blaðið - 11.07.2007, Blaðsíða 16
24
MIÐVIKUDAGUR 11. JÚU 2007
blaöiö
ÍÞRÓTTIR
ihrottir@bladid.net
Hefur verðmiðinn á Thiago Motta til að mynda
verið lækkaður um nokkrar milljónir. Ekkert
bendir til að Eiður Smári sé á leið frá liðinu þrátt
fyrir að spákonur enskra miðla haldi því fram.
SKEYTIN INN
J'avier Saviola
hefur skrifað
undir samning
ð Real Madrid en
Frank Rijkaard
þjálfari Barcel-
ona taldi engin
not fyrir hann á austurströndinni.
Fæst þar digur biti fyrir slikk en
Saviola hefur blómstrað nokkuð
reglulega í hvert skipti sem hann
hefur verið lánaður frá Barca.
á er fullyrt
á Spániað
__ hjá Real sé
vilji til að kaupa
Juan Antonio
Reyes en hingað
tilhefurverið
blásið á slíkar fréttir frá Bernabeau.
Er hann heimilislaus eins og sakir
standa enda vill hann ekki aftur
til Arsenal en á Spáni hafa vonbiðl-
- amir ekki staðið í röðum mikið
þrátt fyrir að ekki sé langt síðan
Reyes var efnilegasti leikmaður
landsins og byrjun hans hjá Arsenal
á sínum tíma hafi verið frábær.
Nýjasti leik-
maðurWest
Ham, Craig
Bellamy, hefur
riíjað upp gamlar
ræður sínar og dá-
samarnúWestHam
og umgjörð alla f klúbbnum. Lofar
** hanngullioggrænumíbúningi
liðsins en gleymir kannski að enginn
efast um hæfileikana á vellinum
heldur er hans vandamál annars
eðlis og af sálfræðilegum toga sem
sérfræðingar á geðheilbrigðissviði
verða að ráða bót á.
Væntingar
vegna komu
David Beck-
ham em ástæða
dapurs gengis LA
Galaxy í Bandaríkj-
unum samkvæmt
þjálfara liðsins,
AJexi Salas. Er félag hans í neðstu
sætum og vill hann meina að koma
evrópsku stjörnunnar hafi haft nei-
kvæð áhrif á aðra leikmenn liðsins.
Beckham verður formlega kynntur
til leiks á föstudaginn kemur en
mun leika sinn fyrsta leik eftir viku.
Nýr þjálfari
Reaf Madrid,
Bernd
Schuster, hefíir
löngum lofað
upp í ermi sér og
heldurþvíáfram
nú. Lofar hann stuðningsmönnum
liðsins sókndjörfum sambabolta og
ætlar að færa gleði aftur í leik hinna
hvftklæddu. Hvort titillinn vinnst
þannig er kannski annað mál en það
er reyndar annað sem Þjóðverjinn
hefur lofað næstu leiktíðina.
*
Utsölumar að
hefjast í Evrópu
■ Heiðar og Grétar Rafn á faraldsfæti? H Blóð rennur vart í
Wenger ■ Chelsea vill Alves
Eftir Albert Örn Eyþórsson
albert@bladid.net
Nú loks virðist handagangur
kominn í öskjuna hjá evrópskum
félagsliðum hvað kaup og sölu á
leikmönnum varðar en tiltölulega
rólegt hefur verið yfir markaðnum
undanfarnar vikur og fyrir utan
kaup Barca á Thierry Henry og Li-
verpool á Fernando Torres eru stóru
stjörnurnar sem nefndar hafa verið
líklegar til flutnings ennþá allar á
sínum stað.
Flestir undrast mest hversu ró-
legur Arsene Wenger þykir vera en
gengi Arsenal á síðasta tímabili var
vel undir markmiðum. Sala aðal-
stjörnu liðsins þykir bæta gráu ofan
á svart og enn hefur Wenger ekki
opnað budduna að ráði. Verra er að
aðrar stjörnur liðsins, Fabregas og
Rosicky, eru báðir á kauplista stór-
liða á Italíu og Spáni. Bakari Sagni
er víst á leiðinni en hann er enginn
Thierry Henry.
Fjendurnir hjá Manchester og
Chelsea hafa aftur á móti gert góð
kaup og ætla sér fleiri. United er að
landa Carlos Tevez og Chelsea nældi
í Florent Malouda. Þá vill Mourinho
fá Daniel Alves frá Sevilla og eru við-
ræður um það f gangi.
Fararsnið á Heiðari Helgusyni
Allnokkur félög hafa lýst yfir
áhuga á að fá landsliðsmanninn
Heiðar Helguson til sín fyrir næstu
leiktíð en öruggt þykir orðið að
hann yfirgefi herbúðir Fulham
næstu dagana.
