blaðið - 24.07.2007, Page 4
FRETTIR
ÞRIÐJUDAGUR 24. JULI 2007
blaöiö
Punktar veittir fyrir fleiri tegundir brota
44% fleiri fá
umferðarpunkt
Einstaklingar sem fengu punkta
í ökuferilsskrá árið 2006 voru 44
prósentum fleiri en árið 2005; eða
17.221 samanborið við 11.968. „Fjölg-
unin skýrist annars vegar af því að
á milli þessara ára var ákveðið að
fjölga þeim tegundum brota sem
veittir eru punktar fyrir, og hins
vegar af aukinni löggæslu á vegum,“
segir Árni E. Albertsson, aðstoð-
aryfirlögregluþjónn hjá embætti
ríkislögreglustjóra.
Ríflega helmingur skráðra um-
ferðarlagabrota er hraðakstur. 77
prósent þeirra sem fengu punkta
á síðasta ári voru karlar, en 23 pró-
sent konur. Árið 2004 fengu um 14
þúsund íslendingar punkta í öku-
ferilsskrá sína.
Mesti fjöldi punkta sem veittir
eru fyrir einstakt umferðarbrot
er 4; fyrir ofsaakstur og að aka
gegn rauðu ljósi. Hámark umferð-
arpunkta er 12 fyrir þá sem fengið
Fjöldi ökumanna sem fengu
punkta í ökuferilsskrá
hafa fullgilt ökuskírteini, en 7 ef
um bráðabirgðaskírteini er að
ræða. Ef 3 ár líða frá því umferðar-
punktar staðfestust án þess að þeir
hafi leitt til sviptingar, falla þeir
niður.
hlynur@bladid.net
mcft hvitUuk
Madeto move
20% afsláttur af öllum
SS pylsuþrennu og ORA
pylsuþrenna
afslattur
Fasteignir í Reykjavík Þensla í efna-
hagslífinu veldur kaupmáttaraukningu,
sér I lagi á höfuðborgarsvæðinu, sem
veldur hækkun á fasteignaverði.
Fasteignaverð
hækkar áfram
■ Fólksfjölgun og kaupmáttarauking veldur hækkun fasteigna-
verðs ■ Tómarúm mun myndast á vinnumarkaði í haust
Eftir Hlyn Orra Stefánsson
hlynur@bladid.net
FASTEIGNAVERÐ
Fasteignaverð mun halda áfram
að hækka á næstunni, a.m.k. á höf-
uðborgarsvæðinu. Þetta segir Ás-
geir Jónsson, forstöðumaður grein-
ingardeildar Kaupþings. Hann
segir að þeir þættir sem mestu
hafa ráðið um verðhækkunina að
undanförnu, fólksfjöldaukning
og vaxandi kaupmáttur, muni
halda áfram að valda hækkunum á
húsnæðismarkaðnum.
W. Undanfarna 6 mánuði
hækkaði fasteignaverð á
höfuðborgarsvæðinu um
10,2 prósent.
► Vísitala íbúðaverðs, með
árið 1994 sem grunn, var
komin í 337,4 stig við lok
síðasta mánaðar.
►
íbúðaverð hefur hækkað í
öllum landshlutum nema á
Vestfjörðum.
Stöðugur markaður
„Það sem skiptir mestu máli fyrir
svona markað er að viðskipti ganga
ágætlega fyrir sig; að þeir sem vilji
selja geti selt og þeir sem vilja
kaupa geti keypt,“ segir Ásgeri Jóns-
son. Hann segir að verð og önnur
þróun á fasteignamarkaði hafi
verið nokkuð stabíl, og reiknar því
með að verðhækkanir haldi áfram.
„Svo lengi sem hagkerfið heldur
áfram í þeim gangi sem verið hefur
og gengi krónunnar helst stöðugt,
eins og við höfum spáð, munum
við sjá áframhaldandi hækkanir á
fasteignamarkaði. En við sjáum þó
ekki fyrir neinar svakalega miklar
hækkanir."
Fólksfjölgun heldur áfram
Þegar skólar hófust eftir sumarfrí
sl. haust jókst þörfin fyrir innflutt
vinnuafl töluvert. „Ég reikna með
því að sama verði uppi á teningnum
í haust. Nú er metaðsókn í alla skóla,
sem mun valda töluverðu tóma-
rúmi á vinnumarkaðnum þegar
skólar hefjast," segir Ásgeir. Hann
segir aukinn fólksfjölda vera meðal
þess sem hafi valdið hækkun verðs
á húsnæðismarkaðnum, og aukning
á aðfluttu vinnuafli til að fylla tóma-
rúmið á vinnumarkaðnum muni
valda því að fasteignaverð haldi enn
áfram að hækka.
Kaupmáttur og hlutabréf
Ásgeir segist einnig reikna með
að aukinn kaupmáttur muni halda
áfram að valda verðhækkun fast-
eigna. „Hækkun kaupmáttar er
aðallega rekinn áfram af hækkun
launa. Þegar þensla er á vinnu-
markaði eins og nú, þá skipta
menn gjarnan í betur launuð störf.
Ég reikna því með að kaupmáttur
haldi áfram að vaxa, a.m.k. á
höfuðborgarsvæðinu.“
Einbýlishús hafa hækkað meira
í verði en fjölbýlishús. „Hækkanir
á hlutabréfamarkaði, eins og við
höfum verið að sjá undanfarið, eru
líklegar til að valda því að verð
einbýlishúsa hækkar. Því þeir sem
kaupa einbýlishús eruoftþeirsömu
og kaupa hlutabréf," segir Ásgeir.
VILTU VITA MEIRA?
Hringdu í síma 510 3700 eða
sendu póst á bladid@bladid.net
Fjöldi lítilla jarðskjálfta hefur mælst norðan Vatnajökuls á árinu
Kárahnjúkavirkjun óhult
Fjöldi lítilla jarðskjálfta hefur
mælst á svæðinu norðan Vatna-
jökuls á undanförnum mánuðum.
Páll Einarsson, prófessor í jarðeðlis-
fræði hjá Háskóla íslands, segir jarð-
hræringarnar vera í eldstöðvakerfi
Kverkfjalla en á nýjum stað, um 15
km fyrir austan Oskju og 20 km
vestan við Kárahnjúkavirkjun. Páll
segir að þrátt fyrir nálægðina við
Kárahnjúkavirkjun ætti þetta ekki
að hafa nein áhrif á hana. „Sprung-
urnar sem eru í botni Kárahnjúka-
lónsins eru líka tengdar Kverkfjalla-
sprungukerfinu þannig að þetta
er ekki ótengt en það er ólíklegt
að þetta tengist orsakasamhengi á
þessu stigi,“ segir hann.
Páll segir skjálfta sem bendi til
kvikuhreyfingar í neðri hluta jarð-
skorpunnar hafa verið í gangi síðan
í febrúar. „En hvort það verður að
eldgosi er alveg ómögulegt að segja
á þessu stigi,“ segir hann. Páll segir
að um mjög merkilegan atburð sé
að ræða og þess virði að fylgjast
með því hvort sem það verður að eld-
gosi eða ekki.
elias@bladid.net
Jarðskjálftavirkni
norðan Vatnajökuls
Snæfell
0. •