blaðið - 10.07.2007, Blaðsíða 22

blaðið - 10.07.2007, Blaðsíða 22
30 ÞRIÐJUDAGUR 10. JULI 2007 blaóió FÓLK folk@bladid.net Nei, ég held ekki, þótt þeir séu góðir. Hefurðu not fyrir nörda í KR? Teitur Þórðarson er þjálfari KR í Lands- bankadeild karla í knattspymu. Liðið situr í neðsta sæti deildarinnar með 5 stig. KF Nörd gjörsigraöi „kollega" sina frá Svíþjóð á föstudaginn, 7-0. HEYRST HEFUR Kristjana Stefánsdóttir djassdíva dansaði tryllt á Gay Pride-upphitunarballi á NASA á laugardaginn, ásamt selfysskum vinkonum sínum. Þar sáust líka Guðfinnur Sigurðsson frétta- maður og Svennií Luxor, kær- asti söngfuglsins Regínu Óskar. ; Páll Óskar var í svaka stuði og var mottó kvöldsins greinilega: allt fyrir ástina... Fjölmörg brúðkaup voru haldin á laugardaginn þar sem dagsetn- ingin 07.07.07 þótti frekar vin- sæl meðal brúðhjóna. Eitt slíkt var haldið í Kópavogskirkju, eins og Bergljót Davíðsdóttir greinir frá á heima- síðu sinni. Var þar um bróður- son hennar að ’ ræða en Berg- Iiót er systir Asgeirs Davíðs- sonar, sem er betur þekktur sem Geiri á Goldfinger. Meðal þeirra sem fluttu skemmtiatriði voru Erpur Eyvindarson, Geir Ólafs og ellefu ára gömul stúlka frá Úkra- ínu, sem stal algerlega senunni með píanóleik sínum þegar hún flutti sónötu eftir Chopin... Líkt og hinn ágæti Vefþjóðvilji bendir á er í uppsiglingu mögu- legt kynjamisréttishneyksli. Háskólinn á Bifröst hefur boðið upp á fjarnám í rekstrarnámi sem alla jafna væri ekki í frá- sögur færandi, ef nám- skeiðið byð- ist ekki konum ein- göngu. Jú, einungis konur fá aðgang að þessu námskeiði, sem virðist skjóta skökku við í okkar upplýsta sam- félagi þar sem kynjamisréttinu hefur verið sagt stríð á hendur. Eitthvað yrði nú sagt ef verk- fræðin og læknisfræðin byðist eingöngu körlum... Markamaskínan Vilhjálmur Andri Kjartansson Ekki bara nörd Vilhjálmur Andri Kjartans- son skoraði fjögur mörk fyrir KF Nörd gegn FC Z, nördaliðinu frá Svíþjóð, í 7-0 sigri á Kópavogsvelli á föstudaginn. Þessi gullfótur segir tilf inn- inguna miklu betri en að klára síðasta borðið í Counter-Strike. Eftir Trausta Salvar Kristjánsson traustis@bladid.net „Alveg klárlega. Síðasta borðið í Counter-Strike er svo auðvelt,“ segir Vilhjálmur sem hefur húmor fyrir sjálfum sér. „Ég spilaði smá fótbolta þegar ég var yngri, en annars hélt ég mig að- allega í skákinni. Einnig keppti ég í stærfræði og raungreinum og horfði mikið á Star Trek. Ég fékk snemma áhuga á tölvum og fékk síðar mikinn áhuga á pólitík. Þá held ég úti heima- síðunniFrjálshyggjumaðurinnáslóð- inni: vak.blog.is. Gunnlaugur Snær Ólafsson félagi minn, sem einnig er í KF Nörd, er kallaður íhaldsmað- urinn og við rökræðum gjarnan pólitík þegar vel liggur á okkur. Ég er þó sennilega mun hægrisinnaðri en hann. Einnig hef ég unnið mikið MAÐURINN Vilhjálmur Andri er 23 ára og nemur lögfræði við Há- skóia íslands Vilhjálmur Andri er KR-ingur Vilhjálmur er leiðbeinandi í Unglingavinnunni með Sjálfstæðisflokknum og Heim- dalli. Þá stofnaði ég ásamt fleirum frjálshyggjufélag í menntaskóla sem síðar var lagt niður. Þegar sams- konar félag var stofnað nokkru síðar af öðrum ágætum mönnum, gekk ég að sjálfsögðu í það félag og sé ekki eftir því.“ Vilhjálmur segist ekki hafa sér- staklega mikinn áhuga á ensku knattspyrnunni. „Ég get ekki sagt það. Það vaknaði smá áhugi í fyrra en mér finnst mun skemmtilegra að spila sjálfur en að horfa. Ég kíki af og til á leikina hér heima, sennilega af því að ég þekki nokkra stráka sem eru að spila í meistaraflokki. Annars held ég með Liverpool, sennilega vegna þess að allir vinir mínir gera það einnig.