blaðið - 11.08.2007, Síða 14
Nýja Grímseyjarferjan
vanhirt og hrörlegt hræ
Skýrsla Ríkisendurskoðunar um
kaup á skipi sem á að þjóna sem
ný Grímseyjarferja er væntanleg í
næstu viku. Skipið, Oilean Arann,
var keypt í lok nóvember árið 2005
frá írlandi á 102 milljónir króna á
verðlagi þess árs. Ferjan hefur enn
ekki hafið siglingar til Grímseyjar
og Kristján L. Möller samgöngu-
ráðherra sagði í útvarpsviðtali á
miðvikudag að hann óttast að heild-
arkostnaður vegna kaupa, viðgerða
og endurbóta ferjunnar verði allt að
600 milljónir króna.
Tveimur mánuðum áður en skipið
var keypt fór hópur fulltrúa frá Sigl-
ingastofnun íslands, Vegagerðinni
og Grímseyjarhreppi að beiðni sam-
gönguráðuneytisins til Irlands að
skoða skipið. Ólafi J. Briem, skipa-
verkfræðingi hjá Siglingastofnun,
var falið að framkvæma sjálfstætt
mat á hentugleika skipsins til að
þjóna sem Grímseyjarferja og skil-
aði hann í kjölfarið matsskýrslu þess
efnis til ráðuneytisins. Skýrslu Ól-
afs, sem Blaðið hefur undir höndum,
var skilað 25. september 2005 og er
hún, vægt til orða tekið, biksvört.
Ástandið vægast sagt hrörlegt
Hópurinn skoðaði skipið þann
23. september 2005.1 upphafi mats-
skýrslunnar sem skilað var í kjöl-
farið segir orðrétt að ástand skipsins
sé „í einu orði sagt hrörlegt sökum
vanhirðu og skorts á viðhaldi. Því til
viðbótar virðist sem ekki hafi verið
staðið nægilega vel að eða vandað til
smíði skipsins." Það beri auk þess
yfirbragð skips sem sé meira en 25
ára gamalt, eða á svipuðum aldri og
Sæfari, sem þjónar sem Grímseyjar-
ferja í dag.
Vanhirða og skortur á viðhaldi
hafi blasað við hvert sem litið væri
um borð í skipinu og þar stendur að
„skortur á viðhaldi og verkvöndun
við smíði skipsins gefi eðlilega til-
efni til þess að ætla að annað ástand
skipsins og búnaðar, sem ekki er
mögulegt að kanna án frárifa og
upptektar, geti verið talsvert lakara
en aldur skipsins gefi tilefni til.“ Því
sé ærin ástæða til að gera ráð fyrir
hinu dapurlega ástandi skipsins við
mat á kostnaði við endurbætur og
viðgerðir sem geti orðið mun hærri
en hann hefði verið ef skipið hefði
fengið eðlilegt viðhald.
|
Eftir Þórð Snæ Júlíusson
thordur@bladid.net
FRÉTTASKÝRING
Skýrslan setur einnig mikinn
fyrirvara við eftirlit með smíði
skipsins og eftirlit með ástandi þess
og segir meðal annars að ekki hafi
komið fram „með skýrum hætti
hvort skipið hafi verið smíðað sam-
kvæmt reglum og undir eftirliti
flokkunarfélags". Síðar segir að
vegna þessa geti kostnaður vegna
úttektar á skipinu og eftirliti þess
orðið „umtalsverður“.
Uppfyllir ekki kröfur Grímseyinga
Grímseyingar lögðu fram
ákveðnar grundvallarkröfur til
nýrrar ferju. Meðal þess sem þeir
lögðu áherslu á var að burðargeta
nýrrar ferju væri meiri en Sæfara
og að lokað lestarrými væri á aðal-
þUfari þess líkt og er á Sæfara, þar
sem vörur hafi afar sjaldan þurft
að vera settar í lest skipsins undir
þilfari. Flutningsgeta Sæfara hefur
enda dugað til þess að hægt sé að
flytja allar vörur sem þarf til og frá
Grímsey við alla álagstoppa. Því
þyrfti ferjan að geta borið allt að
200 tonn.
I matsskýrslu Ólals segir hins
vegar að lestarrými og burðargeta
Sæfara sé „miklu meira“ en Oilean
Arann. Að því leyti fullnægi skipið
ekki þeim kröfum sem til þess séu
gerðar á þessu sviði. Skýrslan segir
að mögulega sé hægt að koma fyrir
lestarrými á aðalþilfarinu til að
auka burðargetuna en að það gæti
aldrei nýst til að koma fyrir meira
en 60 tonna farmi, 140 tonnum
minna en það sem Grímseyingar
sögðu að þyrfti til að þjóna þeim á
sómasamlegan hátt. Til að gera skip-
inu kleift að flytja 200 tonn þurfi
að fara út í töluverðar breytingar á
skipinu sem muni hafa í för með sér
ærinn tilkostnað.
Uppfyllir ekki reglur og staðla
Ein meginástæðaþess að nauðsyn-
legt þótti að kaupa nýja Grímseyjar-
ferju var sú að gamla ferjan uppfýllti
ekki ákvæði tilskipunar frá Evrópu-
sambandinu númer 98/18 sem snýst
um öryggisreglur og öryggisstaðla
fyrir farþegaskip. Tilskipunin var
fest í lög á íslandi með reglugerð
árið 2001.
Vegagerðin hafði látið skoða skipið
ári áður en matsskýrsla Ólafs Briem
var afhent samgönguráðuneytinu.
I skýrslu sem Einar Hermannsson,
annar tveggja sem fóru þá til Irlands
og skoðuðu skipið, skilaði inn þann
19. nóvember 2004, segir meðal ann-
ars: „Oilean Arann uppfyllir þau
grundvallaratriði sem Grímseyjar-
ferja þarf að uppfylla, meðal annars
tilskipun númer 98/18“
Að hóa stórfjölskyldunni saman í lambalæri
fyrir aðeins 0 krónur
i Betri Ieið i heimasima (Langbestur,
mánaðargjald 3.490 kr.) er ekkert
mínútugjald fyrir símtöl úr heimasíma
i alla aóra heimasíma á íslandi
Það er Síminn"