blaðið - 24.07.2007, Side 16
28
ÞRIÐJUDAGUR 24. JÚLÍ 2007
blaóið
LÍFSSTÍLLFERÐIR
heilsa@bladid.net
Þar er sögusýning sem byggir á þeim
atburði þegar tundurspillirin Skeena
strandaði við Viðey árið 1944 og það var
frægur atburður.
Sérferð til
Brasilíu
Icelandair býður upp á sérferð
til Brasilíu í haust í fararstjórn
Brynju Birgisdóttur. Gist verður
í Rio de Janeiro í fjórar nætur og
í bænum Angra dos Reis sem er í
um það bil tveggja klukkustunda
akstursfjarlægð frá Rio. Flogið
. verður út þann 13. september og
aftur heim þann 23. september.
Nánari upplýsingar má nálgast á
vefsíðu Icelandair.
Haust í Noregi
Trex-Hópferðamiðstöðin efnir
til haustlitaferðar til Lapplands
og Norður-Noregs dagana 14.
til 22. september. Flogið verður
til Helsinki og gist fyrstu tvær
næturnar, og á þriðja degi verður
flogið norður til Ivalo í finnska
Lapplandi og haldið í fjögurra
daga ferð þar sem megináherslan
er á Norður-Noreg. Gist verður í
nyrsta bæ í heimi, Hammerfest,
í þrjár nætur og farið þaðan til
Nordkap, nyrsta odda Evrópu.
höfuðstaður norskra Sama og
gist aftur í Ivalo. Nánari upplýs-
ingar má nálgast á vefslóðinni
trex.is.
fólksins
Úrval Útsýn býður upp á ferð til
Sardiníu dagana 30. september
til 6. október, en eyjan sú er ein-
mitt gjarnan kölluð eyja fræga
fólksins vegna vinsælda sinna.
Þar er mikil náttúrufegurð
með háum fjöllum, tærum bað-
ströndum og hrjúfu landslagi auk
skemmtilegrar byggingarlistar
og afslappaðs andrúmslofts.
Tálknafjör í lok
mánaðar
Fyrirhugað er að halda bæjarhá-
tíð Tálknafjarðar þann 28. júlí
næstkomandi. Hátíðin heitir
Tálknafjör og var haldin í fyrsta
skipti í ágúst í fyrra. Þá opnuðu
„ Tálknfirðingar dyr sínar fyrir
gestum og gangandi, frítt var í
sund, tilboð á súpu og ýmislegt
fert sér til gamans.
ár gefst fólki kostur á að ganga
nokkrar af þeim fjölmörgu
gönguleiðum sem á svæðinu eru
undir leiðsögn. Einnig verða
kvöldvökur ásamt því sem sögu-
menn verða fengnir til þess að
gæða landslagið nýju lífi með
„ spennandi frásögnum.
Eyja með aðdráttarafl
Viðey er áfeng
Örlygur Hálfdanarson
bókaútgefandi verður
með þriðjudagsgöngu í
Viðey í kvöld, en gangan
hefst með siglingu frá
Sundahöfn klukkan 19.15
og tekur rúmar tvær
klukkustundir. Örlygur
fæddist í Viðey og bjó þar
fram á tólfta aldursár og
segist alltaf hafa verið
mikill Viðeyingur í sér.
Eftir Hiidi Eddu Einarsdóttur
hilduredda@bladid.net
„Þegar ég fór að muna eftir mér í
Viðey voru ekki nema kannski um 50
manns skráðir þar búsettir og ekki
alltaf svo margir í eyjunni hverju
sinni. Þannig að þetta var lítið samfé-
lag,“ segir Örlygur og bætir því við að
þorpið hafi einnig verið afskekkt þó
svo að það hafi verið staðsett svo ná-
lægt þéttbýli. „Öll verslun var sótt til
Reykjavíkur og ferjubátur fór á milli
en það var einmitt einn móðurbróðir
minn sem var ferjumaður þarna. Fólk
fór til Reykjavíkur ef það vantaði eitt-
hvað en því fór fjarri að það væri að
fara þangað daglega og menn höguðu
innkaupum sínum í samræmi við það.
Svo var reyndar Hka bátur sem fór frá
Viðeyarstofu enda var þar kúabú sem
seldi mjólkina sína til Reykjavíkur.
Stundum var hægt að fá far með þeim
bát.“
Barnaskólinn lokaður
Örlygur flutti ásamt fjölskyldu
sinni til Seltjarnarness árið 1941 en á
þeim tíma tilheyrði Viðey Seltjarnar-
neshreppi. „Þetta árið tilkynnti hrepp-
urinn Viðeyingum að hann treysti sér
ekki til þess að halda uppi skóla lengur
í Viðey. Þarna var gott skólahús og
einn kennari en börnin voru svo fá
og peningarnir af skornum skammti.
Þar með urðu barnafjölskyldurnar á
eyjunni að leysa sín mál með því að
flytja annað og enginn möguleiki
fyrir nýjar að flytja út í Viðey. Það var
síðan árið 1943 sem síðustu íbúarnir
fluttu úr Viðeyjarþorpi," segir hann.
