blaðið - 11.07.2007, Síða 8
8
FRÉTTIR
MIÐVIKUDAGUR 11. JÚLl' 2007
blaðið
Bandaríkin
N-orðið jarðað
Bandarísku réttindasamtökin
NAACP stóðu fyrir sérstakri
athöfn í Detroit á mánudag-
inn, þar sem orðinu „nigger“
var komið fyrir í kistu með
svörtum plastrósum og hún
jörðuð. Orðið hefur verið notað
í rasískum tilgangi um margra
áratuga skeið, en með athöfn-
inni er vonast til að því sé lokið
og að orðið verði framvegis ekki
notað í enskri tungu.
„í dag jörðum við ekki einungis
n-orðið, heldur fjarlægjum það
einnig úr vitund okkar,“ sagði
Kwame Kilpatrick, borgarstjóri
Detroit, sem sagðist jafnframt
vonast til að orðin „pimps“ og
„hos“ færu sömu leið áður en
langt um líður.
aí
STUTT
• Aftaka Zheng Xiaoyu, fyrrum
forstjóri kínversku Matvæla- og
lyfjastofnunarinnar, hefur verið
tekinn af lífi fyrir spillingu.
Zheng var dæmdur fyrir að
hafa þegið mútur frá lyfjafyrir-
tækjum, en annars flokks lyf
þeirra orsökuðu dauða fjölda
Kínverja.
• Kuldakast Þrír hafa látist
í Argentínu og Chile í sjald-
gæfu kuldakasti sem hefur
gengið yfir Suður-Ameríku
síðustu daga. Þannig snjóaði
í Buenos Aires, höfuðborg
Argentínu, í fyrsta sinn í 89 ár
á mánudaginn.
• Óvinsældir Vinsældir George
Bush Bandaríkjaforseta mælast
nú 29 prósent í Bandaríkjunum
og hafa aldrei mælst minni,
samkvæmt nýrri skoðana-
könnun dagblaðsins USA Today.
Einungis 68 prósent kjósenda
repúblikana segjast nú styðja
forsetann.
• Eldgos Um tíu þúsund Ind-
ónesar hafa neyðst til að yfir-
gefa heimili sín eftir að mikið
eldgos hófst í Gamkonora-fjalli
í Norður-Maluku-héraði í gær.
• Mannfall Sautján manns, þar
af tólf skólabörn, létust og tugir
særðust í sjálfsvígssprengjuárás í
borginni Dehrawood í suður-
hluta Afganistans í gær.
Bíla- og mófor-
hjóladagar
Nú eru bíladagar hjá Shell.
20% afsláttur
af Clean Plus bílahreinsivörum
CLEftN PLUS
AUTOCARE PRO
Shell ©
V-Power
5 kr. afsláffur pr. lítra.
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna
Kristín A. Árnadóttir segir það vera á
allra vitorði að Tyrkir leggja geysilega
mikið í kosningabaráttuna.
Bjóða fulltrúum
fátækra ríkja heim
■ Tyrknesk stjórnvöld leggja mikið í baráttuna fyrir sæti í öryggis-
ráðinu M Á brattann að sækja fyrir okkur, segir Kristín Árnadóttir
Tyrknesk stjórnvöld hafa boðið
fulltrúum fimmtíu fátækustu ríkja
heims á þriggja daga ráðstefnu í
Istanbúl til að afla fylgis við fram-
boð sitt til öryggisráðs Sameinuðu
þjóðanna. Á fréttavef Turkish Da-
ily News segir að Tyrkir hafi boðist
til að hýsa árlegan fund fátækustu
ríkja heims í ár, en Tyrkir sækjast
líkt og Islendingar eftir sæti í örygg-
isráðinu starfsárin 2009 til 2010.
Kristín A. Árnadóttir, sem mun
stýra framboði íslands til öryggis-
ráðsins, segir það vera á allra vitorði
að Tyrkir leggi geysilega mikið í
þessa kosningabaráttu. „Þeir ætla
greinilega að gera allt sem í þeirra
valdi stendur til að tryggja sér sætið.
Við verðum að gera okkur grein
fyrir því að það er á brattann að
sækja fyrir okkur í þessu máli, en
við höfum unnið ötullega að fram-
boðinu, bæði í ráðuneytinu og hjá
fastanefndinni hjá Sameinuðu þjóð-
ununum í New York.“
ÖRYGGISRÁÐIÐ
(slendingar hafi áhyggjur
Turkish Daily News segir að
Island og Austurríki, sem keppa
ásamt Tyrkjum um tvö sæti, hljóti
að hafa áhyggjur af ráðstefnunni.
