blaðið

Ulloq

blaðið - 13.09.2007, Qupperneq 30

blaðið - 13.09.2007, Qupperneq 30
30 FJMMTUDAGUR 13. SEPTEMBtH 2UU b(aó:c FÓLK folk@bladid.net Jú, enda var keppinauturinn í góðu Voda- fone-sambandi við auglýsingagerðina. Þeir velja greinilega besta þjónustuaðilann og við bjóðum þá velkomna í viðskipti. WV*;>. r Hrannar, ertu ekki ánægður með Síma-auglýsinguna? Hrannar Pétursson er upplýsingafulltrúi Vodafone á Islandi, en merki símafyrirtækisins brá fyrir í hinni metnað- arfullu og umdeildu 3G-auglýsingu Símans, þeirra helsta keppinautar. HEYRST HEFUR Söngvaskáldið Hörður Torfa hefur í mörgu að snúast Séð & Heyrt hefur löngum verið þekkt fyrir áreiðanleika og heiðarleika í skrifum sínum um stjörnurnar. Þó er viðbúið að ein og ein mistök slæðist með af og til. f umfjöllun blaðsins um Val Einarsson, sem upplifir sig sem konu og er því kven- maður fastur í karl- mannslíkama, gætir slíkra mis- taka. Þar segir að Valur (Vala) ^ sékarlfastur * íkvenmanns- líkama... Alnetið hefur þótt sniðugur staður fyrir skoðanakannanir og virðist ekkert lát á slíkum uppákomum. Nú stendur yfir kosning á ofmetnustu tónlist- armönnunum á jakobsmagg. blog.is og kemur þar ýmislegt fróðlegt i ljós. Meðal þeirra sem nefndir hafa verið eru Elvis, Sinatra, Sting, Bono, Björgvin Halldórsson, Gunnar Þórðarson og sjálfur Garðar Thór Cortez. Allt eru þetta nöfn sem hafa átt gríðarlega góðu gengi að fagna og þykja virtir listamenn, þó ekki sé neitt annað en plötusala tekin með í dæmið. Hins vegar kemur ein tilnefningin eins og þruma úr heiðskíru lofti, en það er sjálf Leoncie, sem þrátt fyrir einstakar lagasmíðar sínar hefur ekki beint fangað hug og hjörtu fslendinga. Því kemur allt tal um að hún sé ofmetinn listamaður, töluvert á óvart... Sögusagnir eru um að hluti nýj- ustu myndar um fornleifafræð- inginn Indiana Jones verði tek- inn upp hér á landi, en myndin ku vera byggð á bók Erichs Von Dánikens, Voru guðirnir geim- farar. fslandsvinurinn Harrison Ford snýr aftur á hvíta tjaldið í myndinni sem nefnist Indiana Jones and the Kingdom of the Crystal Skull en ekki hefur komið fram um hvaða staði á landinu sé um að ræða. Syngur um höfnun og sjálfskoðun Söngvaskáldið og leik- arinn Hörður Torfason hefur í mörg horn að líta um þessar mundir. Þriðja plata seríunnar um Vitann lítur dagsins Ijós á næstu dögum auk þess sem árlegir hausttón- leikar Harðar fara fram næstkomandi föstudag í Borgarleikhúsinu. Eftir Halldóru Þorsteinsdóttur halldora@bladid.net „Þetta er þriðja platan í ævintýr- inu um Vitann og nefnist Jarðsaga. Nú hef ég lokið við Loftsögu, Eld- sögu og Jarðsögu og svo eru tvær plötur eftir. Allar eru plöturnar byggðar á reynslu minni og starfi sem söngvaskáld,“ segir Hörður að- spurður um nýju plötuna. „Sögurnar á diskunum gerast allar í einum vita og fjalla um mann sem tekst á við sjálfan sig. Þær fjalla um vilja mannsins til að vera hann sjálfur og baráttu hans til þess að ná því takmarki. Nýj- asti diskurinn fjallar um höfnun og hvernig manneskjan tekst á við höfnun. Ég lít nefnilega svo á að maður eigi ekki að gefast upp ef manni er hafnað. Það er í lagi að sumir hafi aðrar skoðanir en maður sjálfur og í stað þess að láta þá brjóta sig niður á maður að skoða sjálfan sig og vera jákvæður. Það er nú boðskapurinn í þessu öllu.