blaðið - 13.09.2007, Blaðsíða 2

blaðið - 13.09.2007, Blaðsíða 2
FRETTiR FIMMTUDAGUR 13. SEPTFMSER 2007 biaöiö Ragnheiður Inga nýr orkumálastjóri Þorkell snýr sér að fræðimennsku Dr. Þorkell Helgason orkumálastjóra, mun því orkumálastjóri hefur ritað \- \ gegna störfum embættis- iðnaðarráðherra bréf og 1|B'ffk ins það sem eftir lifir árs. óskað lausnar frá embætti ý „Ég mun þó ekki setjast í orkumálastjóra frá og með helgan stein eftir áramótin, í. janúar nk. Ráðherra hefur ‘fSáMBljt heldur dunda mér í hluta- þegar orðið við óskinni. jgMdBÉáÍ starfi að áhugamálum Jafnframt hefur ráðherra ÆlÆKBSm mínum sem eru kosninga- veitt Þorkeli leyfi frá dag- ■IHHHhR fræði og skyld málefni. Þau legumstörfumembættisins Þorkell Helgason hef ég fengist við í meira frá og með í. október nk. til hefur verið orku- en aldarfjóðung sem ráð- að sinna fræðistörfum og rnálastjóri í 11 ár. gjafi Alþingis og landskjör- skrifum um orkumál. Dr. stjórnaríallskynskosninga- Ragnheiður Inga Þórarinsdóttir, að- málumsegir Þorkell. stoðarorkumálastjóri og staðgengill hlynur@bladid.net Handrukkari fyrir dóm vegna árása og rána Neyddi mann til að taka út peninga Héraðsdómur Reykjavíkur Hinum ákærða er gefið að sök að hafa barið fórn- arlamb sitt áður en hann neyddi það til að taka út peninga til að afhenda sér. Blaðlð/Árni Sæberg Mál á hendur tæplega þrítugum karlmanni vegna líkamsárása og rána var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Manninum er gefið að sök að hafa aðfaranótt 15. febrúar síðastliðins veist að öðrum manni í heimahúsi í Sandgerði og slegið hann margsinnis með krepptum hnefa þannig að maður- inn meðal annars viðbeinsbrotnaði og hlaut áverka á höfði. Að morgni sama dags fór maðurinn með fórn- arlamb sitt í tvo sparisjóði í Reykja- vík, neyddi það til að taka út alls 110 þúsund krónur af reikningi sínum og afhenda sér með hótunum um frekara ofbeldi. Rúmum mánuði síðar á maðurinn að hafa farið með fórnarlambið í banka í Kringlunni og neytt það með ofbeldi til að láta millifæra rúmlega 307 þúsund krónur yfir á bankareikning sinn. Maðurinn á langan sakaferil að baki og var meðal annars dæmdur í 18 mánaða fangelsi fyrir innflutn- ing á amfetamíni til landsins. Þá staðfesti Hæstiréttur fyrr í sumar 15 mánaða fangelsisdóm yfir mann- inum vegna ýmissa brota. þsj Forstöðu- maður ráðinn á Njáisgötu Erla Björg Sigurðardóttir, fé- lagsráðgjafi og verkefnisstjóri, hefur verið ráðin forstöðumaður umdeilds heimilis fyrir heimil- islausa að Njálsgötu. Umsókn- arfrestur rann út 2. september og sóttu átta um starfið. Rúm verður fyrir átta karlmenn á gistiheimilinu. Bætur vegna ofbeldis 100 milljónir fram úr ■ Fjölgun ofbeldisbrota veldur framúrkeyrslu á fjárlögum ■ Ríkissjóður greiðir einungis hluta bóta vegna miska ■ Fara þarf yfir framkvæmdina segir formaður allsherjarnefndar Leikskólagjöld lækka í Eyjum Grunngjald gjaldskrár leikskóla í Vestmannaeyjum mun lækka um 18,3 prósent frá og með 1. október vegna hagræðingar sem náðist við sameiningu tveggja Ieikskóla. Samkvæmt því mun átta klukku- stunda vistun með fæði kosta 26.580 krónur í stað 31.060 króna, að því er greint er frá á vefnum sudurland.is. Jafnframt er greint frá því að systkinaafsláttur með þriðja barni verði 80 prósent i stað 50 prósenta. Lést í banaslysi Maðurinn sem lést í umferðar- slysi á Suðurlandsvegi í Ölfusi á þriðjudagskvöld hét Sigurður Guðmarsson til heimilis að Ás- vegi 11 í Reykjavík. Sigurðurvar 62 ára og lætur eftir sig fjögur uppkomin börn. Eftir Frey Rögnvaldsson freyr@bladid.net f nýrri skýrslu Ríkisendurskoð- unar kemur fram að útgjaldaliður- inn bætur til brotaþola fór langt fram úr fjárheimildum fjárlaga ársins 2006, eða 134 milljónir króna. Athygli vekur að greiðslur úr ríkis- sjóði vegna bóta til brotaþola fóru 15 milljónir króna fram úr fjárheim- ildum árið 2005 og 16 milljónir árið 2004. Þetta er því gríðarleg aukning milli ára og ljóst að fjármagn til þessa liðar á fjárlögum hefur verið verulega vanáætlað. Ríkissjóður greiðir brotaþolum bætur í þeim tilfellum þar sem brota- menn eru ekki borgunarmenn fyrir þeim og einnig í þeim tilfellum þar sem ekki er vitað hver brotamað- urinn er. Hins vegar er hámarks- fjárhæð á bótum frá ríkissjóði og I mörgum tilfellum fá brotaþolar ekki greiddar til fulls