“ Vilhjálmur spilaði á miðjunni gegn Svíunum en skoraði samtfjögur mörk. „Ég ligg svolítið aftur en er dug- legur að koma fram á við og skjóta að marki. Ætli það sé ekki minn helsti styrkleiki, það er skotharkan. Ég fékk að æfa með Henson-liðinu í utandeildinni og er því búinn að vera æfa í allan vetur. Það gerði mér mjög gott og hélt mér í ágætis formi auk þess að auka leikskilning minn og boltatækni. Annars vorum við ekkert að kortleggja Svíana neitt sérstaklega. Við ákváðum bara að spila okkar bolta og setja fleiri mörk heldur en þeir. Og það tókst.“ Vilhjálmur segist hafa fengið þó nokkra athygli sökum þátttöku sinnar í KF Nörd-ævintýrinu sem sjónvarpað var á Sýn. „Það kemur alltaf jafnmikið á óvart þegar fólk þekkir mig úti í búð. Ég er frekar hlédrægur og ró- legur persónuleiki og því skrítin tilfinning að vera eitthvað þekktur. En þetta er bara góð athygli sem betur fer,“ segir Vilhjálmur sem segist ekki fara í VTP-raðir á skemmtistöðunum. „Ég fer frekar sjaldan út að skemmta mér. Ef ég fer þá er ég snemma á ferðinni og þarf því ekki að láta á það reyna hvort ég kemst í VlP-raðirnar eða ekki.“ Vilhjálmur Andri er einhleypur. „Maður hefur vissulega fengið að- eins meiri athygli frá hinu kyninu, en ég hef ekkert verið að festa mig neitt,“ sagði Vilhjálmur að endingu. BL0GGARINN... Óspennandi Ólafur Ragnar „Eyjan bendir á að forsetinn hafi ekki verið í bílbelti þegar ekið var um með frétta- mönnum í nýju hybrid forsetabifreiðinni. Það sem er kaldhæðnislegast við þessi fréttainnslög er að helstu rök forsetans fyrir kaupum bifreiðarinnar eru þau að hann vilji vera gott fordæmi. Hann þarfnú sannarlega að gera betur. “ Jón Hákon Halldórsson http://blogg.visir.is/jonhakon Rugl og fífl „Tölfræðina vantaríblogg Guðmundar Magnússonar um orðaval mitt um ævina. Segir, að ég hafi notað orðið „rugl“ 395 sinnum og „fífl“ 107 sinnum. Erað reyna að lauma inn, að ég sé orðljótur. Ég hef skrifað 8087 greinar um ævina. Þvi er fyrra dæmið í 4% tilvika og síðara dæmið í 1% tilvika. Hann hefði getað vaiið orð eins og „fínn“ og fundiö, að það sést 1813 sinnum. Eða „gott“, sem sést 1048 sinnum. Skrifhans eru marklaus, þvíað hvorki heild né samanburður sést ídæm- inu. Sá, sem skrifar 8087 greinar er án efa leiðinlegur, efþar vantar góða íslenzku á borð við „rugt“ og „fifi“. “ Jónas Krístjánsson jonas.is Feitir aflitaðir sauðir „Borðaði með tíu manna fjölskylduhópi á TGI Friday ígær í Smáralind. [,..]Það var t.d. svo mikið af feitu fólki þarna, ekki sist feitum karlmönnum, að mér leið eins og ég væri tággrannur. Það var aflitað hár, það var mikið tattú, það voru sauössvipir og bókleysið skein afhverri ásjónu. Eini klári maðurinn á staðnum var væntan- lega Einar Bárðarson sem heilsaði okkur fallega en hann er þó eins og nokkurs konar foringi og fyrirmynd þessa menn- ingarsvæðis og hefur með fullri virðingu á einberu yfirborðinu mörg þau einkenni sem ég lýsti hér að ofan. “ Ágúst Borgþór Sverrisson blogg.visir.is/agustborgthor Prófaðu Heimaöryggi í tvo mánuði í sumar - ókeypis! Engin krafa er gerö um framhaldsviðskipti, gríptu því tækifærið núna. Tilboðið gildir til 15. júlí og er i boði ó þeim þéttbýlisstöðum landsins þar sem Öryggismiðstöðin hefur þjónustuaðila og sinnir útkallsþjónustu. Hringdu í og kynntu þér málið! Su doku 9 1 4 3 4 3 9 3 7 1 6 4 8 6 5 1 6 2 8 4 7 2 3 3 9 1 7 9 4 5 2 7 6 Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum frá 1-9 lárétt og lóðrétt í reitina, þannig að hver tala komi ekki nema einu sinni fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu má aukin heldur aðeins nota einu sinni innan hvers níu reita fylkis. Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem upp eru gefnar. eftir Jim Unger -------1 N0TA9IR BÍIAR 8-25 e LaughiogSlock Intamallonal Inc7dtet by Unitod Medía, 2004 Nei, Einar, ég á þennan

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.