blaðið - 13.09.2007, Blaðsíða 6
6
FRÉTTIR
FIMMTUDAGUR 13. SEPTEMBER 2007
blaöíö
Brot á útivistarreglum bama og unglinga
Færðir í athvarf og sóttir af foreldrunum
Eftir að hverfislögreglan í Breiðholti fór
að láta foreldra sækja börn og unglinga, sem
voru úti á kvöldin eftir að útivistartíma lauk,
í sérstakt athvarf á lögreglustöðinni batnaði
ástandið gríðarlega, að sögn Heimis Ríkarðs-
sonar aðalvarðstjóra.
„Það er ekki skemmtilegt fyrir foreldrana
að þurfa að koma hingað auk þess sem okkur
ber að tilkynna barnaverndaryfirvöldum um
öll afskipti af börnum yngri en 18 ára,“ segir
Heimir.
Svæðislögreglumenn á höfuðborgarsvæð-
inu sinna sérstökum athvarfsvöktum, sem
eru í samvinnu við íþrótta- og tómstundaráð
og þjónustumiðstöðvar, einu sinni til tvisvar
sinnum í mánuði. „Við hér í Breiðholtinu
höfum auk þess fjölgað eftirlitsferðum hverf-
islögreglumanna gagngert til þess að sjá til
að forráðamenn geri sér æ betur grein fyrir
því að reglur um útivistartíma séu settar
börnunum til verndar. „Unglingarnir segja
þess að útivistartíminn sé virtur öll kvöld,“
greinir Heimir frá.
Það er mat lögreglunnar í Breiðholtinu
[ Börnunum til verndar Heimir Ríkarðs-
son, aðalvarðstjóri svæðislögreglunnar í
Breiðholti, segir foreldrum ekki heimilt að
lengja útivistartíma barna.
stundum að foreldrarnir leyfi þeim að vera
lengur úti um helgar en það er einmitt þá
sem þeir eru í mestri hættu. Foreldrum er
ekki heimilt að lengja útivistartíma barn-
anna en ég tel samt að fólk sjái það betur og
betur að þetta er börnunum til verndar. Nú í
haust sendum við aðalvarðstjórar á svæðis-
stöðvum einnig foreldrum bréf um reglurnar
í gegnum skólana,“ segir Heimir.
Á fyrstu athvarfsvaktinni í fyrrahaust
hafði lögreglan afskipti af 25 börnum vegna
brota á útivistarreglum en aðeins 6 á fyrstu
vaktinni í haust.
Frá og með 1. september mega 12 ára börn
og yngri ekki vera úti lengur en til klukkan
20 en 13 ára til 16 ára eiga að vera komin inn
klukkan 22.
ingibjorg@bladid.net
Hvönn hefur áhrif á bragð
Niðurstaða rannsóknar sem Matís hefur gert á lömbum frá Ytri-Fagra-
dal á Skarðsströnd í Dalabyggð er sú að það hefur áhrif á bragð af
lambakjöti ef lömbunum er beitt á hvönn.
Um er að ræða samvinnuverkefni á vegum hjónanna í Ytri-Fagradal,
Búnaðarsamtaka Vesturlands, Landbúnaðarháskóla fslands og Matís.
Fram kemur á fréttavef Skessuhorns að samkvæmt mati sérþjálfaðs
hóps hjá Matís hafi hvannalömbin meiri kryddlykt og kryddbragð í
samanburði við lömb sem ganga í hefðbundu beitarlandi. Stefnt er að
frekari rannsóknum á þessu sviði á næstu misserum. mbi.is
VIÐ HÖFUM ALLAR GERÐIR BÍLA
5-9 MANNA
I 12 Reykj;
í miklu úrvali
Eikarparket 14mm, 3 stafa
Tilboð kr. 2.290.-m2
AtFABORG
Skútuvogi 6 • Sími 568 6755
Rafha ehf. er framsækið fyrirtæki
sem flytur inn og selur heimilistæki
og innréttingar frá heimsþekktum
framleiðendum á boró við Electro-
lux, AEG, Zanussi og Lineadecor.
Rafha leggur metnað sinn í að bjóða
fyrsta flokks þjónustu, fjölbreytt úrval
og gott verð.
Rafha ehf. leitar að metnaðarfullum og árangursdrifnum
sölumönnum með ríka þjónustulund og geta hafið störf
sem fyrst.