Myndir og fróðleikur
Örlygur hefur alltaf haldið mikilli
tryggð við Viðey. „Þegar ég byrjaði
á þessu var mér tjáð að ekkert væri
til af myndum þaðan en engu að
ÖRLYGUR
Ein formóðir Örlygs var
síðasta ráðskona Skúla
Magnússonar fógeta og var
í Viðey til fjölda ára.
í myndasýningu í skólahús-
inu í Viðey er teikning af
þorpinu sem teiknuð var
eftir fyrirmælum Örlygs
og gefur góða mynd af því
hvernig það leit út.
Hann segir vinnu að fræðslu-
málum um Viðey vera áhuga-
starf og að hann hyggist
halda áfram að sinna því
á meðan hann stendur f
lappirnar.
síður tókst mér hægt og bítandi að
safna myndum af ýmsu, bæði íbúð-
arhúsum, verkunarhúsum og bryggj-
unum og þetta er allt komið upp í
Viðey núna. Við alla húsgrunnana
eru myndir af viðkomandi húsi og i
sumum tilfellum myndir af íbúunum
líka. Svo er saga húsanna í hnotskurn
skráð á skiltin og þess má geta að sagt
er frá því að húsið sem ég fæddist í
var smíðað úr fjölunum á Kútter Ing-
vari sem fórst við Viðey árið 1906,“ út-
skýrir hann.
Sýning um sögulegan atburð
Fyrrum íbúar Viðeyjar, afkom-
endur þeirra og aðrir áhugamenn
mynda hið svokallaða Viðeyingafé-
lag sem á sér félagsheimili í gömlum
vatnsgeymi á eyjunni og þangað ætlar
Örlygur meðal annars að fara með
göngufólkið í kvöld. „Þar er sögusýn-
ing sem byggir á þeim atburði þegar
tundurspillirin Skeena strandaði við
Viðey árið 1944 og það var frægur at-
burður. Um þann atburð kom einmitt
út bók í hittiðfyrra, en það er bókin
Útkall -Hernaðarleyndarmál í Viðey
eftir Óttar Sveinsson, en það vill ein-
mitt svo til að Óttar er bróðursonur
minn og félagi í Viðeyingafélaginu,"
segir Örlygur.
Margir afkomendur og aðrir ætt-
ingja fyrrum íbúa Viðeyjar vera í félag-
inu en að þeir séu þar fyrst og fremst
vegna eigin áhuga. „Við þurfum ekk-
ert að hvetja þá sérstaklega til þess
að ganga í félagið, enda hefur fólk sín
bönd við Viðey þótt það hafi aldrei
búið þar. Eyjan er nefnilega mjög
áfeng eins og sagt er, enda dregur hún
mann til sín,“ segir Örlygur.
Blaöiö/SteinarH
Örlygur Hálfdanarson Bjó í
Viðey á sínum bernskuárum.
Síðasta bókin um Harry Potter komin út
Samdráttur í Harry Potter-ferðaþjónustu?
Útkomu síðustu bókarinnar
um galdrastrákinn Harry Potter
og félaga hans var beðið með eft-
irvæntingu og fagnað víða um
heim en ljóst er að margir helstu
aðdáendur bókanna eiga eftir að
fyllast söknuði eftir fleiri meist-
araverkum um kappann frá höf-
undi bókanna, J.K. Rowling. En
ekki er víst að einungis aðdáendur
eigi eftir að verða fyrir áfalli nú
þegar Ijóst er að bækurnar verða
ekki fleiri. Nokkrar líkur eru
taldar á því að margir smábæir í
Bandaríkjunum eiga eftir að horfa
upp á samdrátt í ferðaþjónustu
á næstu árum, þar sem útgáfa
Harry Potter-bókanna hefur und-
anfarin ár verið hápunktur ársins
í ferðamannaiðnaðinum.
í hinum 12.000 manna bæ Wilm-
ingon í Ohio-ríki hafa sérstakar
Harry Potter-skrúðgöngur, töfra-
sýningar og hátíðir í tilefni af út-
gáfu bókanna laðað að um 4000
manns í hvert skipti og árið í ár var
engin undantekning. Sömu sögu
er að segja í bæjum á borð við Po-
ulsbo í Washington-ríki, Oshkosh
í Winsconsin og Oak Park í Illinois
svo dæmi séu tekin. En ferðamála-
yfirvöld í þessum bæjum eru ekki
af baki dottin, heldur hafa mörg
hver áformað að gera Harry Potter-
hátíðir að árlegum viðburði. Afar
ólíklegt má telja að vinsældir
galdrastráksins knáa eigi nokkuð
eftir að dvína á næstu árum, og
þegar er byrjað að skipuleggja ým-
iss konar galdraráðstefnur fyrir
aðdáendur á næstu árum. Það er
því alls ekki víst að endalok útgáfu
bókanna eigi eftir að bitna hart á
Harry Potter-ferðaþjónustu í bráð.