blaðið - 10.07.2007, Page 8
8
FRÉTTIR
ÞRIÐJUDAGUR 10. JÚLÍ 2007
blaðiö
Bíla- og mófor-
hjóladagar
Nú eru bíladagar hjá Shell.
20% afsláttur
af Clean Plus bílahreinsivörum
CLEfiN PLUS |
Shell Q
V-Power
5 kr. afsláttur pr. líter.
á föstudögum
Auglýsingasíminn er
510 3744
GSZZIaCQSl
Stpwf'PolMi
Skógareldar í
Bandaríkjunum
Þrír eru látnir og fleiri hundruð
húsa hafa eyðilagst í skógar-
eldum í vesturhluta Bandaríkj-
anna síðustu daga.
Eldingar, mikill hiti og kröft-
ugir vindar hafa gert slökkvi-
liði og lögreglu erfitt fyrir við
slökkvi- og björgunarstörf.
Allmargir slökkviliðsmenn hafa
slasast.
Eldarnir hafa meðal annars
komið upp í ríkjunum Idaho,
Utah, Oregon, Colorado, Ariz-
ona, Montana, Suður-Dakota
og Kaliforníu. Skógareldarnir í
Utah-ríki eru þeir mestu í sögu
ríkisins og ná yfir rúmlega 114
þúsund hektara svæði.
aí
Fundnir sekir
Breskur dómstóll dæmdi í gær
þrjá karlmenn á þrítugsaldri seka
um að hafa skipulagt hryðjuverk
í Lundúnum þann 21. júlí 200;.
í dómnum segir að þeir Muktar
Said Ibrahim, Yassin Omar og
Ramzi Mohammed hafi ætlað að
sprengja sprengjur í þremur neð-
anjarðarlestum og strætisvagni.
Enn er beðið úrskurðar í máli
þriggja manna til viðbótar, sem
eru ákærðir í sama máli, en þeir
neita allir sök í málinu. aí
Missti fæturna
í Hróarskeldu
26 ára Norðmaður missti
báða fæturna í lestarslysi um
þremur kílómetrum frá hátíð-
arsvæði tónlistarhátíðarinnar
í Hróarskeldu í Danmörku
aðfaranótt gærdagsins. Að
sögn lögreglu keyrði vöruflutn-
ingalest yfir fætur mannsins.
„Við vitum ekki hvað maðurinn
var að gera með fæturna á tein-
unum, en við höfum ekki enn
náð að yfirheyra hann.“
Á vef Verdens Gang segir að
maðurinn, sem er frá Sta-
vanger, hafi legið slasaður við
teinana í 45 mínútur, þar til
lestarstjóri annarrar lestar
varð var við manninn og kall-
aði á aðstoð. aí
Reyna viðræður
við vígamenn
H Stjómvöld gefa þeim sem halda Rauðu moskunni „síðasta tæki-
færi" til að gefast upp ■ Mikið af konum og börnum innan dyra
Eftir Atla ísleifsson
atlii@bladid.net
Pervez Musharraf, forseti Pak-
istans, hefur sett saman sérstaka
samninganefnd til að vinna að því
að binda enda á umsátursástandið
við Rauðu moskuna í höfuðborg-
inni Islamabad. Ráðherrar segja þá
sem eftir eru inni í moskunni hafa
fjölda kvenna og barna í gíslingu.
Pakistanskar öryggissveitir skutu
bæði skotum og táragasi að mos-
kunni í gær og gaf ríkisstjórnin víga-
mönnunum „síðasta tækifæri" til
að að leggja niður vopn. Umsátur ör-
yggissveita hefur nú staðið i viku og
hefur 21 maður Iátist í átökunum.
Samninganefndin, sem er undir
stjórn fyrrum forsætisráðherrans
Chaudhry Shujaat Hussain, var
skipuð eftir fund stjórnvalda og
áhrifamikilla múslímaklerka þar
sem Musharraf var ráðlagt að láta
lögreglu ekki ráðast inn í moskuna.
