blaðið


blaðið - 11.07.2007, Qupperneq 6

blaðið - 11.07.2007, Qupperneq 6
FRETTIR MIÐVIKUDAGUR 11. JULI 2007 blaðió Hjaltabakki Vitni tjá sig ekki Enginn hefur enn verið úrskurð- aður í gæsluvarðhald vegna hópslagsmálanna í Hjaltabakka í Breiðholti þann 23. júní. Að sögn lögreglu er málið í rannsókn, en erfiðlega hefur reynst að fá vitnin til að tjá sig um málið. Ekki leikur grunur á að átökin tengist fíkniefnaviðskiptum, en að öðru leyti er atburðarásin óljós. Sex manns voru handteknir í kjölfar átakanna og var þeim sleppt að loknum yfirheyrslum. Þeir eru allir frá Litháen og bú- settir hér á landi. Einn þeirra höf- uðkúpubrotnaði í átökunum eftir að hafa verið laminn með barefli í höfuðið. Annar var stunginn í bakið, en meiðsli hans reyndust ekki alvarleg. mge Fellt úr gildi Hæstiréttur hefur fellt úr gildi úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um að maður sem hringdi í lögreglu og sagðist hafa reynt að bana eiginkonu sinni sæti gæsluvarðhaldi til 15. ágúst. Konan hefur ekki kært manninn. Fylgjandi olíuhreinsistöð Halldór Halldórsson, bæjarstjóri ísafjarðarbæjar, kveðst vera fylgjandi olíuhreinsistöð standist hún kröfur sem gerðar eru til um- hverfis- og öryggismála. Bæjar- stjórinn segir olíuhreinsistöðvar sem hann skoðaði í Rotterdam og Leipzig minna á orkuverið í Svart- sengi en hann hafi búist við því að í kringum þær væri sóðalegt, að því er segir á bb.is. Canon eos 4ood með 18-55mm linsu 10,1 milljón pixla 2,5" skjár Níu punkta fókus Digic II örgjörvi 3 rammar á sek. allt að 27 rammar í burst Picture style - mismunandi litir og áhrif Hugbúnaður til RAW vinnslu í tölvu Video out Vegur aðeins 510 grömm Val á yfír 60 linsum við vél Hans Peteríe\ Súpersól til Búlgaríu 23. og 30. júlí frá kr. 29.995 (% Terra Nova PfílMERA BfíOUP Skógarhlíð 18-105 Reykjavik Sími: 591 9000 • www.terranova.is Akureyri simi: 461 1099 Hafnarfjörðursími: 510 9500 Terra Nova býður nú síðustu sætin til Goiden Sands í Búlgaríu í júlí á ótrúlegum kjörum. Gríptu tækifærið og skelltu þér til þessa vin- sæla sumarleyfisstaðar sem býður þín með frábæra strönd, einstakt loftslag, ótæmandi afþreyingarmöguleika, fjölbreytta veitingastaði og flörugt næturlíf. Kr. 29.995 Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 1 barn í hótel- herbergi í viku. Súpersól tilboð, 23. og 30. júlí. Aukavika kr. 10.000 á mann. Kr. 39.990 Netverð á mann, m.v. gistingu I tvíbýli í viku. Súpersól tilboð, 23. og 30. júlí. Aukavika kr. 10.000 á mann. Vindasamt upphaf Ágreiningur stjórnar- liða hefur oft orðið opinber, þann stutta tíma sem ný ríkisstjórn hefur starfað. lið/Brynjar.Gaútr Hjónaband án hveitíbrauðsdaga ■ 49 dagar síðan ríkisstjórnin tók við völdum ■ Stjórnarliðar á önd- verðum meiði í mörgum málum Eftir Þórð Snæ Júlíusson thordur@bladid.net Ný ríkisstjórn hefur nú setið við völd í 49 daga. Á þeim tíma hefur verið nokkuð vindasamt í kringum stjórnina og stjórnarliðar verið á öndverðum meiði í veigamiklum málum. Blaðið tekur saman helstu ágreiningsmálin sem upp hafa komið í nýju stjórninni. Aðgerðaáætlun vegna barna ogungmenna Einar Oddur neitar aö styðja Jóhönnu 7. júní: Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra leggur fram þingsályktunartillögu um aðgerða- áætlun til að styrkja stöðu barna og ungmenna. Einar Oddur Kristjánsson, þing- maður Sjálfstæðis- flokksins, neitar að styðja hana og telur þetta tilraun til að binda hendur ríkisvaldsins þegar komi að fjárlagagerð. „Á þessum tímapunkti á rikisstjórnin að sýna að hún ætli sér að sýna aðhald í ríkisrekstri á erfiðum tímum í efna- hagslifinu, i stað þess að senda sam- félaginu röng skilaboð með því að samþykkja aðgerðaáætlunina.“ Afstaða Einars Odds kom Jó- hönnu á óvart. Hvalveiðar í atvinnuskyni Þórunn vill ekki veiða hval 10. júní: „Ég er andvíg hvalveiðum í atvinnuskyni,“ segir Þórunn Svein- bjarnardóttir umhverfisráðherra í viðtali við Morgunblaðið. Hún segir ennfremur að hval- veiðar snúist „um ímynd íslands á al- þjóðavettvangi. Ef við lítum á þær út frá efnahagslegu hliðinni, þá hefur engum tekist að sannfæra mig um það ennþá að hval- veiðar i atvinnuskyni borgi sig.