blaðið - 11.07.2007, Side 13
MIÐVIKUDAGUR 11. JULI 2007
KOLLAOGKÚLTÚRINN
kolbrun@bladid.net
wp Það sem hrífur mig mest
við Bandaríkin er hvað
foreldrar hlýða börnum
sínum auðveldlega. játvarðurvm.
Hulda Vilhjálmsdóttir „Ég set alla mína
orku í að vinna að myndlistinni. Ég vil nota
þessa kðllun."
Hulda Vilhjálmsdóttir sýnir í Start Art
Blaöið/Frikki
Nálægt guðdómnum
Hulda Vilhjálmsdóttir
opnaði nýlega sýningu
á málverkum og teikn-
ingum í Start Art. Allflest
verkin seldust strax fyrsta
daginn.
Eftir Kolbrúnu Bergþórsdóttur
kolbrun@bladid.net
I Start Art, Laugavegi 12B, sýnir
Hulda Vilhjálmsdóttir nýleg mál-
verk og teikningar. Flest verkin
seldust strax á opnunardaginn.
„Málverkin eru máluð frá
áhrifum af íslensku landslagi sem
er fullt af krafti,“ segir Hulda. „Ég
mála með stórum penslum og leyfi
pensilfarinu að njóta sín frjálslega.
Teikningarnar sem ég sýni eru
af stúlku sem er um það bil tíu
ára gömul og er frjálsleg ( fasi en
einnig feimin. Ætli þessi stúlka
MENNINGARMOLINN
sé ekki bara ég þegar ég var tíu
ára. Landslagsmálverkin má svo
túlka sem sýn hennar á landslagið.
Landslagið er hrátt og villt og ná-
lægt guðdómnum. Mér hefur alltaf
fundist að maður gæti nálgast Guð
í gegnum náttúruna
Markmiðið að þroskast
Hulda segir að breytingar hafi
orðið á stíl sínum með árunum. „Á
tímabili var ég miklu persónulegri
í myndum mínum. Núna vinn
ég meira með ákveðin efni en ég
reyni samt að koma reynsluheimi
mínum inn i verkin. Mér finnst
það heiðarlegast.
Þegar ég var í Myndlistaskól-
anum leiddist mér að vinna með
ákveðna hugmynd, ég vildi frekar
vinna með flæði og spinna jafn-
óðum. Hin expressjóníska tjáning
heillar mig. Um daginn fór ég á
Cobra-sýninguna í Listasafni Is-
lands og þar fann ég einmitt þá
Örlagaríkt einvígi
Á þesum degi árið 1804 í einvígi
í New Jersey skaut fyrrum varafor-
seti Bandaríkjanna, Aaron Burr,
pólitískan andstæðing sinn, Alex-
ander Hamilton, fyrrum fjármála-
ráðherra. Hamilton lést daginn eftir
af sárum sínum.
Hamilton var lögfræðingur,
yfirmaður í Bandaríkjaher og
pólitískur hugmyndafræðingur auk
þess að vera ráðherra. Hann var
mikill vinur George Washington
Bandaríkjaforseta.
Forsaga einvígisins var sú að
dagblað birtifrétLum miður.falleg
orð sem Hamilton hafði látið falla
í kvöldverðarboði um Burr, en
þeir höfðu eldað grátt silfur um
nokkurn tíma. Burr krafði Hamil-
ton um afsökunarbeiðni en sá síð-
arnefndi sagðist ekki kannast við
orðin. Vinir beggja reyndu að koma
í veg fyrir uppgjör en Hamilton og
Burr ákváðu einvígi sem fór fram á
vesturbakka Hudson-árinnar, sem
var algengur einvígisstaður og þar
hafði elsti sonur Hamiltons látið
lífið þremur árum fyrr. Hamilton
særðist 1 einvíginu og lést næsta dag
eftir-töluverðar þjáningar......