þær bætur sem þeim eru dæmdar. Greiðsla bóta lögbundin f svari Björns Bjarnasonar dóms- málaráðherra við spurningum um ástæður þessarar framúrkeyrslu kemur fram að greiðsla bóta til brotaþola sé lögbundin og því hafi ráðuney tið ekkert vald yfir þeim fjár- hæðum sem um ræðir. „Akvörðun um bótaskyldu hins dæmda manns og fjárhæð bóta er tekin af dómara og ákvörðun um greiðsluskyldu 'S'graenmeti sérmerkt þér! Bætur til þolenda fóru fram úr fjárheimildum Fjölgun ofbeldisbrota er ein skýringin á því að málaflokkurinn fór fram úr fjárlögum. Blaðið/Sverrir ríkisins er síðar tekin af sjálfstæðri bótanefnd. Ráðuneytin standa því í hvert sinn frammi fyrir ákvörð- unum sem aðrir taka og eiga ekki annars úrkosti en að greiða sam- kvæmt því sem þar er ákveðið," segir Björn. Hvað varðar skýringar á þessum mikla vexti í ákvörðuðum bótum er einþeirra sú að umsýsla bótanefndar var færð til embættis sýslumanns- ins á Siglufirði. Hafi þær breytingar skilað góðum árangri ög leitt til þess að fleiri kröfur koma til greiðslu að sögn dómsmálaráðherra. Samkvæmt upplýsingum frá sýslu- mannsembættinu á Siglufirði komu um 340 mál inn á borð bótanefndar árið 2006 samanborið við um 200 mál árið 2005. Um 175 mál voru síðan afgreidd frá nefndinni árið 2006. Það er því ljóst að ofbeldismálum er að fjölga og er það ein skýring þess hversu mikið málaflokkurinn fer fram úr áætlun á fjárlögum. Vegna fjölgunar mála af þessu tagi á undanförnum árum var sú staða komin upp að bótanefnd komst ekki til að sinna öllum þeim erindum sem henni bárust og því drógust mál á langinn. Þegar mála- flokkur bótanefndar var fluttur til sýslumannsins á Siglufirði á síðasta ári þurfti því að vinna upp uppsafn- aðan vanda og því voru útgjöld til málaflokksins óeðlilega lág árin Slydda norðantil Gengur í norðan 18-25 með rigningu og jafn- vel slyddu norðantil, en hægari suðaustan- og austantil fram eftir degi. Kólnar og hiti víða 1 til 6 stig síðdegis. El norðaustanlands Norðanátt, 10-15 m/s við norðausturströnd- ina, en hægari annars staðar. Él norðaust- anlands, en lægir og styttir upp síðdegis. Léttskýjað sunnan- og vestanlands. Hiti 0 til 8 stig, hlýjast syðst, en víða næturfrost. Viðvörun: Búist er við stormí um vestan- og norðanvert landið og á miðhálendinu. VÍÐA UM HEIM Algarve 22 Halifax 19 New York 19 Amsterdam 18 Hamborg 17 Nuuk 17 Ankara 24 Helsinki 15 Orlando 24 Barcelona 25 Kaupmannahöfn 15 Osló 18 Berlín 15 London 20 Palma 25 Chicago 24 Madrid 30 París 19 Dublin 18 Mílanó 24 Prag 18 Frankturt 18 Montreal 13 Stokkhólmur 15 Glasgow 17 Munchen 20 Þórshötn 11 BÆTUR TIL ÞOLENDA ► Bótanefnd tekur ákvörðun um greiðslu bóta. í henni eiga sæti þrír menn, skipað- ir af dómsmálaráðherra til fjögurra ára í senn. ► Um það bil helmingi þeirra erinda sem berast til bóta- nefndar iýkur að jafnaði með greiðslu bóta, einum fjórða er hafnað og fjórðung- ur erinda er dreginn til baka eða fellur niður af ýmsum orsökum. 2004 og 2005 en óeðlilega há árið 2006. Þetta er að hluta til skýring á því hversu mikið málaflokkurinn fór fram úr fjárheimildum Full ástæða til að leita skýringa Birgir Ármannsson, formaður allsherjarnefndar Alþingis, segir að það sé full ástæða til að skoða skýr- ingarnar á þessu. „Greiðsla til brota- þola byggir hins vegar á lögum og það getur verið erfitt að áætla fyrir- fram kostnaðarliði af þessu tagi. Á þessu geta verið ýmsar skýringar en auðvitað verður að fara yfir það hvernig framkvæmdinni hefur verið háttað." ÞEKKIRÞÚ TIL? Hringdu í síma 510 3700 eða sendu póst á bladid@bladid.net STUTT • 1700 athugasemdir Athuga- semdir bárust frá alls 1.674 einstaklingum og samtökum við hugmyndir að skipulagi á hafnar- svæði á Kársnesi. Þar af bárust 1.117 af Kársnesinu sjálfu. Lang- flestar bárust eftir að bæjarráð Kópavogs ákvað að framlengja frest til 3. september. Leiðrétting Vegna viðtals við Björgvin G. Sigurðsson viðskiptaráðherra sem birtist í Blaðinu í gær skal áréttað að reikningar sem ráðuney tið hefur endurgreitt vegna ráðherrans nema um það bil 10.000 krónum frá embættis- töku í lok maí, ekki á viku eins og sagt var. Leiðrétt Ritstjórn Blaðsins vill leiðrétta hvaðeina, sem kann að vera missagt í blaðinu. Leiðréttingar birtast að jafnaði á síðu 2.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.