blaðið


blaðið - 24.07.2007, Qupperneq 26

blaðið - 24.07.2007, Qupperneq 26
38 ÞRIÐJUDAGUR 24. JÚLÍ 2007 blaöió FÓLK folk@bladid.net Jú, er það ekki? Maður verður að birgja sig upp fyrir veturinn! Er strangur laxakúr framundan hjá þér? Karl J. Steingrimsson, betur þekktur sem Kalli í Pelsinum, datt heldur betur í lukkupottinn um helgina þegar hann veiddi heila 84 laxa í Straumunum ásamt fjölskyldu. Er þetta met í ár, enda veiði verið heldur dræm fram að þessu. Laxa- kúrinn er afar vinsæll megrunarkúr um þessar mundir. HEYRST HEFUR Nýja Simpson myndin verður heimsfrumsýnd á föstudaginn og bíða margir eftir gulu mannvitsbrekkunni Hómer með eftirvæntingu. Ekki síst fyrir þær sakir að myndin verður talsett á íslensku sem margir hafa gagnrýnt, helst fyrir þær sakir að einhverjir brandarar glatist í þýðingu Davíðs Þórs Jónssonar. Þeim til hughreystingar skal bent á að auðvitað verður myndin einnig sýnd á ensku og því ekki hundrað i hættunni... jt Sjarmörinn söngelski, Garðar Cortez, er mál málanna í Bretlandi, ef undanskilin er vot veðráttan. í gær kom út smáskífa með Garðari sem aðeins er gefin út í takmörkuðu upplagi og er hugsuð sem einskonar hvatning fyrir almenning til þess að kaupa breiðskífuna sem kemur út síðar. Ljóst er að Einar Bárðason hefur ráð undir rifi hverju þegar kemur að markaðsmálum og má fastlega búast við þvi að Garðar verði orðinn stærri en Spice Girls ef fram fer sem horfir... Hér I dálkinum var fyrir helgi sagt af meintum fjarvistum Glúms Baldvinssonar, upplýsingafulltrúa Tryggingastofnunar, af skrifstofunni. Að betur athuguðu máli hefur komið í ljós að sagan átti ekki við rök að styðjast. Blaðið biður Glúm afsökunar, svo og aðstandendur hans, sem nefndir voru í molanum Þórdís Elva Þorvaldsdóttir er leikkona og leikskáld Leikhúsiö getur veriö beitt Þórdís Elva Þorvalds- dóttir Bachmann stendur fyrir óvenjulegum at- burði á miðvikudaginn þegar útvarpsleikritið Mæja spæja verður frum- flutt með viðhöfn á 29 stöðum í einu. Eftir Trausta Saivar Kristjánsson traustis@bladid.net „Þetta hefur ekki verið gert áður að mínu viti. Slíkar frumsýningar eru alþekktar í kvikmyndaheiminum, en samhæfður frumflutningur á leikriti í bókasöfnum víðs vegar um landið held ég að sé nýlunda," segir Þórdís Elva sem er einnig menntuð leikkona. „Leikkonustarfið hefur verið í smá pásu undanfarið. Ekki vegna þess að ég vilji síður sinna því, heldur hafa málin einungis þróast með þessum hætti. Ég lék til dæmis í sjónvarpsseríu fyrir Sirkus, sem og CIA-fulltrúa í lokaþætti dönsku sakamálaseríunnar Arnarins, sem sýnd var á RÚV síðasta vetur. Það var mjög gaman að fá að vera í dragt frá Karen Millen og sveifla skammbyssu og allt það. Reyndar var móðir mín ekki ánægð með mig því ég varaði hana ekki við því fyr- KONAN Þórdís er 26 ára Hún útskrifaðist sem leikkona frá University of Georgia í Bandaríkjunum árið 2003 Hún hefur áhuga á ferða- lögum og er á leið í heims- reisu með kærastanum um áramótin irfram að persónan mín yrði skotin í höfuðið. Henni brá aðeins við það, skiljanlega.“ Vill hafa áhrif á samfélagið „Annars get ég fúslega viðurkennt að ef ég þyrfti að velja á milli leik- konustarfsins og leikskáldsins yrði það síðarnefnda líklega fyrir valinu. Mér þykir meira spennandi að vera röddin bak við leikverkið heldur en röddin sem túlkar það. Það kitlar mig meira að reyna hafa einhver samfélagsleg áhrif því leikhúsið er svo sannarlega vettvangur til þess. Fólk áttar sig ekki alltaf á því hversu beitt og pólitískt leikhúsið getur i rauninni verið. Auðvitað keppir það ekki við afþreyingar- iðnaðinn, sem hefur úr meira fjár- magni, fólki og tækni að spila. Því þarf leikhúsið að finna sér sérstöðu og ég aðhyllist persónulega stefnu sem á ensku nefnist „theater for social change“. Að vera spegill á