blaðið - 24.07.2007, Síða 21
í
blaöió
ÞRIÐJUDAGUR 24. JÚLI 2007
33
CHELSEA
MANCHESTER CITY
MANCHESTER UNITED
Að kaupa Manchester United var
talið ómögulegt, þótt liðið hafi
verið sett á almennan markað á ro.
áratug síðustu aldar. En bandaríski
auðkýfingurinn Malcolm Glazer
tókst hið ómögulega. Hann keypti
liðið og tók það af markaði. Glazer
er ekki ókunnugur rekstri íþrótta-
liða, því hann hefur átt bandaríska
ruðningsliðið Tampa Bay Buccane-
ers í nokkur ár. Hann breytti því
liði úr krónískum töpurum í Super
Bowl meistara árið 2002.
Margir stuðningsmenn Manc-
hester United voru mjög ósáttir
við framvindu mála. Töldu þeir að
Glazer hefði í hyggju að fjársvelta
liðið og yfirfæra skuldir sínar yfir á
klúbbinn. Hingað til hafa þeir ekki
yfir miklu að kvarta, fyrir utan
síhækkandi miðaverð. Félagið varð
meistari á síðustu leiktíð og hefur
eytt yfir 50 milljónum punda í leik-
mannakaup í sumar.
Það vakti mikla eftirtekt þegar
rússneski auðkýfingurinn Roman
Abramovich keypti Chelsea og
peningarnir hreinlega flæddu inn í
klúbbinn. Einkum var það vafasöm
fortíð Abramovich sem vakti hörð
Iviðbrögð, en hann hafði hagnast
gríðarlega á misheppnaðri einka-
væðingu Rússa. Einnig var hann
bendlaður við rússnesku mafíuna.
Það þarf ekki að tíunda árangur
Chelsea síðan Abramovich keypti
Chelsea. Öllum er ljóst að Abramov-
ich keypti ekki liðið til að hagnast
á því, heldur lítur hann á Chelsea
sem afþreyingu. 17 milljarða króna
tap á einu tímabili og Abramovich
ypptir öxlum, rétt eins og hann sé
að borga hótelreikninginn.
f september í fyrra var Thaksin
Shinawatra, forsætisráðherra
Taílands, steypt af stóli í blóðlausri
byltingu. Hann hafði dreymt um
að kaupa Liverpool, en aldrei
tekist. Hann hefur hins vegar
notað atvinnuleysið til að kaupa
Manchester City, fyrir peninga sem
margir telja að séu í eigu taílensku
þjóðarinnar. Hann hefur ráðið laus-
gyrta Svíann Sven-Göran Eriksson
sem knattspyrnustjóra og stóru
leikmannakaupin eru þegar hafin.
LIVERPOOL
Þrátt fyrir að Shinawatra hafi ekki
tekist að kaupa Liverpool, stóðu
kaupendur í biðröðum. Bandaríkja-
menn komu fyrstir á undan auð-
kýfingum frá Dubai, og þeir Tom
Hicks og George Gillett hrepptu
hnossið. Knattspyrnustjórinn
Rafael Benítez hefur verið duglegur
að væla út meira fjármagn til að
koma liðinu í fremstu röð. Það
virðist loks hafa borið árangur, því
til liðsins er kominn drengur að
nafni Fernando Torres, langdýrasti
leikmaður í sögu félagsins.
Úti að aka Tiger Woods
náði sér aldrei á strik um
helgina og endaöi hringir
fjóra á tveimur höggum
undir pari í 12. til 18. sæl
Woods hefur þrívegis sig
á Opna breska, þar af tvi
síðustu ár.
Upprennandi stjarna
Áhugamaðurinn Rory
Mcllroy stal senunni á fyrstu
dögum mótsins. Þessi 18
ára piltur spilaði frábært golf
fyrsta daginn og var eini
kylfingurinn sem ekki fékk
skolla á fyrsta hringnum. En
reynsluleysið sagði til sín á
endanum og endaði hann
keppnina á 5 höggum yfir
pari. Irar binda miklar vonir
við þennan unga kylfing.
Grátlegt Vonbrigði Sergio
Garcia leyndu sér ekki eftir
að púttið sem hefði getað
tryggt honum sigurinn
rataði ekki ofan í. Garcia er
stigahæsti kylfingurinn sem
ekki hefur enn náð að landa
sigri á stórmóti.
PORTSMOUTH
Fyrir um einu og hálfu ári leit
allt út fyrir að Portsmouth væri á
hraðri leið úr úrvalsdeildinni. Liðið
gat ekki neitt og stjóranum Harry
Redknapp voru allar bjargir bann-
aðar. Þá kom til sögunnar maður
að nafni Alexandre Gaydamak,
franskur auðkýfingur af rússnesku
bergi brotinn. Gaydamak þessi
kemur úr vellauðugri fjölskyldu og
hófst strax handa við að pumpa inn
fjármagni í liðið. Portsmouth bjarg-
aði sér frá falli, var í harðri baráttu
um Evrópusæti á síðustu leiktíð
og ætlar sér enn lengra á komandi
tímabili. Spurningin er hvort
hann hafi storkað örlögunum með
kaupum á fallkónginum Hermanni
Hreiðarssyni.
ASTON VILLA
Aston Villa er eitt nokkurra liða í
eigu vellauðugra Bandaríkjamanna.
Miklar vonir hafa verið bundnar
við eignarhald Lerners, sem einnig
á ruðningsliðið Cleveland Browns.
Hingað til hefur árangurinn látið á
sér standa og liðið virðist dæmt til
meðalmennsku.
WEST HAM
Það er ekki hægt að segja skilið við
þessa frásögn án þess að minnast
á íslensku innrásina í West Ham.
Aðdragandi hennar er vægast sagt
furðulegur. Lengi vel leit út fyrir að
hinn íranskættaði Kia Joorabchian
næði yfirhöndinni í félaginu. Hann
hafði þegar tryggt West Ham tvo af
bestu leikmönnum Argentínu, þá
Carlos Tevez og Javier Mascherano.
Joorabchian var umdeildur og talið
að hann væri handbendi rússneska
auðkýfingsins Boris Beresovsky,
sem er eftirlýstur af rússneskum
stjórnvöldum. Þá kom til sögunnar
Eggert Magnússon, studdur af
Björgóifi Guðmundssyni. Þeir hirtu '
þá Tevez og Mascherano og skildu
Joorabchian eftir út í kuldanum.
Þrátt fyrir miklar væntingar var
gengi Hamranna ömurlegt í vetur
og Eggert virtist bugaður maður.
Liðið virtist dæmt til að falla, en
þá steig Tevez fram á sjónarsviðið
og bjargaði West Ham nánast einn
síns liðs. Mascherano er farinn og
Tevez líklega á leið til Manchester
United, en Eggert hefur verið
duglegur í leikmannakaupum og
stefnir á Evrópusæti á næstu leiktíð.
Tíminn leiðir í ljós hvort þarna er
annað Stoke-ævintýri í uppsiglingu.
Full af fróðleik og skemmtilegu efni
Þriðjudaga, miðvikudaga & fimmtudaga
Auglýsingasímar:
Magnús Gauti 510-3723
Kolbrún Dröfn 510-3722
Heilsa
W Matur
Börn&Uppeldi
Heimili&Hönnun
& Húsbyggjandinn
* Viðskipti&Fjármál
IVinnuvélar
Bílar
Konan
Árstíðabundin
sérblöð
r 1 • Æ '1
j 1 fi : ■
t * E "" j ! r 1