blaðið


blaðið - 10.07.2007, Qupperneq 14

blaðið - 10.07.2007, Qupperneq 14
ÞRIÐJUDAGUR 10, JÚLÍ 2007 blaöiö ÍÞRÓTTIR ihrottir@bladid.net Ég held að það muni slá á allar vangaveltur um þetta mál ef leik- urinn verður spilaður upp á nýtt" tekur við Real Madrid Sameinar árangur og skemmtun Þjóðverjinn Bernd Schuster tók í gær við þjálfarastöðunni hjá Real Madrid, starfi sem margir telja það erfiðasta innan knattspyrnuheims- ins. Hann tekur við afFabio Capello, sem var rekinn einungis n dögum eftir að hafa landað fyrsta Spánar- meistaratitli félagsins í fjögur ár. Schuster hefur undanfarin tvö ár þjálfað smálið Getafe með góðum árangri. Hann kom liðinu í úrslita- leik spánska konungsbikarsins og tryggði félaginu þátttökurétt í Evrópukeppni í fyrsta sinn í sögu þess. Getafe hafnaði í 7. sæti deild- arinnar í vor. Danska goðsögnin Mi- chael Laudrup hefur þegar verið til- nefndur í stað Schuster hjá Getafe. Ljóst er að Schuster bíður mikið og erfitt verk. Þolinmæði forsetans, Ramon Calderon, er ekki mikil og líftími þjálfara hjá félaginu er ekki langur. Eins og dæmið með Capello sannar, þá er ekki endilega nóg að skila inn deildarmeistaratitli ef ár- angur á öðrum vígstöðvum er ekki viðunandi. Fótboltinn þarf heldur ekki einungis að vera árangurs- ríkur, hann þarf líka að vera mikið fyrir augað. Calderon hefur trú á að Schuster nái að sameina árangur og skemmtun. „Lið hans spila góðan og skemmtilegan fótbolta. Hann þekkir félagið og þarf að kljást við búningsherbergi fullt af stór- stjörnum,“ segir forsetinn. Hápunktarnir í ár að mati íþróttadeildar Blaðsins BESTIR: FH. Líkt og fyrri ár hefur FH haft nokkra yfirburði í deildinni. Þótt bilið sé ekki jafnbreitt og í fyrra eru fá lið sem hafa yfir jafnmiklum stöðugleika að ráða. SPÚTNIK: ÍA. Hópurinn er þunnur og margir óreyndir kjúklingar eru inn- anborðs innan um reyndari leikmenn. Eftir slaka byrjun hefur Guðjón Þórðar- son sýnt að hann kann að gera drengi að mönnum og liðið er í fjórða sæti. VONBRIGÐIN: KR. Óumdeilan- legt og KR-ingar vita það best sjálfir. Fjögur stig í síðustu tveimur leikjum gefa tilefni til bjartsýni, en héðan í frá taka Vesturbæingar 9. sæti og ofar fagnandi. BESTUR: Helgi Sigurðsson. Hefur fundið skot- skóna á ný og er í hörkuformi. Hver veit nema hann hljóti náð fyrir augum landsliðsþjálfarans á ný. MARKIÐ: Bjarni Guðjóns- son gegn Kefla- vík. Hvort sem Bjarni skoraði viljandi eða ekki, þá er markið stórglæsilegt og ekki á hvers manns færi. Fáir geta leikið þetta eftir. UPPÁKOMAN: Sirkusinn eftir leik í A og Keflavíkur hefur virki- lega kveikti svo um munar í íslandsmótinu. Alvöru íslenskt sápudrama, en ekki til eftirbreytni. JÁKVÆTT: Umgjörðin. Hvert sem litið er hefur umgjörðin í kringum mótið aldrei verið betri. Áhorfendur hafa aldrei verið fleiri og stemn- ingin á pöllunum eftir því. Þá eru dómarar í sínu besta formi og dómgæslan mun betri nú en fyrri ár. Góðir leikir fleiri en slæmir I íslandsmótið í knattspyrnu hálfnað Annar leikur íA og Keflavíkur það besta í stöðunni, segir Logi Ólafsson Eftir Magnús Geir Eyjólfsson magnus@bladid.net íslandsmótið í knattspyrnu er hálfnað og línur teknar að skýrast. Valur og Keflavík eru einu liðin sem koma til með að veita FH sam- keppni um titilinn. Botnbaráttan er ekki síður spennandi. KR, Fram, Víkingur, Breiðablik og HK heyja harða baráttu um sæti í deildinni. Ekki má mikið út af bregða hjá Fylki til að liðið sogist niður í botn- baráttuna. Blaðið leitaði til Loga Ól- afssonar, fyrrum landsliðsþjálfara, til að fara yfir fyrri umferð Lands- bankadeildar karla. Sér KR ekki falla „Mér finnst fótboltinn að mörgu leyti hafa verið ágætur. Við höfum séð marga skemmtilega og spenn- andi leiki. Meðan góðir leikir eru fleiri en slæmir er maður tiltölulega ánægður. Mér finnst bilið milli efstu liðanna og þeirra í neðri hlutanum minna en ég bjóst við,“ segir Logi. Hann er nokkuð viss um að FH standi uppi sem sigurvegari í haust, fjórða árið í röð. „Þeir eru með af- skaplega góðan og fjölskipaðan leik- mannahóp. Það er komin svo mikil rútína á liðið að það er sama hver kemur inn, hann smellpassar.