blaðið - 11.07.2007, Qupperneq 23
blaóió
MIÐVIKUDAGUR 11. JÚLl’ 2007
31
Myndlistarsýning Geggu á Thorvaldsen
Gestirnir sjá sáöfrumur og
leghálsa í listaverkunum
Myndlistarkonan Helga Birgis-
dóttir, jafnan kölluð Gegga, opn-
aði myndlistarsýninguna Fjör og
frævun á Thorvaldsensbar þann í.
júní síðastliðinn. Sýningunni lýkur
á sunnudag og munu 30% af sölu-
hagnaði sýningarinnar renna til
ABC barnahjálpar.
„Mér hefur alltaf fundist svo frá-
bært þegar tónlistarfólk býr til pen-
inga og lætur renna til mannúðar-
mála. Eg ákvað því að reyna að gera
eitthvað svipað, enda hef ég alltaf
haft áhuga á mannúðarmálum og
mun reyna að sinna þeim áfram,“
segir Gegga sem byrjaði listaferil
sinn fyrir 17 árum.
„Ég hef verið að mála og stunda
myndlist síðan ég átti stelpuna
mína fyrir 17 árum. Ég fór í Listahá-
skólann 1997, en hef einnig starfað
sem ljósmóðir og hjúkrunarkona
með. Ég er einnig í leirlist, sem er
í rauninni mitt sérfag. Ég tók þátt
í opnun Listasumars á Akureyri,
en þar er í gangi sýningin Vösumst
í Ketilhúsinu, sem sýnir vasa í all-
skyns útgáfum.“
Sýningin Fjör og frœvun er öll
unnin með akrýllitum á striga.
„Þetta er nýlegur stíll hjá mér, sem
þróaðist út frá öðrum síðasta vetur.
Fólk er að sjá allskyns fyrirbæri út
úr þessu; frumur, sáðfrumur, leg-
hálsa og slíkt sem kannski tengist
ljósmæðrastarfinu hjá mér og snýst
um að kíkja inn í líkamann. Aðrir
sjá meira af náttúrunni, blóm og
slíkt. { raun er þetta lífið að kvikna,
hvort sem það er að gerast í manns-
líkamanum eða úti í náttúrunni,"
sagði Gegga að lokum.
BLOGGARINN...
0g sveiattann
„Ruslatunnu vikunnar, mánaðaríns og
jafnvel ársins fær Sveinn Andrí, lögmað-
ur Sögunauðgarans, sem lætur sér ekki
nægja að fagna sýknudómi yfir skjótstæð-
ingi sínum heldur er hann stöðugt að
sparka íkonuna sem fyrir árásinni varð og
síðast núna í Kastljósi kvöldsins. Að geta
setið, uppfullur af réttlætiskennd og verið
stórlega misboðið fyrir hönd skjólstæð-
ings síns, vegna þessara skammaríegu
málaloka ermér fyrirmunað að skilja. Sum-
ir hefðu nú þakkað pent fyrir sig og látið
sig hverfa hljóðlega eftirað hafa fengið
sýknudóm á vægast sagt vafasömum
forsendum. Og sveiattann."
Jenný Anna Baldursdóttir
jenfo.blog.is
Fordæming
„Ég fordæmi framgöngu Sveins Andra
Sveinssonar, verjanda nauðgarans á Hót-
el Sögu. I stað þess að fagna sýknu yfir
ofbeldismanninum heidur Sveinn Andri
áfram að ráðast að fórnarlambi nauðgun-
arinnar. M.a. í blaöagrein i Morgunblaðinu
og íKastljósi. [...] Ég persónulega flokka
framgöngu Sveins Andra til siðblindu og
kvenfyrírlitningar á háu stigi.[...] Þó að ég
hafi aldrei lent í kynferðislegu ofbeldi þá
hef ég oft orðið fyrir óvæntum árásum og
ofbeldi sem hafa framkallað ofsafengin
viðbrögð af minni hálfu sem að yfirveguðu
máli hefði átt að afgreiða öðruvísi. Það
er alltaf sá sem á upptökin sem ber sök
á niðurstööunni. Nema íþessu máli. “
Jens Kr. Guðmundsson
jensgud.blog.is
Orðhengilsháttur
„Margir hafa sagt sína skoðun á dómi
Héraösdóms Reykjavíkur i meintu nauðg-
unarmáli sem kveðinn var upp ísiðustu
viku. [...] I mínum huga eru þær forsendur
sem dómurinn leggur einhver furöulegasta
röksemdafærsla sem ég hefséð í nýlegum
dómum. Það er þvírökrétt að niðurstaðan
sé ísamræmi viö forsendurnar. [...] I skiln-
ingi alls þorra fólks hefur fólk veriö beitt
ofbeldi þegar það gengur skrámað, marið
og blóðugt af vettvangi. Að túlka það á ann-
an hátt hlýturað mínum skilningi að vera
hreinn og klár orðhengilsháttur. Hvenær er
nauðgun nauðgun?“
Sveinn Ingi Lýðsson
sveinni.blog.is
ÚTSALA
Friendtex 2007
Lokum vegna sumarleyfa mánudaginn 16 júIí
opnum aftur 1. ágúst.
Komið og gerið frábær kaup
einnig mikið úrval af eldri
fatnaði á kr 990.
2 fyrir 1
(Á einungis við um eldri fatnað)
Hörjakki
Hörbuxur
Gallabuxur
Kjóll
Herrapeysa
Pils
Hnébuxur
Herraskyrta
Sandalar
Áður
6.500
5.200
8.800
5.400
6.000
6.400
8.800
5.400
5.500
■ i- ■
Nú
2.990
1.900
3.900
2.000
2.900
2.900
3.900
2.500
1.990
www.friendtex.is Sími 568 2870
Opnunartími mánudaga -föstudaga 10.00 - 18.00
Lokað á laugardögum