blaðið - 10.07.2007, Blaðsíða 4
FRÉTTIR
ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚLÍ 2007
blaóió
ASÍ kannar verðþróun í lágvöruverðsverslunum
Lækkun ekki öll til neytenda
Ólafur Darri Andrason, hag-
fræðingur ASÍ, segir að verðhækk-
anir lágvöruverðsverslana að und-
anförnu séu óásættanlegar fyrir
neytendur. „Það verður að segjast
aðniðurstöðurnarvaldaákveðnum
vonbrigðum. Þróun á verðlagi í lág-
vöruverslunum virðist hafa verið
óhagstæð frá því í mars, eftir að
þær höfðu skilað virðisaukaskatts-
lækkuninni ágætlega."
Verðlagseftirlit ASÍ hefur staðið
fyrir viðamiklum verðmælingum
í verslunum til þess að fylgjast
með því hvernig lækkanir á virðis-
aukaskatti og vörugjöldum þann 1.
mars hafa skilað sér til neytenda.
Verðbreytingar í lágvöruverslunum
desember 2006 til maí 2007
Ólafur Darri segir að gert hafi
verið ráð fyrir að lækkun á vöru-
gjöldum myndi skila sér á einum
til tveimur mánuðum. Þá hafi
krónan styrkst um sex prósent frá
áramótum, sem hefði átt að lækka
innflutningsverðlag. „Þegar þetta
er tekið saman þá veldur þessi
nýjasta mæling okkur miklum
vonbrigðum.“
Samkvæmt mati Hagstofunnar
átti lækkun á virðisáhkaskatti að
lækka verð á matar- og drykkjar-
vörum um 7,4 prósent, og lækkun
vörugjalda um 1,3 prósent til við-
bótar. Verðmælingar ASl frá des-
ember til maí hafa hins vegar leitt
í ljós að verð í lágvöruverslunum
hefur einungis lækkað um 4,2 til
6,7 prósent.
atlii@bladid.net
Vöruflokkur Bónus Krónan Nettó Kaskó
Brauð og kornvörur -0,6% 1,0% 0,1% 1,0%
Kjöt 0,6% 8,0% -1,1% 0,4%
Fiskur 13,0% 4.3% -3.9% 9,6%
Mjólk, ostar og egg 1,1% 2.4% 1,0% 0,8%
Olíur og feitmeti 3.5% 0,6% -0,4% -0,8%
Ávextir -3.2% 5.8% -0,2% 1,3%
Grænmeti og kartöflur -0,5% -0,5% -1,6% -3.5%
Sykur og sætindi -2,6% 0,8% 0,2% 0,4%
Aðrar matvörur 0,8% 1,3% -1,2% 2,6%
Kaffi, te og kakó 0,2% -1,5% 0,5% 0,1%
Gos, safar og vatn 13.4% 19.9% 0,7% 0,1%
Mynd/Ragnhildur Aðalsteinsdóttir
Lést er jeppi valt
Karlmaður á þrítugsaldri lést þegar bifreið sem hann ók fór út af í
krappri beygju á veginum sem liggur úr Norðurárdal og upp á Öxna-
dalsheiði. Maðurinn kastaðist út úr bílnum og var látinn þegar fólk
bar að. Þetta er þriðja banaslysið sem verður í umferðinni á þessu ári.
ejg
Höfuðborgarsvæðið: Far - Laugavegi 35 • Skór.is - Kringlunni • Skór.is - Smáralind • Liggalá
Laugavegi 67 • Nýjaland - Eiðistorgi • Xena - Glæsibæ • Xena - Mjóddinni • Xena - Spönginni •
Landsbyggðin: Akureyri - Mössuskór - Glerártorgi • Akranes - Ozon - Jaðarsbraut 23 •
Borgarnes - Xena - Hyrnutorgi • Isafjörður - Hafnarbúðin - Hafnarhúsinu • Húsavík • Skóbúð
Húsavíkur - Garðarsbraut 13 • Egilsstaðir - Fótatak - Tjarnarbraut 19 • Selfoss - Skóbúð Selfoss -
Austurvegi 13-15 • Hveragerði - Heilsubúð NLFl - Grænumörk 10 •
Vestmannaeyjar - Axel Ó - Bárustíg 6
Enginn á að þurfa
að lifa svona
■ Erna Agnarsdóttir var vistuð á Kumbaravogi í tíu ár
■ Vilja að Kumbaravogur sé rannsakaður eins og Breiðavík
Eftir Heiðu Björk Vigfúsdóttur
heida@bladid.net
„Barnaverndarnefnd rændi mér og
bróður mínum úti á götu og fór með
okkur til Kumbaravogs þar sem okkur
var haldið í tíu ár. Bróður mínum var
stöðugt refsað þar og fannst mér mitt
hlutverk vera að vernda hann.“
Svona lýsir Erna Agnarsdóttir
reynslu sinni af Kumbaravogi en
hún var níu ára þegar hún var flutt
þangað og bróðir hennar fimm ára.
