blaðið - 24.07.2007, Side 12
12
ÞRIÐJUDAGUR 24. JÚLÍ 2007
blaðið
FÉOGFRAMI
vidskipti@bladid.net
Við höfum háleit markmið um nýtingu geymsl-
unnar hvað varðar flutninga til, frá og innan Asíu.
Þetta er mjög spennandi verkefni og styður við nú-
verandi starfsemi Eimskips í Kína.
Seðlabankastjóri í viðtali við Reuters
Frekari vaxtahækkun
ekki útilokuð
Davíð Oddsson seðlabankastjóri
sagði í viðtali við Reuters-frétta-
stofuna fyrir helgi, að hann
útilokaði ekki frekari stýrivaxta-
hækkanir á þessu ári. f þjóðshags-
spá Seðlabankans sem kynnt var
5. júlí sagði að stýrivextir yrðu
óbreyttir út árið og að ekki væri
búist við lækkun fyrr en í mars á
næsta ári. Þá gerði endurskoðuð
þjóðhagsspá fjármálaráðuneyt-
isins, sem gefin var út í síðasta
mánuði, ráð fyrir því að stýri-
vextir tækju að lækka um áramót.
Stýrivextir eru í dag 13,30 prósent
og hafa verið óbreyttir frá 6.
desember.
„Maður hefði haldið að eftir að
sjávarútvegsráðherra tilkynnti
um meiri niðurskurð í aflamarki
þorsks en Seðlabankinn gerði ráð
fyrir, yrði það frekar þess að flýta
lækkunarferlinu. Hins vegar eru
enn ýmis þenslumerki og allar vís-
bendingar benda til þess að einka-
neysla á öðrum ársfjórðungi hafi
verið mikil,“ segir Ragnhildur
Jónsdóttir, sérfræðingur hjá grein-
ingu Glitnis. Hún tekur fram að
greining Glitnis hafi ekki breytt
sinni spá, þótt Davíð hafi gefið í
skyn að stýrivextir verði hækkaðir.
„Við teljum enn að stýrivextir verði
lækkaðir um 30 punkta í mars.“
magnus@bladid.net
Novator meö 99,66% hlut í Actavis
Alls tóku 99,66% hluthafa Actavis tilboði Novator eignarhaldsfélags en
yfirtökutilboði Novator til hluthafa Actavis Group hf. rann út síðastlið-
inn miðvikudag.
Að loknum tilboðsfresti hefur Novator tryggt sér hlutafé sem nemur kr.
1.895.316.722 að nafnverði eða 99,66% af heildarhlutafé Actavis Group
hf., að meðtöldum hlutum í eigu tilboðsgjafa og tengdra félaga sem og
eigin hlutum félagsins.
Hluthafar sem samþykktu tilboðið fá greitt með reiðufé samkvæmt
tilboðinu og fer greiðsla fram á morgun.
Eimskip rekur stærstu
kæligeymslu í Kína
■ Geymslugeta Eimskips í Qingdao-höfn verður 110.000 tonn
■ Spennandi verkefni sem styður við starfsemi Eimskips í Kína
Eftir Hlyn Orra Stefánsson
hlynur@bladid.net
Eimskip og Qingdao Port Group
hafa samið um rekstur Eimskips
á stærstu kæli- og frystigeymslu í
Kína, sem verður á Qingdao-höfn.
Eimskip verður eini rekstraraðili á
kæli- og frystigeymslum í höfninni
sem er sú stærsta í Kína á sviði hita-
stýrðra flutninga.
Fyrsti áfangi kæli- og frysti-
geymslunnar rúmar um 55.000 tonn.
Með samstarfssamningi á milli Eim-
skips og Qingdao Port Group um
frekari uppbyggingu, sem undirrit-
aður var á Bessastöðum í gær, mun
geymslugeta Eimskips verða 110.000
tonn í Qingdao-höfn. Samningur-
inn gerir ráð fyrir að Eimskip kaupi
frystigeymslu sem tekin verður í
notkun í september og muni einnig
byggja, ásamt Qingdao-höfn, aðra
jafn stóra kæli- og frystigeymslu á
sama svæði.
