá hefur einnig verið bent á að
póstverslun með lyf sé ekki heimil
samkvæmt lyfjalögum.
„Ég er ekki að bjóða upp á neina
sértæka lyfjaþjónustu. Eg er bara
að gera hlut sem hver einasti maður
gæti boðið upp á,“ segir Aðalsteinn
og spyr: „Hvað á þá að segja við alla
leigubílstjórana sem sækja lyf fyrir
ömmu gömlu? Á að stoppa þá alla?
Ég er í raun og veru ekki að gera
neitt annað,“ segir Aðalsteinn og
bætir við að ekki sé hægt að kalla
þjónustuna póstverslun því hann sé
ekki að selja neina vöru heldur bara
að bjóða upp á þjónustu sem gerir
fólki kleift að kaupa lyfin sín í ódýr-
ari lyfjaverslunum.
Aðalsteinn segist vera ánægður
með þá athygli sem vefsíðan hefur
fengið. „Megintilgangurinn var að
koma umræðu af stað og mér finnst
ákaflega gaman að lesa um að heil-
brigðisráðherra muni hugsanlega
innan fárra vikna að setja fram
hugmyndir að breytingum á þessu
kerfi,“ segir Aðalsteinn og bætir við:
,Þá er nú markmiðinu kannski náð.“
Aðalsteinn segir margar pantanir
hafa borist til sín eftir að Blaðið
VEÐRIÐ í DAG
Hlýjast suðvestantil
Hæg norölæg eða breytileg átt og víða
skýjað eða þokuloft við sjóinn, einkum
norðan- og austantil, en yfirleitt léttskýjað
til landsins. Hiti 6 til 20 stig, svalast á an-
nesjum noröan- og austanlands, en hlýjast
til landsins suðvestantil.
sagði frá þeirri þjónustu sem boðið
er upp á á vefsíðunni. Nú bíður
hann spenntur eftir svari frá Lyfja-
stofnun og segist ekki vilja brjóta
nein lög. Hann segist munu af-
greiða þær pantanir sem honum
hafa borist á eigin kennitölu komi í
ljós að ólöglegt sé að gera það í nafni
fyrirtækisins.
ÁMORGUN
Víða bjart
Hæg austlæg átt og víða bjart veður, en
sums staðar þokubakkar með norður- og
austurströndinni. Yfirleitt hlýtt, einkum inn
til landsins. Hiti allt að fimmtán stig, hlýjast
inn til landsins.
Prófaðu Heimaöryggi
í tvo mánuði í sumar
- ókeypis!
Engin krafa er gerð um framhaldsviðskipti, gríptu því tækifærið núna.
Tilboðið gildir til 15. júli og er í boði á þeim þéttbýlisstöðum landsins
þar sem Öryggismiðstöðin hefur þjónustuaðila og sinnir útkallsþjónustu.
Hringdu í og kynntu þér málið!
VÍÐA UM HEIM
Algarve 29
Amsterdam 15
Ankara 32
Barcelona 28
Berlín 17
Chicago 31
Dublin 12
Frankfurt 20
Glasgow 15
Halifax 21
Hamborg 17
Helsinki 16
Kaupmannahöfn 19
London 15
Madrid 28
Mílanó 26
Montreal 17
Miinchen 15
New York 22
Nuuk 15
Orlando 26
Osló 16
Palma 25
París 18
Prag 16
Stokkhólmur 14
Þórshöfn 12
Þorskkvótinn
Tveir kostir
íhugaöir
Einar K. Guðfinnsson sjávar-
útvegsráðherra hefur lýst því
yfir að hefði þorskkvótinn
fyrir næsta fiskveiðiár verið
ákveðinn 150 þúsund tonn,
eins og hann var að velta
fyrir sér, hefði það haft í för
með sér frekari niðurskurð á
fiskveiðiárinu 2008 til 2009.
Þorskkvótinn fer hins vegar
ekki niður fyrir 130 þúsund
tonn á fiskveiðiárinu 2008.
„Þá verður gildandi aflaregla,
sem verður tekin úr sambandi
næsta fiskveiðiár, aftur sett
í samband og miðuð við 20
prósenta veiðihlutfall en þó
þannig að ekki verði farið
niður fyrir 130 þúsund tonn á
því fiskveiðiári.“
Flest málin
felld niður
Rannsókn á niður-
hali á bamaklámi að
mestu lokið
Lögreglurannsókn á tölvubúnaði
sem var gerður upptækur í sept-
ember síðastliðnum vegna gruns um
að á honum væri vistað barnaklám
er lokið. Upphaf rannsóknarinnar
var ábending frá alþjóðalögregl-
unni Interpol um að á tölvur á sex
mismunandi heimilum víðs vegar
um landið væri verið að hlaða niður
barnaklámi. Lögreglan í Reykjavík,
Kópavogi, Selfossi og á ísafirði fram-
kvæmdi í kjölfarið samtímis húsleit
á heimilum hinna grunuðu.
Að sögn Björgvins Björgvins-
sonar, yfirmanns kynferðisbrota-
deildar lögreglunnar á höfuðborg-
arsvæðinu, voru flest málin felld
niður að lokinni rannsókn þar sem
ekki þótti tilefni til saksóknar. Einu
þeirra lauk þó með sektargreiðslu
en málið sem kom upp á ísafirði er
enn í rannsókn.
Björgvin segir það vera vegna
þess að ekki hafi tekist að yfirfara
allan þann tölvubúnað sem þar var
lagt hald á. Rannsókn á honum
færst aftar í forgangsröðina vegna
fjölda annarra mála sem hafi komið
inn á borð tölvudeildarinnar. þsj
Flugmönnum
sagt upp
Félag íslenskra atvinnuflugmanna
telur Icelandair brjóta ákvæði
samninga. Á sama tíma og
íslenskum flugmönnum er sagt
upp ræður dótturfélag þess til sín
erlenda flugmenn. Icelandair og
FÍA funduðu í gær en engin nið-
urstaða fékkst í málið. Uppsagnir
taka gildi 1. október en alls hefur
11 fastráðnum flugmönnum verið
sagt upp auk þeirra 24 sem ráðnir
voru til sumarstarfa.
Leiðrétt
Ritstjórn Blaðsins vill leiðrétta hvaðeina,
sem kann að vera missagt í blaðinu.
Leiöréttingar birtast að jafnaði á síðu 2.