Forráðamenn Fulham hafa átt í
viðræðum við fólk frá West Brom-
wich Albion og Charlton Athletics
síðustu daga en Heiðar hefur lítið átt
upp á pallborðið hjá Fulham síðan
hann kom þangað frá Watford fyrir
tveimur árum. Þykir hann ekki
hafa staðið undir væntingum en hjá
Watford var hann með markahæstu
mönnum en hefur ekki náð að fylgja
því eftir hjá Fulham. Skoraði hann
aðeins fjögur mörk með liðinu í 30
leikjum í vetur og spilaði aðeins sjö
leiki frá upphafi til enda.
Grétar Rafn enn milli tanna
Annað fslenskt nafn sem vart
verður við í erlendum miðlum
er Grétar Rafn Steinsson hjá AZ
Alkmaar í Hollandi. Um skeið hefur
verið fullyrt að Middlesbrough hafi
hug að klófesta kappann enda mikið
efni. Þrátt fyrir að Grétar sjálfur
hafi gert og geri enn lítið úr slíkum
sögusögnum eru slfkar flugufregnir
vart komnar á kreik að ástæðulausu.
Fastlega má búast við að þangað fari
hann gefist þess kostur enda enska
deildin mun þekktari og sterkari en
sú hollenska.
Útsölurnar að hefjast
Hvorki Barcelona né Real Madrid
eru hætt kaupum. Hjá Barca er
mönnum f mun að losa sig við
varamenn sem ekki komast í liðið
og hafa sett nokkra á útsölu. Hefur
verðmiðinn á Thiago Motta til að
mynda verið lækkaður um nokkrar
milljónir. Ekkert bendir til að Eiður
Smári sé á leið frá liðinu þrátt fyrir
að spákonur enskra miðla haldi því
fram.
Hjá Real er nýr þjálfi rétt að byrja.
Pepe er kominn frá Porto og Saviola
frá Barca en Schuster hefur lofað
stærri bitum en það og kemur nafn
Kaka oftar upp en önnur.
Efnilegir íshokkfleikmenn Bjamarins
í víking til Svíþjóðar
Fimm leikmenn yngri flokka íshokkífélagsins
Bjarnarins í Grafarvoginum halda senn til Sví-
þjóðar í æfingabúðir, að hluta til af illri nauðsyn
enda aðstaða þeirra yfir sumartfmann hérlendis
með lakasta móti.
Strákarnir Gísli Örn Guðbrandsson, Ólafur Hrafn
Björnsson, Daníel Freyr Jóhannsson, Arnar Freyr
Ingvarsson og Snorri Sigurbergsson hafa allir æft
íshokkí í nokkur ár og greiða að mestu leyti sjálfir
fyrir ferð sína til Svíþjóðar. Er ferðin í og með farin
til að læra nýja hluti en einnig vegna þess að yfir
hásumartímann er ekki hægt að æfa eða stunda ís-
hokkí á heimavelli Bjarnarins í Egilshöll. Er skauta-
höllin þar lokuð vegna viðhalds fram í ágúst og því
verður að leita annað til að halda sér við.
Blankheit í F1
Aðalökumaður Spyker-liðs-
ins í Formúlu 1, Christijan
Albers, verður að taka pokann
sinn þar sem blankheit eru
farin að segja til sín. Dró einn
styrktaraðiíi liðsins að greiða
og á liðið enga varasjóði til
að bregðast við slíku. Verður
Albers því að hverfa frá enda
hvað dýrastur á fóðrunum.
Goðsögn hættir
Valentino Rossi sem er Mi-
chael Schumacher þeirra mót-
orhjólakappa hefur tilkynnt
að hann muni hætta keppni
árið 2010. Rossi hefur unnið
allt sem hægt er að vinna á
tveimur hjólum og hefur mik-
inn áhuga á að reyna fyrir sér
annaðhvort í Formúlu 1 eða í
rallakstri. Hefur sést til hans
prófa sig áfram undir stýri
hjá Ferrari og hann á að baki
þrjár kappaksturskeppnir í
heimalandinu Italíu.
Bros á varir
Munnvik hins feitlagna og
arfafúla kylfings Colin Montg-
omerie hreyfðust lítið eitt
í vikunni þegar hann vann
loks mót eftir 19 mánaða bið.
Hafði karlinn prófað allt til
að bæta árangur sinn, frá
fjallagrösum til þess að henda
út vini sínum og kylfusveini
til margra ára, og nú loks sér
aftur í Monty gamla sem getur
enn á góðum degi hangið í
þeim allra bestu.
Arftaki Gretzkys
Hinn nítján ára gamli íshok-
kímiðvörður, Sidney Crosby,
sem fjölmargir telja næsta
Wayne Gretzky í íshokk-
íheimum, hefur skrifað undir
nýjan samning við Pittsburg
Penguins sem færir honum
2,8 milljarða króna á næstu
fimm árum. Crosby er yngsti
leikmaður NHL til að verða
valinn verðmætasti leikmaður
leiktíðarinnar síðan Gretzky
var og hét.