Sala og ráðgjöf til viðskiptavina á heimilistækjum
Almenn afgreiðsla og fragangur sölu
Utstillingar og umsjon með verslun í samráði
við verslunarstjóra
Hæfniskröfur
Reynsla af sölustörfum
Rík þjónustulund og góð framkoma
Sjálfstæð vinnubrögð og frumkvæði
Öguð vinnubrögð og samviskusemi
Snyrtimennska
í boðí er
Þægilegur vinnustaður með fjölbreytt verkefni
og sanngjörn laun
Áhugasamir eru vinsamlegast beðnir að sækja um með
því að senda inn umsókn á netfangið ingvi@rafha.is.
Æ
Suðurlandsbraut 16 108 Reykjavík Sími 5880500
www.rafha.is
Stærstu mótvægis-
aðgerðir sögunnar
■ Mótvægisaðgerðir ríkisstjórnarinnar vegna skerðingar þorskkvóta
kosta 10,5 milljarða ■ Fjórir og hálfur milljarður í beinar aðgerðir
Eftir Þórð Snæ Júlíusson
thordur@bladid.net
„Þetta er öflugasta mótvægisað-
gerð sem nokkur ríkisstjórn hefur
nokkurn tímann gripið til and-
spænis erfiðleikum,“ sagði Össur
Skarphéðinsson iðnaðarráðherra
þegar mótvægisaðgerðir ríkis-
stjórnarinnar vegna samdráttar í
þorskafla voru kynntar í Þjóðmenn-
ingarhúsinu í gær. Áætlað er að að-
gerðirnar kosti alls um tíu og hálfan
milljarð króna, þar af fer um fjórir
og hálfur milljarður króna í beinar
aðgerðir.
Auk Össurar kynntu þau Þor-
gerður Katrín Gunnarsdóttir
menntamálaráðherra, Árni Mathie-
sen fjármálaráðherra og Jóhanna
Sigurðardóttir félagsmálaráðherra
aðgerðirnar. Árni sagði ráðherr-
ana hafa notið ráðlegginga Byggða-
stofnunar við úthlutunina. „Hún
ráðlagði okkur að horfa til þeirra
sveitarfélaga sem hafa hátt hlutfall
starfsfólks í sjávarútvegi, bæði í
veiðum og vinnslu, og þeirra svæða
þar sem hagvaxtar hefur ekki notið
við að undanförnu. Það sem gerir
þetta mál dálítið flóknara er að á
ákveðnum stöðum á landinu geta
MÓTVÆGISAÐGERÐIR
_ Beinar aðgerðir: Kosta
um fjóra og háifan milljarð
króna.
►
►
Byggðastofnun: Aflétting
lána við ríkissjóð.
Flýting framkvæmda: Vega-
framkvæmdir, Akureyrar-
flugvöllur og fjarskiptamál.
► Önnur verkefni og aðgerðir:
Aukaframlög til tæknimála,
niðurfelling veiðigjalds,
tenging ísafjarðardjúps við
raforkukerfi, styrking raf-
orkukerfisins á Norðurlandi
og framlag til Hafrannsókna-
stofnunar.
► Ólokin verkefni: Úrvinnslu-
verkefni fjármáiafyrirtækja.
verið erfiðleikar vegna þessa sam-
dráttar, en annars staðar eru ennþá
einkenni hagvaxtar.“
Beinar aðgerðir
Beinar aðgerðir sem eiga hafa
áhrif samstundis munu kosta alls
um fjóra og hálfan milljarð króna.
Meðal þess sem fellur undir þann
flokk er umfangsmikið viðhalds-
verkefni á vegum Fasteigna ríkis-
ins upp á einn milljarð króna, 750
milljóna króna fjárframlög til
sveitarfélaga og 240 milljóna króna
framlag til Þjóðskjalasafns Islands
vegna grunnskráningar skjala úr
óskráðum skjalasöfnum og gerðar
stafrænna manntala. Gert er ráð
fyrir því að það verkefni skapi 20
störf árlega og að það verði unnið
í samstarfi við héraðskjalasöfnin
á Isafirði, Sauðárkróki og Húsavík.
Þá verða rúmlega 300 milljónir
króna veittar til eflingar frum-
greinadeilda á Suðurnesjum og
Vestfjörðum, komið verður á fót
háskólasetrum víðsvegar um landið
og styrkir til ferðaþjónustu munu
aukast verulega.
217 milljónir króna verða settar
aukalega í Atvinnutryggingarsjóð
til að mæta auknu atvinnuleysi og
150 milljónir króna í jarðhitaleit,
meðal annars á Vestfjörðum, á
næstu þremur árum.
Ráðherrarnir vonast til að þessar
aðgerðirnar skapi um 500 til 600
störf og námspláss en lögðu áherslu
á að þær miðuðu einnig að því að efla
innviði samfélaga sem yrðu fyrir
áhrifum af kvótaskerðingunni.