blaðið - 13.09.2007, Blaðsíða 19
VILTU SKIPTA MÁLI
OG NJÓTA ÞÍN I STARFI?
Landsteinar Strengur
Ef þú vilt starfa í samhentum og öflugum hópi sérfræðinga og ráðgjafa
þá hlökkum við til að kynnast þér. Vegna aukinna verkefna óskum við eftir
metnaðarfullum einstaklingum í eftirfarandi stöður:
Landsteinar Strengur er einn stærsti söluaöili á viðskiptahugbúnaði
frá Microsoft Business Solutions á íslandi og þróunar- og söluaðili á
Microsoft sérlausnum á erlendum mörkuðum.
Landsteinar Strengur er í fremstu röð fyrirtækja í heiminum sem
framleiða hugbúnaðarlausnir byggðar á Microsoft Dynamics NAV/AX
fyrir smásöluverslun og veitingarekstur.
HUGBÚNAÐARSÉRFRÆÐINGAR
Hugbúnaðarsérfræðingar óskast víð ráðgjöf, þarfagreiningu, forritun og innleiðingu á Microsoft
Dynamic NAV (Navision), Dynamics AX (Axapta) og Dynamics XAL (Concorde). Einnig vantar til
starfa hugbúnaðarsérfræðingavana.NETforritunarumhverfinu og/eða Delphi forritunarmálinu
Verslunarkerfið LS Retail er uppsett í 130 löndum, þýtt á 33 tungumál
og er dreift um net 75 vottaðra samstarfsaðila í 51 landi.
Við hjá Landsteinum Streng teljum afar mikilvægt að starfið sé
fjölskylduvænt og vinnutíminn sveigjanlegur, og höfum einsett okkur
að vera vel samkeppnishæft fyrirtæki á markaði - ekki síst hvað varðar
launakjör. Við bjóðum reglulega starfsþjálfun, öflugt starfsmannafélag
og góða vinnuaðstöðu auk ýmissa fríðinda.
Fyrirtækinu er stjórnað á gegnsæjan hátt, því er starfsfólk hvatt og
stutt til að láta rödd sína heyrast því að við teljum mikilvægt að styðjast
við skoðanir og viðhorf þess við mótun stefnu og framtíðarsýnar.
Hæfniskröfur: Gerð er krafa um háskólapróf í tölvunarfræði, verkfræði eða viðskiptafræði.
Reynsla af viðskiptakerfum er kostur.
ÞJÓNUSTA OG RÁÐGJÖF
Við leitum eftir starfsmönnum í þjónustudeild Landsteina Strengs. Um er að ræða þjónustu og
ráðgjöf á viðskiptalausnunum Microsoft Dynamics NAV og Dynamics AX. Einnig óskum við eftir
starfsmönnum til að þjónusta og setja upp verslunarlausnir Landsteina Strengs.
Hæfniskröfur: Æskilegt er að umsækjendur hafi háskólamenntun á sviði viðskipta og reksturs,
en einnig kemur til greina að ráða fólk með mikla reynslu á þessu sviði. Áhersla er lögð á víðtæka
þekkingu á rekstrarumhverfi fyrirtækja.
Landsteinar Strengur hf. leggur áherslu á að ráða hæfasta fólkið til starfa á sínu sviði á hverjum
tíma. Það skiptir okkur miklu máli að starfsmenn leggi allan sinn metnað í vel unnið verk, að þeir
séu í góðu sambandi við samstarfsfólk, beri út jákvæða ímynd fyrirtækisins og njóti sín í starfi. Aðrir
eiginleikar sem við leitum eftir eru skipulagshæfileikar, rík þjónustulund, nákvæmni, frumkvæði,
agi til þess að vinna undir verklagsreglum og vilji til sjálfstæðra vinnubragða.
Umsóknir óskast sendar á netfangið atvinna@LS.is eða í pósti. Umsóknarfrestur er til
12. október nk. Allar upplýsingar um ofangreindar stöður veitir Sigurður Ari
Sigurjónsson í síma 550 9000.
Viðurkenningar:
Microsoft Dynamics Regional ISV Partner of the Year 2007
Microsoft Business Solutions Global ISV of the Year 2005
LS Retail NAV - Certified for Microsoft Dynamics
Micmsoft
GOLD CERTIFIED
Landsteinar Strengur hf.
Ármúla 7-108 Reykjavík
Sími 550 9000
Fax 550 9010
www.LS.is • LS@LS.is
VOTTUNHF
IST ISO 9001
Partner