blaðið - 10.07.2007, Blaðsíða 6
FRÉTTIR
ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚLÍ 2007
blaðiö
ER BILLINN
KLÁR í FRÍIÐ?
Láttu smyrja bílinn og athuga hjólbarðana hjá Hjól-
barðaþjónustu N1 og farðu áhyggjulaus í sumarfríið.
Réttarhálsi 2, Rvík, hjólbarða- og smurþjónusta 587 5588
Fellsmúla 24, Rvík, hjólbarðaþjónusta 530 5700
Fellsmúla 24, Rvík, smurþjónusta 530 5710
Ægisíðu 102, Rvík, hjólbarða- og smurþjónusta 552 3470
Langatanga 1a, Mosfellsbæ, hjólbarða- og smurþj. 566 8188
Reykjavíkurvegi 56, Hafnarfirði, hjólbarðaþjónusta 555 1538
Dalbraut 14, Akranesi, hjólbarðaþjónusta 431 1777
Tryggvabraut, Akureyri, smurþjónusta 462 1080
N1 BILAÞJONUSTA
„SafnW'tt
aís'átt- i
vrðsk'P'3
\ auV3<'°
Blaðið/Kristinn
i«r rr h !3S 95 llj 'rse *»!
í bullandi mínus
um mánaðamót
■ Um 600 manns leituðu til Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna
í fyrra ■ Ungt fólk steypir sér í gríðarlegar skuldir
Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur
ingibjorg@bladid.net
Skuldir þeirra sem leituðu að-
stoðar hjá Ráðgjafarstofu um fjár-
mál heimilanna voru í fyrra um 20
prósentum meiri en árið áður. Ungt
fólk milli tvítugs og þrítugs er í bull-
andi mínus um hver mánaðamót,
að sögn Ástu Sigrúnar Helgadóttur,
forstöðumanns ráðgjafarstofunnar.
Kreditkortaskuldir og lán með rað-
greiðslusamningi hækkuðu á árinu
um 103 prósent. Bílalán umsækj-
enda jukust um 111 prósent.
„Fólk hefur aukið aðgengi að
lánsfé og gengur á milli lánastofn-
ana. Fólk er einnig að skuldsetja
sig meira en áður. Við höfum
miklar áhyggjur af unga fólkinu
sem er búið að steypa sér í gríð-
arlegar skuldir. Yfirdráttarskuld-
irnar hafa aukist gífurlega og er
þetta orðið eins og hjá meðalfyrir-
tæki á sumum heimilum," greinir
Ásta frá. Hún vill ekki meta hver
staðan sé í ár þar sem starfsmenn
ráðgjafastofunnar hafa ekki tekið
upplýsingarnar saman.
600 báðu um hjálp
f fyrra leituðu um 600 manns
aðstoðar hjá ráðgjafarstofunni,
jafnmargir og árið áður. Einstæðar
mæður eru stærsti hópurinn sem
sækir um ráðgjöf, eða 208 alls, en
næststærsti hópurinn er einhleypir
karlar eða 145. Hjón með börn voru
117. Einhleypar konur voru 84, hjón
26 og einstæðir feður 17. Flestir
koma af höfuðborgarsvæðinu og
búa í leiguhúsnæði.
„Vandamálin eru jafnmörg og
umsækjendurnir en aðalástæður
greiðsluerfiðleikanna hafa verið
veikindi. í mörgum tilfellum er
fólk búið að spenna bogann svo
hátt að það lendir strax í erfið-
leikum bregði eitthvað út af, hvort
sem um veikindi eða atvinnuleysi
er að ræða. Flestir sem leituðu til
okkar á síðasta ári voru á milli 30
og 40 ára og það er í rauninni ekk-
ert skrýtið því að það er sá hópur
sem almennt er skuldsettastur.
Hins vegar hefur fjölgað verulega í
hópnum 20 til 30 ára,“ tekur Ásta
fram.
Vankunnátta
Hún segir vankunnáttu varðandi
fjármál mikla. „Fólk merkir ítrekað
við þann reit í umsókn sinni um
ráðgjöf. Við teljum mikla nauðsyn á
að efla þekkingu á þessu sviði. Jafn-
framt leggjum við til að húsaleigu-
bætur verði endurskoðaðar. Þær
hafa ekki fylgt leigumarkaðnum en
húsnæðismálin hvila þungt á fólki
sem á i greiðsluerfiðleikum í dag.“
GREIÐSLUERFIÐLEIKAR
Veikindi eru í 26 prósentum
tiifella sú ástæða greiðslu-
erfiðleika sem oftast er
nefnd. í 18 prósentum til-
fella er offjárfesting eða um-
frameyðsla nefnd. Vankunn-
átta í fjármálum var nefnd í
16 prósentum tilvika.
► Fasteignaveðlán voru 65
prósent ógjaldfallinna
skulda í fyrra og var hækk-
unin 48,5 prósent frá árinu
2005. Bílalán voru 4 prósent
skuidanna og var hækkunin
111 prósent. Lán með rað-
greiðslusamningi og kredit-
kortaskuldir voru 2 prósent
skuldanna og var hækkunin
103 prósent.
► Fasteignaveðlán í vanskil-
um voru tæp 5 prósent og
var hækkunin milli ára 113
prósent. Bílalán í vanskilum
voru rúm 3 prósent og lækk-
uðu um 27 prósent milli
ára. Námslán í vanskilum
voru rúmt 1 prósent og var
hækkunin tæp 200 prósent
milli ára.
ÞEKKIRÞÚ TIL?
Hringdu í síma 510 3700 eða
sendu póst á bladid@bladid.net
SUZUKI BILAR HF.
Skeifunni 17. Sími 568 5100
Verð frá 2.790 þús.
Kíktu á suzukibilar.is
er lífsstill!