Aðferðin sé betri en að láta sendi-
herra ferðast landa í millum í leit að
loforðum um atkvæði. „Svo virðist
sem ísland reki lestina. Austurríki
nýtur stuðnings meðal 27 aðildar-
ríkja Evrópusambandsins. ísland
nýtur stuðnings Norðurlandanna,
en leitar einnig atkvæða meðal
smærri og meðalstórra ríkja og
nýtur þar talsverðs fylgis. Tyrkland
treystir á stuðning múslímarikja."
I greininni segir að Tyrkir hafi
einnig leitað til ESB-ríkja og um
helmingur þeirra hafi lofað þeim
atkvæði í síðari umferð kosning-
►
ísland, Austurríki og Tyrk-
land keppa um tvö sæti í
öryggisráði Sameinuðu
þjóðanna starfsárin 2009
til 2010.
► Kosningin fer fram á haust-
mánuðum 2008.
► Fimmtán ríki eiga sæti í
öryggisráðinu hverju sinni,
þar af fimm fastaríki með
neitunarvald.
anna. Þó ber að hafa í huga að kosn-
ingin er leynileg og ekki standa öll
ríki við gefin loforð. Þetta er í þriðja
sinn sem Tyrkir sækja um sæti í
öryggisráðinu, en bæði framboðin
á tíunda áratug síðustu aldar voru
dregin til baka vegna þess að líkur
á kjöri voru taldar litlar.
Kosningum
flýtt
Jaroslaw Kaczynski, forsætis-
ráðherra Póllands, vék aðstoðar-
forsætisráðherranum Andrzej
Lepper úr starfi á mánudaginn,
en Lepper hefur verið sakaður
um að þiggja mútur. Um leið dró
Lepper Sjálfsvarnarflokk sinn
úr ríkisstjórninni. Forsætisráð-
herrann segir að snemmbúnar
kosningar í haust kunni að vera
eina leiðin til að leysa stjórnar-
kreppuna. Stjórnarandstaðan
standi í vegi fyrir myndun
minnihlutastjórnar. aí
Lugovoi ekki
framseldur
Bresk stjórnvöld hafa brugðist
ókvæða við þeirri ákvörðun
Rússa að neita að framselja
Andrei Lugovoi til að hægt sé
að ákæra hann fyrir morðið á
rússneska njósnaranum Alex-
ander Litvinenko í London.
Talsmaður breska utanríkisráðu-
neytisins sagði viðbrögð Rússa
vera óásættanleg, en Lugovoi er
grunaður um að hafa eitrað fyrir
Litvinenko á fundi í Lundúnum á
síðasta ári með þeim afleiðingum
að hann lést. aí
Leiðbeina um
sprengjugerð
Á heimasíðum hliðhollum hryðju-
verkasamtökunum al-Qaeda
hefur undanfarið verið hægt að
finna leiðbeiningar um hvernig
megi framleiða sprengjur og
kveikibúnað úr farsímum.
Á fréttavef Sky segir að leiðbein-
ingarnar minni á sprengjur sem
fundust í Lundúnum og Glasgow.
Fram kemur að sprengjur sem
þessar muni ekki valda sérlega
miklu manntjóni, en sálræn áhrif
þeirra séu mikil ef þær springa í
borgum á Vesturlöndum. a
Hermenn gerðu áhlaup á Rauðu moskuna
Blóðbað í Islamabad
Rúmlega fimmtíu íslamistar og
tíu hermenn létust í áhlaupi örygg-
issveita á Rauðu moskuna í pakist-
önsku höfuðborginni Islamabad
aðfaranótt gærdagsins. Nokkrir
islamistar, þar á meðal múslíma-
klerkurinn Abdul Rashid Ghazi,
króuðu sig af í kjallara moskunnar
þegar áhlaupið hófst.
Samningaviðræður leiðtoga ís-
lamistanna og samninganefndar
stjórnvalda höfðu engu skilað og
því var tekin ákvörðun um áhlaup.
Fimmtíu konum og börnum hið
minnsta sem hafði verið haldið í
gíslingu var bjargað í aðgerðinni.
Skothríð gærdagsins stóð í
margar klukkustundir, en langan
tíma tók að tryggja öll herbergi
moskunnar sem eru rúmlega
sjötíu. Að sögn varð Ghazi fyrir
skotum þegar hann reyndi að
gefast upp, en nokkrir samverka-
menn hans skutu þá í átt að her-
mönnum sem svöruðu í sömu
mynt og skutu klerkinn. Umsátur
öryggissveita um moskuna stóð í
eina viku.