Klerkurinn Abdul Rashid Ghazi,
sem kennt hefur fræði sín í Rauðu
moskunni, segir að enn séu 1.800
manns eftir í moskunni. Fulltrúar
ríkisstjórnarinnar telja líklegra að
Pakistanskir öryggissveitarmenn ÍLv
Umsátrið um Rauðu moskuna hefur
nú staðið í eina viku. - .
milli fimmtíu og sextíu vigamenn,
sumir með tengsl við hryðjuverka-
samtökin al-Qaeda, séu eftir í mosk-
unni og hafi tekið völdin í sínar
hendur. Afgangurinn sé svo fyrst og
fremst konur og börn.
Á fréttavef BBC segir að umsátrið
hafi hafist eftir að nemendur við
Rauðu moskuna rændu sjö Kín-
verjum sem þeir sökuðu um að reka
vændishús í Islamabad. Þrír Kín-
verjar voru drepnir í borginni Pes-
hawar í gær og telja yfirvöld drápin
tengjast atburðunum í Islamabad.
RAUÐA MOSKAN
► Trúarfræðin sem kennd eru
við Rauðu moskuna þykja
um margt minna á þau sem
talibanar boða.
► Vígamenn, sumir með
tengsl við al-Qaeda, eru
klæddir sjálfsvígssprengju-
beltum inni í moskunni.
► Þrír Kínverjar voru drepnir í
borginni Peshawar í gær.
Danmörk
Þingmenn vilja
brú yfir Kattegat
Mikill meirihluti danskra þing-
manna styður hugmyndina um
brúartengingu milli Jótlands og Sjá-
lands. Á fréttavef Jyllands-Posten
segir að danski Jafnaðarmanna-
flokkurinn sé reiðubúinn að leggja
andvirði rúmlega eins milljarðs
króna í rannsóknir á hugsanlegri
brúarframkvæmd.
Þingmenn Danska þjóðarflokks-
ins og Ihaldsflokksins eru hlynntir
hugmyndinni og Kristian Pihl Lor-
entzen, þingmaður Venstre, segir að
brú yfir Kattegat sé raunhæft fram-
tíðarverkefni danskra yfirvalda.
Yrði brúin að veruleika myndi
taka um klukkustund að ferðast
með lest milli Kaupmannahafnar
og Árósa, en nú þarf að ferðast mun
lengri leið um eyna Fjón, bæði yfir
Stóra- og Litla-Belti.
Dönsk og þýsk yfirvöld kynntu
nýverið að átján kílómetra löng brú
yrði smíðuð milli þýsku eyjarinnar
Femern og Rödby á Lálandi og
verða fullkláruð fyrir árið 2018.
STUTT
• Mannrán Mannræningjar í
Nígeríu hafa sleppt Margaret
Hill, þriggja ára breskri stúlku
sem var rænt í bænum Port
Harcourt við óshólma Níger í
Nígeríu á fimmtudaginn.
• Lögsókn Saksóknarar í Ind-
ónesíu hafa lögsótt Suharto,
fyrrum forseta landsins, vegna
þrjátíu milljarða króna sem
eru taldar hafa horfið úr styrkt-
arsjóði á vegum ríkisins í 32
ára valdatíð hans. Saksóknarar
krefjast einnig 130 milljarða
króna í skaðabætur.
• Flóð Um hundrað manns hafa
látið lífið i miklum flóðum og
aurskriðum í Kína síðustu daga.
Gríðarlegt úrhelli hefur einnig
neytt um hálfa milljón manna
til að leggja á flótta frá heimilum
sínum.
• Verðlagseftirlit Lögregla í
Simbabve hefur handtekið og
sektað yfir 1.300 kaupmenn í
landinu fyrir að brjóta lög um
verðlag. Ríkisstjórnin hafði
fyrirskipað að lækka skyldi
verð ýmissa vara um helming
til að vinna á mestu verðbólgu
í heimi, en hún er 3.700%.