Mikil tækifæri í Qingdao
Baldur Guðnason, forstjóri Eim-
skips, segist sjá mikil tækifæri í
rekstri kæli- og frystigeymslu í
Qingdao. „Við höfum háleit mark-
mið um nýtingu geymslunnar hvað
Við undirritun Forstjóri Eim-
skips skrifar undir risasamnig
við Qingdao Port Group.
varðar flutninga til, frá og innan
Asíu. Þetta er mjög spennandi
verkefni og styður við núverandi
starfsemi Eimskips í Kína en við
höfum opnað fjórar skrifstofur þar
á undanförnum árum og starfa
nú um 100 manns á vegum Eim-
skips í Kína. Bygging kæligeymsl-
unnar er komin vel á veg og stefnt
að opnun hennar í september."
Þetta er fyrsta geymslan sem byggð
er á hafnarsvæði Qingdao. Segir
þar enn fremur að kæli- og frysti-
geymslan liggur í um 100 metra
fjarlægð frá hafnarsvæðinu og er
því ákjósanlegasti kosturinn hvað
varðar geymslu hitastýrðra afurða.
EIMSKIP í KÍNA
► Eimskip opnaði fyrstu skrif-
stofu sína í Kína í nóvember
2004, en hún er staðsett í
Qingdao.
Nú rekur félagið fjórar skrif-
stofur í Kína og eru þær
staðsettar í Qingdao, Dali-
an, Shenzhen og Xiamen.
► Að auki kemur Eimskip til
með að reka stærstu kæli-
og frystigeymsluna í Kína,
en hún er nú í byggingu í
Qingdao-höfn.
I- þegar þú kaupir parket!
Þú getur fengið að vita allt um Quick • Step parket
H ARÐVIÐ ARVAL hjá Harðviðarvali ehf • Krókhálsi 4 • Sími 5671010
Er listamaður í fjölskyldunni? Engar áhyggjur
Einn besti eiginleiki Quick • Step (laminat/plastl gólfefnisins er ad þad heldur náttúrulegu
og fallegu yfírbragði sínu í fjölda ára. Yfirbord þess er svo sterkt að vid veitum 25 ára
ábyrgd á endingu gólfefnisins vid edlileg heimilisnot. Quick • Step er þar ad auki búið
Uniclic smellukerfinu, sem hefur lífstíðarábyrgd.
Farið á heimasíðu okkar, parket.is eða hringið í síma 5671010 til að fá upplýsinga-
bækiing.
QUICK STEP
floors wifh enduring beouty
ouick srci
Kosningakippur
Minni hagnaður
Hlutabréf á tyrkneskum markaði
hækkuðu um 3,83% stuttu eftir
opnun tyrknesku kauphall-
arinnar í gærmorgun. Hefur
IMKB-100 vísitalan aldrei verið
hærri. Hækkunin er rakin til sig-
urs stjórnarflokksins í þingkosn-
ingum í landinu á sunnudaginn.
MARKAÐURINN í GÆR
• Mest viðskipti í kauphöll OMX
voru með bréf Kaupþings banka,
eða fyrir 1,68 milljarða króna.
Næstmest viðskipti voru með bréf
Glitnis banka hf.
• Mesta hækkunin var á bréfum
Alfesca hf, eða 1,91%. Bréf Atorku
Group hf. hækkuðu um 1,52% og
bréf Atlantic Petroleum P/F um
i,33%-
• Mesta lækkunin var á bréfum
Century Aluminum Company, eða
2,08%. Bréf Bakkavör Group hf.
Hagnaður sænsku fríblaðaútgáf-
unnar Metro dregst saman um
80 prósent á öðrum ársfjórðungi.
Var hagnaður útgáfunnar 936
þúsund dalir samanborið við 4,6
milljónir dala á sama tímabili í
fyrra. Hlutabréf í Metro lækkuðu
um 5,07% í kjölfar fréttanna.
lækkuðu um 1,25% og bréf Foroya
Banka P/F um 1,23%.
