blaðið - 24.07.2007, Blaðsíða 1
ORÐLAUS»j
136. tölublnð 3. árgangur
Þriðjudagur
24. julí 2007
World Class-útrásin
Ný plata og blogg
Hjon i ralli
Hin vinsæla hljómsveit
Sprengjuhöllin hóf
upptökur á sinni fyrstu
breiðskífu í gær. Sveitin
bloggar um upptöku-
ferlið á sprengju-
hollin.blog.is.
Jóhannes Gunnarsson, for-
^ maður Bifreiðaíþrótta-
Wf. klúbbs Reykjavíkur,
W > stundar rall með
konu sinni, Lindu
| s Karlsdóttur, á Mitsu
' bishi Lancer.
Hafdis Jonsdóttir og Bjorn
Leifsson í World Class eru
nú stödd á Jótlandi þar
sem upp munu rísa 15
líkamsræktarstöðvar
í þeirra eigu áður en
langt um líður.
BILAR»20
HEILSA/27
Hefurðu hugleitt
hvar þú
færð ódýrasta
eldsneytið?
[ORKANj
ÞAÐ MUNAR
UM MINNA
Apótekin of mörg
■ Færri íbúar eru um hverja lyfjaverslun hér á landi en annars staðar á Norðurlöndum
■ Lyfjaverð myndi lækka ef apótekum fækkaði, segir formaður lyfjagreiðslunefndar
Eftir Elías Jón Guðjónsson
elias@bladid.net
Mun færri íbúar eru á hverja lyfja-
verslun á Islandi en hinum Norður-
löndunum samkvæmt upplýsingum
frá Lyfjastofnun. Meira en þrefalt
fleiri íbúar eru um hvert apótek í
Danmörku en hér.
„Það er ljóst að ef lyfjabúðunum
fækkaði þá yrði reksturinn hag-
kvæmari og þá kæmust þær af
með lægri álagningu og það myndi
lækka lyfjaverðiðsegir Páll Pét-
ursson, formaður Lyfjagreiðslu-
nefndar. Hann telur að fækka verði
apótekum en segir að það verði ekki
gert með lagasetningu úr því sem
komið er.
„Með því að segja að það eigi að
ákveða miðlægt hvað mörg apótek
eru á hverju svæði fyrir sig erum
við ekki í því frjálsa samkeppnisum-
hverfi sem við viljum stefna í,“ segir
Guðni H. Guðnason, framkvæmda-
stjóri Lyfja og heilsu. Hann vill skera
upp það kerfi sem lyfjamálin eru
í. „Lyfjalöggjöfin er orðin gömul
og úrelt og hana þarf endurhugsa
frá grunni," segir Guðni og segir að
auðvelda þurfi fleirum að koma inn
á innflutningsmarkaðinn og búa til
samkeppnina þar. „Svo getum við
skoðað smásöluna,“ segir Guðni.
Sigurbjörn Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri Lyfju, segir að vel
komi til greina að endurskoða
kerfið en telur það ekki jafngallað
og Guðni. „Ég held að það sé ekk-
ert stórkostlegt að hér hjá okkur á
miðað við hin Norðurlöndin," segir
Sigurbjörn um kerfið.
Óhagkvæmur markaður
Báðir segja þeir Guðni og Sig-
urbjörn að það sé nauðsynlegt að
tryggja öllum landsmönnum að-
gengi að lyfjum og segja það vera
dýrt á svo stóru og fámennu landi.
Guðni segir þó að hægt sé að ná
niður lyfjaverði að einhverju leyti
Heimild: Lyfjastofnun
með stærðarhagkvæmni eins og
keðjurnar hafa gert.
Kerf ið hefur
brugðist pabba
Dætur krabbameinssjúks manns
á sjötugsaldri segja kerfið hafna
föður sínum vegna þess að hann
sé áfengissjúklingur. Þær óttast að
hann hann þurfi að eyða síðustu
ævidögunum, fárveikur á
götum borgarinnar. JL
Fasteignaverð held-
ur áf ram að hækka
Fasteignaverð mun halda áfram
að hækka á næstunni, a.m.k. á höf-
uðborgarsvæðinu að mati Ásgeirs
Jónssonar, forstöðumanns greining-
ardeildar Kaupþings. Undanfarna
6 mánuði hækkaði fasteignaverð
á höfuðborgarsvæðinu um yj
io,2prósent. sr#HT
Vegaframkvæmdir vestra
Miklar samgöngubætur fyrirhugaðar á Vestfjarðavegi
Stórvirkar vinnuvélar rufu í gærmorgun kyrrðina, sem venjulega ríkir í Kollafirði í Barðastrandarsýslu. Þar
er Vegagerðin að byggja upp Vestfjarðaveg á rúmlega níu kílómetra kafla og verður síðan lagt bundið slitlag á
veginn. Framkvæmdin verður mikil samgöngubót, en samkvæmt nýlegri ákvörðun ríkisstjórnarinnar verður
framkvæmdum við tvo aðra kafla Vestfjarðavegar í Barðastrandarsýslu flýtt.
Koníaksæði
í Makedóníu
Afskekkt fjallahérað í Make-
dóníu er orðið miðpunktur
fjársjóðsleitar eftir að bændur
fundu grafnar í jörð koníaks-
flöskur, sem taldar eru vera
frá tímum fyrri heimsstyrj-
aldarinnar. Ferðamenn frá
Frakklandi hafa m.a. flykkst
til þorpsins Gradesnica, ef ske
kynni að fleiri flöskur leynist
í jörð. Hver flaska er metin á
fimm þúsund evrur, eða um
412 þúsund íslenskar krónur.
Franskir hermenn eru sagðir
hafa haft flöskurnar með-
ferðis í skotgröfum sínum, en
að þær hafi týnst þegar þeir
urðu fyrir árás þýska hersins.
Koníakið er sagt bragðast guð-
dómlega, enda orðið 90 ára
gamalt. mge
NEYTENDAVAKTIN
Verð á tómatsósu
Verslun Krónur
Fjarðarkaup 164
Hagkaup 167
Spar Bæjarlind 169
Þín verslun Seljabraut 174
Melabúðin 179
Samkaup-Strax 185
Verð á Libby's tómatsósu í 680 g pakkningu
Upplýslngar frá Neytendasamtökunum
GENGI GJALDMIÐLA
SALA %
E USD 59,53 -0,39 ▼
•RÉliW GBP 122,53 -0,30 ▼
mmm DKK 11,06 -0,46 ▼
m JPY 0,49 -0,37 ▼
■1 EUR 82,30 -0,47 ▼
GENGISVfSITALA 111,16 -0,45 ▼
ÚRVALSVÍSITALA 8.965 -0,34 ▼
VEXTIR FRÁ ... að það er hægt að létta |' ’ 1
AÐEINS Þannig er mál r
Miðað við myntkörfu 4, Libor-vextir 23.4.2007. meö vexti ... greiðslubyrðina. FRJÁLSI