“ Líður vel á álagspunktum Hörður heldur árlega hausttón- leika í Borgarleikhúsinu næstkom- andi föstudag, en tónleikana hefur hann haldið í rúma þrjá áratugi við góðan orðstír. „Þetta er 32. árið sem ég er með þessa tónleika. Ég byrjaði þrjátíu ára gamall og virðist hafa haldið sæmilega góðum velli. Það koma alltaf margir og því þurfti ég að bæta við aukatónleikum. Nú held ég tvenna tónleika á kvöldi og yfir- leitt er uppselt í bæði skiptin," segir Hörður, en aðspurður segist hann hvergi nærri hættur. „Svo lengi sem mér endist heilsa og kraftur þá held ég áfram. Þetta er alltaf mjög skemmtilegt, þó svo Líður vel á álagspunktum Þrátt fyrir miklar annir vegná tónleikahalds, plötuútgáfu og undirbúnings næstu plötu er Höröur Torfason hinn hressasti. að mikið sé að gera. Ég er einn í þessu og það getur tekið sinn toll að standa að tónleikum og plötuút- gáfu auk þess að planleggja túra um landið. En á álagspunktum finnur maður hvers megnugur maður er, sem er gaman.“ Árleg hringferð farin fyrir bí „Fólk er byrjað að hringja víðs vegar að á landinu og spyrja hvenær ég komi. Ég hef alltaf haldið í stóra hringferð og sungið fyrir fólk. Þá segi ég líka sögur ásamt því að spjalla við fólkið um lífið og réttindi okkar sem manneskjur. Ég er menntaður MAÐURINN ► ► Hörður er 62 ára gamail. Hann útskrifaðist sem leik- ari í maí 1970 frá Leiklistar- skóla Þjóðleikhússins og hefur komið víða við sem söngvaskáld. Hörður stofnaði Samtökin 78 og hefur farið mikinn í baráttu sinni fyrir réttindum samkynhneigðra. leikari og það sem ég lagði upp með í byrjun var andrúmsloftið í gömlu ís- lensku baðstofunni þar sem fólk sat á kvöldin og söng ásamt því að segja sögur,“ segir Hörður, sem lætur þó stærri tónleikaferðir um landsbyggð- ina lönd og leið þetta árið. „Síðasta stóra ferðin var í fyrra. Það eru breyttir tímar og plássin mörg að leggjast af, auk þess sem sjón- varpsnotkun er orðin mikil. Ég hef bara ekki efni á því að mæta lengur og spila fyrir 3-4 manneskjur. En ég mun auðvitað skreppa út á land af og til. Á miðvikudaginn verð ég til dæmis á Patreksfirði og á ísafirði á fimmtudeginum," segir Hörður að lokum. NÝIR KJÓLAR KOMNIR Suðurlandsbraut 50, (bláu húsunum við Fákafen). Endilega kíktu inn á www.gala.is Opið 11-18» 11-16 lau. Sími 588 9925 <Diza Síðasti sjéns! Bútasölunni lýkur um helgina, hættum með bútasaumsefni. (Diza Laugavegi 44 • Sími 561 4000 • www.diza.is Ath. Opið laugardag og sunnudag Su doku 9 7 2 1 8 5 5 1 9 6 7 8 4 2 5 7 3 8 3 6 3 6 5 4 8 1 3 5 7 3 2 1 Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum frá 1-9 lárétt og lóðrétt í reitina, þannig að hver tala komi ekki nema einu sinni fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu má aukin heldur aðeins nota einu sinni innan hvers níu reita fylkis. Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem upp eru gefnar. hætta að gera þessar tilraunir.

x

blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.