“ Logi er ekki í nokkrum vafa um að KR sé það lið sem valdið hefur hvað mestum vonbrigðum í sumar. Þrátt fyrir það sér hann það ekki fyrir sér að liðið falli. „Menn hafa alltaf verið að bíða eftir því að flóð- gáttirnar opnist. Þeir hafa hins vegar tekið þann kostinn að leika öðruvísi, svipað og Skagamenn hafa gert. Þeir fara aftar á völlinn og freista þess að loka eigin marki og beita skyndisóknum. Eg tel að þetta verði barátta milli þessara liða sem eru við botninn núna. Eins og staðan er í dag er KR meðal þeirra og það væri fásinna að halda öðru fram en að liðið væri í fallbaráttu." Helgi Sigurðsson hefur verið mjög heitur í framlínu Vals í sumar og segir Logi hann hafa verið einn besta leik- mann mótsins. Hann segir þó að fáir ungir og efnilegir hafi stigið fram á sjón- arsviðið í ár. „Við erum ekki að sjá það sem alltaf er verið að bíða eftir, að einhver ungur leikmaður komi og slái í gegn. Sá sem helst hefur vakið athygli mína er Sverrir Garðarsson. Hann hefur verið meiddur í tvö ár en tók af sér 20 kíló og hefur komið frábærlega út á þessu sumri.“ Nýr leikur besta lausnin Um fátt er meira rætt þessa dag- ana en atvikin í og eftir leik ÍA og Keflavíkur á Akranesi. Logi segist vonast til að slíkar uppákomur verði ekki fleiri á tímabilinu. Hann segir að úr þessu sé það besta í stöðunni að spilaður verði nýr leikur. „Menn hafa verið að bera hver upp á annan ósannsögli og það er það leiðinlegasta við þetta allt saman. Ég held að knattspyrnuforystan þurfi að fara ofan í saumana á þessu máli. Það þarf að fá niður- stöðu í það. Ég held að það muni slá á allar vanga- veltur um þetta mál ef leikurinn verður spilaður ____ Á + “ Súpersól til Búlgaríu 9. og 16. júlí frá kr. 29.995 Terra Nova býður nú síðustu sætin til Golden Sands í Búlganu í júlí á ótrúlegum kjörum. Gn'ptu tækifærið og skelltu þér til þessa vin- sæla sumarleyfisstaðar sem býður þín með frábæra strönd, einstakt loftslag, ótæmandi afþreyingarmöguleika, fjölbreytta veitingastaði og fjörugt næturlíf. m m Kr. 29.995 Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 2 börn I hótelher- bergi/ stúdíó/íbúð í viku. Súpersól tilboð, 9. og 16. júlf. Aukavika kr. 10.000 á mann. Kr. 39.990 Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli í viku. Súpersól tilboð, 9. og 16. júlí. Aukavika kr. 10.000 á mann. Terra Nova PRIMERA BROUP Skógarhlið 18-105 Reykjavík Sími: 591 9000 • www.terranova.is Akureyri sími: 461 1099 Hafnarfjörður sími: 510 9500 Unnið er að þvífyrir milligöngu KSl að fá Skaga- menn og Keflvík- ingatilaðslíðra sverðin eftir hita- leik í síðustu umferð Landsbanka- deildar karla. Félögin skila inn grein- argerðum til KSÍ sem síðan mun taka ákvörðun um framhaldið. Enn er nokkur hiti í herbúðum liðanna, en vonandi verður fundin lausn á deilunni áður en liðin mætast i 18. umferð deildarinnar í september. Vamarjaxl- inn Jamie Carragher íhugar að hætta að leika með enska landsliðinu.Carr- agher er ósáttur við hversu fá tækifæri hann hefur fengið undir stjóm Steve McClar- en. Þrátt fyrir að vera lykilmaður í vörn Liverpool em Ledley King, John Terry og Rio Ferdinand ávallt teknir fram yfir hann. Meira að segja Wes Brown hefur fengið fleiri tækifæri að undanförnu. Allterí upplausn hjá Arsenal ef marka má varnarmanninn William Gallas sem leikur með félaginu. Gallas er hundfúll út í Ar- sene Wenger og stjóm félagsins fyrir metnaðarleysi í leikmannamálum og hefur hann krafist þess að fara frá félaginu ef ekki verður breyting þar á. Hann segist ekki vilja spila með liði sem keppi um þriðja sætið. Gallas fullyrðir að fleiri leikmenn innan félagsins séu sama sinnis. SKEYTIN INN

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.