“ Einar K. Guðfinnsson, landbún- aðar- og sjávarútvegsráðherra, er henni ósammála og segir: „Fyrir mér eru hvalveiðarnar einfaldlega hluti af auðlindanýtingu okkar.“ Hann segist því ekki sjá fram á neina stefnubreytingu hjá ríkis- stjórninni í hvalveiðum. Kvótakerfiö Hörð gagnrýni Sturlu 17. júní: Sturla Böðvarsson, forseti Alþingis, gagnrýnir kvótakerfið og segir að „áform okkar um að byggja upp fiskistofna með kvótakerfinu sem stjórntæki virðast hafa mistek- ist“. Einar Oddur Kristjánsson tekur undir gagnrýnina og lætur hafa eftir sér að það hljóti hver einasti maður „sem er ekki blindur og heyrnarlaus að sjá að þetta hefur mistekist“. Geir H. Haarde forsætisráðherra segir að ekki megi gleyma kostum kvótakerfisins og Árni Mathiesen fjármálaráðherra ásakar Einar Odd um að hafa „alla tíð unnið að því að bora göt á kvótakerfið“. Einar Oddur svarar honum með því að segja að Árni ætti að hugsa sig um áður en hann láti frá sér „slík end- emis ummæli“. Efnahagsbrot Björgvin og Björn hvor á sínum pólnum 21-22 júní: Helgi Magnús Gunnars- son, saksóknari efnahagsbrota, gagn- rýndiþau úrræði sem stæðu embætti hans til boða og ferli efnahagsbrota hjá eftirlitsstofnunum. Björn Bjarna- son dómsmálaráð- herra tók undir gagnrýni Helga og sagðist hafa „oftar en einu sinni lýst þeirri skoðun minni að ekki eigi að ljúka málum eftirlitsstofnana á vegum ríkisins á bak við luktar dyr“. Björgvin G. Sigurðsson viðskipta- ráðherra var ekki á sömu skoðun og sagði að það væri ekkert sem kalli á að „þessar heimildir verði teknar af eftirlitunum“. Hafrannsóknarstofnun Sovéskt kerfi 21-23. júní: Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra segir á bloggsiðu sinni að hann telji að Hafrannsókna- stofnun eigi að færast frá sjávarút- vegsráðuneytinu. „Það er einfald- lega rakinn hagsmunaárekstur þegar sama ráðuneyti fer með mat á fiskistofnum og líka ákvarðanir um hversu mikið má veiða.“ Hann bætir við að ofveiði megi rekja beint til stjórnmálamanna og að þeir hafi byggt upp „sovéskt kerfi í kringum Hafró, jj þar sem dæma- lausri þöggun hefur verið beitt á j. andófsraddir“. Einar K. Guð- .4ÍK finnsson, landbúnaðar- og sjávar- útvegsráðherra, segir þetta vera einkaskoðun Össurar og alls ekki á dagskrá ríkisstjórnarinnar. Aðkoma ríkisins aö rekstri Strætó Á öndverðum meiði 27. júní-5.júlí: Árni Mathiesen segir við Morgunblaðið að ríkið hafi „engar áætlanir um aðkomu að þessu málefni," og á þar við þátttöku ríkis- ins í rekstri strætis- vagnakerfis á höf- uðborgarsvæðinu. Þórunn Svein- bjarnardóttir var ekki sammálaÁrna og sagði eðlilegt að skoða þátt ríkisins i eflingu almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu. „Ég er að sjálfsögðu á því að taka þurfi meira tillit til umhverfisins í skattastefnu og að við getum nýtt okkur þær sam- göngur sem menga minna. Þetta er eitt af þeim atriðum sem tekin verða til gaumgæfilegrar skoðunar." Einkavæðing orkufyrirtækja Einkavæðing eða ekki 4. júli: Baldur Guðlaugsson, for- maður einkavæðingarnefndar og ráðuneytisstjóri í fjármálaráðuneyt- inu, segir það hafa verið ákvörðun af hálfu ríkisins að setja skilmálana í sölulýsingu á hlut þess í Hitaveitu Suðurnesja þannig fram að orkufyr- irtæki í opinberri eigu gætu ekki boðið í hlutinn. „Það þykir ekki eig- inleg einkavæðing ef annað orkufyrir- tæki í opinberri eigu keypti hlutinn." Þessi stefna var mörkuð á vegum Árna Mathiesen, sem var fjármála- ráðherra þegar hluturinn var boð- inn til sölu og er enn. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utan- ríkisráðherra er ekki sammála og sagði við fréttastofu Útvarps að „orku- fyrirtæki á almennum markaði eiga að vera ( eigu hins opinbera“. Björg- vin G. Sigurðsson bætti við: „Það er ekki ákjósanlegt að fyrirtæki séu einkavædd án pólitískrar umræðu.“

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.