Þeir einstaklingar sem voru vistaðir
þar vilja að heimilið verði rannsakað
alveg eins og í Breiðavík en Breiðavík-
ursamtökin eru að aðstoða þá i þeirri
baráttu. „Okkur er sagt að það eigi að
rannsaka öll heimilin en hvenær það
verður vitum við ekki. Við viljum að
ríkisstjórnin setji Kumbaravog í for-
gang með Breiðavík. Það er ekkert
minna sem hefur gengið á þar.“
Fékk enga skýringu á vistuninni
Það var haustið 1965 sem tíu ára
dvöl Ernu og bróður hennar Ein-
ars hófst á Kumbaravogi en móðir
þeirra átti við alkóhólisma að stríða.
„Mamma reiknaði alltaf með þvi að fá
okkur fljótlega aftur. Hún fékk enga
skýringu á því af hverju okkur var
haldið svona lengi."
Erna segir að það sem hún muni
mest eftir frá vistuninni á Kumbara-
vogi sé stöðug vinna og slæm meðferð
á bróður sínum. Hafi vistunin haft
mikil áhrif á systkinin. „Einar var
lífsglaður og skemmtilegur strákur.
Hann var alltaf hlæjandi og lét aldrei
beygja sig. Það var nóg fyrir hann
að hlæja, þá lenti hann í refsingum.
Hans lif þarna var endalaus barátta
en hann lenti meðal annars í barna-
níðingi. Það er ekkert skrýtið þótt
hann hafi lent illa í því þegar hann
losnaði. Eini staðurinn sem hann
vildi vera á var hjá mömmu en hann
var sviptur þeim rétti. Það á enginn
að hafa þurft að lifa svona." Einar dó
árið 1980, þá tæplega 25 ára gamall.
Hann fannst ásamt vini sínum í bif-
reið við Daníelsslipp í Reykjavík. Var
bifreiðin þakin segldúk.
Misstu öll tengsl við fjölskylduna
Dvöl Ernu og Einars á Kumbara-
vogi var ekki eina vistunin sem þau
gengu í gegnum. Árið 1962 voru þau
ásamt tveimur eldri bræðrum sínum
vistuð á Silungapolli. Þeir sluppu hins
vegar við vistunina á Kumbaravogi.
„Þetta var mjög erfitt. Ég skildi ekki
af hverju við vorum höfð þarna. Ég
saknaði stöðugt mömmu og bræðra
minna. Við svona vistun missir maður
öll tengsl við fjölskylduna og ég vissi
ekki hverjum ég tilheyrði þegar ég
komst loksins þaðan út. Mamma lét
allan timann vita af því að það væri
engin þörf á því að myndum alast
upp sem munaðarleysingjar þar sem
við áttum fjölskyldu sem var tilbúin
til að taka okkur. En það var aldrei
BREIÐAVÍKURSAMTÖK
W. Jóhanna Sigurðardóttir
^ félagsmálaráðherra opn-
aði formlega heimasíðu
Breiðavíkursamtakanna í
gær, www.breidavikursamt-
okin.is.
► Samtökin voru stofnuð
29. apríl síðastliðinn en
markmið þeirra er að vera
málsvari og hagsmunasam-
tök einstaklinga sem voru
vistaðir á vegum hins opin-
bera á upptökuheimilum,
einkaheimilum og öðrum
sambærilegum stofnunum
á tímabilinu 1950 til 1980.
hlustað á hana.“
Þeim einstaklingum sem voru vist-
aðir á Breiðavík og öðrum heimilum
hafa verið boðnir sálfræðitímar til
að takast á við þann óhugnað sem
þeir upplifðu meðan á vist þeirra
stóð. Erna segir tímana hafa hjálpað
sér mikið. Þó finnst henni það sárt
að rannsókn á Kumbaravogi sé ekki
hafin. „Þetta er eina heimilið sem
hefur verið kært og barnaníðingur-
inn játað brot sitt. Samt virðist ekk-
ert vera hægt að gera. Þetta er bara
þaggað niður.“
ÞEKKIRÞÚTIL?
Hringdu í síma 510 3700 eða
sendu póst á bladid@bladid.net