blaðið - 24.07.2007, Side 10

blaðið - 24.07.2007, Side 10
10 FRÉTTIR ÞRIÐJUDAGUR 24. JÚLÍ 2007 blaðið MILUONIR ÁLAUSU! Potturinn stefnir í 50 milljónir. Ofurpotturinn stefnir í 150 milljónir og bónusvinningurinn í 11 milljónir. Ekki gleyma að vera með, nældu þér í áskrift. Fáðol>«"ri®LVSBOs6«sl V I K I N G A MfTf Alltaf á miðvikudögum! Eigum að a okkar ábyi ■ Hagur heimsins að deilan um Palestínu leysist ■ Gætum jafnvel tekið á móti einhverj- um flóttamönnum M Stjómvöldbera sið- ferðislega ábyrgð á Íraksstríðinu Eftir Þórð Snæ Júlíusson thordur@bladid.net Amman Vinnuferð Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur utanríkisráð- herra um Mið-Austurlönd lauk í gær. Hún hafði þá ferðast um fsrael, Palestínu og Jórdaníu í viku- tíma og hitt aragrúa ráðamanna, forsvarsmenn mannúðarsamtaka og almenna borgara. Þórður Snær Júlíusson blaðamaður var með í för og hann ræddi við utanríkisráðherr- ann í ferðalok um áhrif og ástæður þessarar ferðar. „Mér hefur fundist þetta gríðar- Iega lærdómsrík ferð. Mér finnst ég hafa meðtekið þekkingu og reynslu á þessari viku sem ég hefði ekki getað aflað mér með lestri bóka og skýrslna á mjög löngum tíma. Það er allt annað að fá þetta beint í æð og geta náð því á svona stuttum tíma að tala við svona marga. Svona margt fólk með mjög ólík sjónarmið og sjónarhorn á málinu. Þannig fékk ég mjög breitt sjónarhorn á þessi mál,“ segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir. Hún eyddi síðustu dögum ferða- lagsins í Jórdaníu. Þar hitti hún meðal annars Abdul Illah Khatib, utanríkisráðherra Jórdaníu, síðast- liðinn sunnudag. Ingibjörg Sólrún segir fund þeirra hafa verið afar áhugaverðan. „Hann útskýrði fyrir mér hvernig hann liti á stöðu mála í ísrael og Palestínu og möguleik- ana á friðarumleitunum þar. Það var mjög áhugavert að fá hans mat á stöðunni. Hann sagði, eins og aðrir sem ég hef hitt í þessari ferð, að það sé knýjandi þörf á að það tak- ist nú að finna þessa lausn, en ekki að menn fari bara inn í eitthvert friðarferli. Það þurfi að nást sam- komulag um lokalausn í málefnum Israels og Palestínu. Ef það gerist ekki sé mikil hætta á ferðum fyrir allt svæðið hér, því hann segir Al-Ka- ída komna að landamærum ísraels og írana komna að landamærum Egyptalands. Hann sagði þessa deilu vera eldsmatinn á þessu svæði, það væri hún sem héldi þessum eldi gangandi.“ Hún segir þessa skoðun raunar vera rauða þráðinn í öllum þeim samræðum sem hún hefur átt við fólk á svæðinu. „Það segja allir þessa deilu vera efniviðinn í þá öfga- hyggju sem hér þrífst. Að hún fram- leiði þessa ofsatrúarmenn sem eru að verða til á svæðinu. Það sé því allra hagur; Palestínumanna, ísra- ela, alls svæðisins og heimsins að þessi deila verði endanlega leyst.“ Flóttamenn orsaka gríðarlegt álag Ingibjörg Sólrún ræddi einnig flóttamannavandann við jórdanska ráðamenn á sunnudag. Hún sagði þá stöðu sem væri í landinu vera afskaplega sérkennilega. „Það eru ekki nema um 37 þúsund írakar hér sem hafa flóttamannastöðu. Það er hins vegar talið að á bilinu 400 til 750 þúsund íraskir flóttamenn séu hérna. Þeir eru meira og minna FERÐALOK ► Ingibjörg Sólrún hóf ferð sína í ísrael, ræddi við ráða- menn og heimsótti bæ sem orðið hefur fyrir árásum. ► Hún ræddi við leiðtoga Pal- estínumanna og heimsótti flóttamannabúðir. ► Ferðinni lauk í Jórdaníu í gær. óskráðir í landinu. Það eru einungis fjórtán þúsund írösk börn í skólum í Jórdaníu, en ættu að vera einhverjir tugir þúsunda. Irakarnir sem eru í felum þora svo ekki að gefa sig fram vegna þess að þeir eru hræddir við að verða reknir úr landi, sem er þó ekki stefna jórdanskra yfirvalda. Þau vilja leysa þetta vandamál tíma- bundið, en vilja ekki veita þessum

x

blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.