samfélagið og ögra gildum samtím- ans í gegnum leikhúsmiðilinn. Gott dæmi um þetta er þegar ég fór á ráðstefnu 50 ungra leikskálda árið 2005 og sá að flestir voru með ein- hvers konar ádeilu á vandamálin heimafyrir. Stúlka frá Mexíkó gerði leikrit um eiturlyfjavandann og stríð milli glæpaklíkna þar. Höfundur frá Króatiu gerði leikverk um mansal. Svo var það ég, frá forréttindasam- félaginu íslandi, sem gerði leikrit sem fjallaði um átraskanir. Dæmi- gert segja eflaust sumir, en napur- leg staðreynd á þeim tíma var sú að þrátt fyrir að þúsundir þjáðust af þessum sjúkdómi hér á landi, voru aðeins þrjú spítalarúm á höfuðborg- arsvæðinu fyrir fullorðið fólk með þennan sjúkdóm. Þetta var auð- vitað ákveðin hneisa, sem mér þótti vert að fjalla um. Þórdís rekur sjálf leikfélagið Fimb- ulvetur. „Ásamt Borgarleikhúsinu settum við upp verkið Hungur eftir mig, sem var mjög gaman og lærdómsríkt. Þegar maður rekur leikfélag af þessari stærðargráðu hefur maður ekki efni á að ráða tutt- ugu manns í vinnu til að sinna bún- ingum, lýsingu, leikmynd og slíku. Því er ég komin með ágætis reynslu undir beltið,“ segir Þórdís. BLOGGARINN... Grínstuldur „Á spjallborði einu sem leysir Gestapó Baggalúts af í sumarfríi kom einn af notendum spjallsins með hlekk á umsögn um kvikmynd eina sem Enter á Bagglút hafði skrifað gagnrýni um þann 26. januar á þessu ári. A vefnum Kvikmyndir.is er umsögn um sömu mynd skrifuð 29. apríl 2007 af manni sem heitir Ólafur Kr. Sveinsson en hann tekur allan texta Ent- ers og gerirað sínum. Þetta erað mínu mati einhver grófasti ritstuldur sem ég man eftirað hafa séð.“ Hrafnkell Daníelsson keli.blog.is VG í hnotskurn „Mér hefur áskotnast eintak af „Sögu Islands 1850-2007” sem Sverrir Jakobs- son, sagnfræðingur og málsvari Malthus- arkenningarinnar, hefur skrifað fyrir flokksmenn Vinstri Grænna. Hér er útdráttur úr henni: Um miðja 19. öldina lifþu Islendingar í sátt við náttúruna, ósnortnir af hnatt-, græðgi- og klámvæðingu. Þá var gullöld þjóðarinnar og allt þjóðlíf i blóma. [...] öll þjóðfélags- þróun sfðustu 140 ára hefur verið slæm. Andleg og efnisleg velferð þjóðarinnar hef- uraldrei verið minni. [...jÞetta stafarafþví að Islendingar hafa lyft heilbrigðum höft- um afhinum mannfjandsamlega græðgi kapítalisma, tekið þátt í árásargjörnum hernaðarbandalögum og svivirt hina um- hyggjusömu móður okkar, náttúruna. “ Hans Haraldsson polites.blog.is Kynjablaður „Karlmenn blaðra eins mikið og konur. Þeirnota 16.000 orð á dag eins og konur. ,W*r Þetta er niðurstaða mj sL rannsóknar Univers- ity of California á mismun kynjanna. Konur eru eins mikið frá Marz og karlar eru eins mikið frá Ven- us. Það var niðurstaða eldri rannsóknar. Komið hefur í Ijós, að tízkukenningar um mun kynjanna eru byggðar á sandi. Kynin eru Ifkari en áður hefur verið talið. Eg tel hins vegar, byggt á reynslu, að konur hugsi meira í neti og karlar meira á línu. Þess vegna muni konum vegna betur í atvinnuvegum, þar sem nethugsun leysir Unuhugsun afhólmi. Til dæmis ífjölmiðl- unum.“ Jónas Kristjánsson www.jonas.is Kjarngóð napring í þaegílegum umbúðum barnamatur is Án viðbaetts sykurs! Án viðbaptts salts! Su doku 6 2 7 1 2 1 8 3 4 9 5 1 6 8 5 2 8 4 8 5 9 3 6 2 9 4 7 6 3 4 9 6 1 5 Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum frá 1-9 lárétt og lóðrétt í reitina, þannig að hver tala komi ekki nema einu sinni fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu má aukin heldur aðeins nota einu sinni innan hvers níu reita fylkis. Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem upp eru gefnar. 9-15__________________© LaughingSlock Irrtemational Inc./disl by Uniled Media. 2004 HERMAIT eftir Jim Unger Rétt stafsetning er ekki innifalin í þessum 40 orðum á mínútu.

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.