• Úrvalsvísitalan lækkaði um
0,34%. I lok dags stóð hún í 8.964,94
stigum.
• íslenska krónan styrktist um
0,13% í gær.
• Samnorræna OMX40-vísitalan
hækkaði um 0,37%. Þýska DAX-vísi-
talan hækkaði um 0,9% og breska
FTSE-vísitalan um 0,6%.
Hlutabréfaviðskipti með skráð bréf hjá OMX á Íslandi, 23. júií 2007
Viðskípti í krónum Heildar-
ATH. = Athugunarlisti Viðskipta- Hlutfallsl. Dagsetning Fjöldi viöskipti Tilboð í lok dags:
Félög í úrvalsvís'itölu verð breytíng viðsk.verös viöskipta dagsins Kaup Sala
♦ Actavis Group hf. 86,20 0,00% 20.7.2007 - - 86,60 87,00
▲ Atorka Group hf. 10,05 1,52% 23.7.2007 32 166.852.959 10,03 10,05
▼ Bakkavör Group hf. 70,90 -1,25% 23.7.2007 14 235.546.033 70,80 71,50
▼ Exista hf. 39,95 -0,37% 23.7.2007 52 380.132.425 39,95 40,00
♦ FL Group hf. 30,00 0,00% 23.7.2007 25 278.504.318 29,90 30,10
▼ Glitnir banki hf. 30,80 -0,32% 23.7.2007 57 859.531.014 30,80 30,85
♦ Hf. Eimskipafélag (slands 40,10 0,00% 23.7.2007 18 32.364.407 40,00 40,20
▼ lcelandair Group hf. 30,25 -0,49% 23.7.2007 7 50.136.487 30,05 30,25
▼ Kaupþing banki hf. 1276,00 ■0,31% 23.7.2007 66 1.682.043.588 1276,00 1280,00
▼ Landsbanki íslands hf. 40,80 -0,49% 23.7.2007 50 508.004.789 40,70 40,80
♦ Mosaic Fashions hf. 17,00 0,00% 20.7.2007 - - 17,00
Straumur-Burðarás Fjárf.b. hf. 22,90 -0,65% 23.7.2007 70 565.607.128 22,90 23,00
▲ Teymi hf. 5,63 0,18% 23.7.2007 12 8.420.448 5,63 5,68
▲ össur hf. 111,50 0,90% 23.7.2007 9 12.452.166 110,00 111,50
Önnur bréf á Aðallista
♦ 365 hf. 3,34 0,00% 20.7.2007 - - 3,34 3,36
▲ Alfesca hf. 5,86 1,91% 23.7.2007 10 55.827.750 5,84 5,87
▲ Atlantic Petroleum P/F 1145,00 1,33% 23.7.2007 9 2.879.708 1125,00 1145,00
▲ Eik Banki 725,00 0,55% 23.7.2007 6 1.488.873 723,00 725,00
♦ Flaga Group hf. 1,87 0,00% 20.7.2007 - - 1,86 1,88
▼ Foroya Bank 240,00 -1,23% 23.7.2007 10 4.536.479 240,00 243,00
♦ lcelandic Group hf. 6,30 0,00% 20.7.2007 . _ 6,25 6,34
♦ Marel hf. 97,00 0,00% 23.7.2007 6 836.492 97,00 97,10
♦ Nýherji hf. 19,50 0,00% 20.7.2007 - - 19,50
♦ Tryggingamiöstöðin hf. 39,50 0,00% 20.7.2007 HMHH HNNMH 39,25 39,65
♦ Vinnslustööin hf. 8,50 0,00% 25.6.2007 1 661.618
First North á íslandi
▼ Century Aluminium Co. 3813,00 -2,08% 23.7.2007 5 57.342.000 3798,00 3827,00
♦ HB Grandihf. 11,00 0,00% 18.7.2007 . - 12,00
♦ Hampiðjan hf. 6,80 0,00% 20.6.2007 - - 6,80