barnslegu tjáningu í þroskuðum
stíl sem hefur alltaf heillað mig. Ég
hef unnið lengi við myndlist. Strax
í leikskóla kom í ljós að ég hafði
hæfileika til að mála. Ég byrjaði að
rækta hæfileika mína á unga aldri
og hef alltaf haft að markmiði að
þroskast í list minni. Ég heillast af
málurum eins og Rósku og Krist-
jáni Davíðssyni og öðrum tilfinn-
ingamálurum. Manni finnst eins
og þessir málarar séu með tárin í
augunum þegar þeir mála.“
Vil nota þessa köllun
Á heimasíðu sinni huldavil.com
rekur Hulda lífshlaup sitt á ein-
lægan og opinskáan hátt og þar
kemur meðal annars fram að hún
hefur farið í áfengismeðferð. „Það
skipti miklu máli fyrir mig sem
listamann að hætta að drekka,"
segir Hulda. „Áður var ég ekki eins
afkastamikil og ég er nú. Ég mál-
aði mjög dökkar myndir, í þeim
KONAN
Hulda Vilhjálmsdóttir er
fædd árið 1971.
►
Hún útskrifaðist úr málara-
deild Listaháskóla íslands
árið 2000.
Arið 1999 var hún valin úr
hópi nemenda í Myndlista-
og handíðaskólanum til að
sýna á sýningunni Málverk-
ið á 21. öldinni á Jótlandi.
var ekki mikill léttleiki og form-
skynið var ekki eins sterkt og það
er núna. Ég set alla mína orku í að
vinna að myndlistinni. Ég vil nota
þessa köllun. Þegar ég gef af mér
í málverkið finnst mér ég vera ná-
lægt Guði og kærleikanum og það
skiptir mig máli. Maður getur ekki
allt einn og það er gott að hafa æðri
mátt með sér.“
Sýning Huldu stendur til 28. júlí.
'v$tj v ..........
F1 fiBnlilB aaRl
Bilson selur
í London
Haraldur Bilson seldi verk
fyrir tugi milljóna króna á
opnunarhelgi sýningar sinnar í
Albemarle-galleríinu í London.
Verk hans eru seld á töluvert
hærra verði í London en í
Reykjavík.
Þessi sýning er sú nítjánda sem
Bilson setur upp í London frá
því að hann hélt sína fyrstu
sýningu í borginni 1969. íslend-
ingar þekkja vel til verka Bils-
ons enda hefur hann haldið tíu
sýningar hér á landi frá 1996
og mun sýna að nýju í Galleríi
Fold á Menningarnótt í ágúst
komandi.
Albemarle-galleríið er stað-
sett á horni Piccadilly og
Albemarle Street í West End
steinsnar frá Royal Academy.
Sýningin stendur til 21. júlí.
Ferðabók
fjölskyldunnar
Hjá Máli og
menningu
er komin út
Ferðahandbók
fjölskyldunnar
eftir Bjarnheiði
Hallsdóttur og
Tómas Guð-
mundsson. Bókin er endurút-
gefin í handhægu kiljubroti
með plastkápu sem gerir hana
meðfærilegri til ferðalaga.
Höfundar Ferðahandbókar
fjölskyldunnar hafa samanlagt
unnið í áratugi við ferðaþjón-
ustu á íslandi, meðal annars
við að skipuleggja ferðir um
landið fyrir útlendinga. Sú
reynsla nýttist þeim vel við
vinnslu bókarinnar, ekki síður
en að ferðast með fjölskyldu
sína. Staðirnir sem urðu fyrir
valinu eru flokkaðir eftir
landshlutum og farið réttsælis
í kringum landið.
AFMÆLI í DAG
Giorgio Armani hönnuður, 1934
E. B. White rithöfundur, 1899
Yul Brynner leikari, 1915
M
MÚLTÍ-VÍT
Náttúruleg fjölvitamin
með steinefnum
Vtfín bxtiefni tyrir þoriir klcoding*
180 töflur
Inniheldur 22 valin bætiefni,
12 vítamín og 10 steinefni.