Orðlaus - 01.02.2004, Page 8

Orðlaus - 01.02.2004, Page 8
Ef þú spyrð fólk að þessu þá er á hreinu að þú átt eftir að fá viðbrögð úr sitthvorum endanum. Sumir eiga eftir að segja Hell No! Og aðrir segja Já, af hverju ekki? Málið er að það er ekki til neitt einfalt svar við þessu vegna þess að það fer allt eftir einstaklingunum sem eiga í hlut og sögunni sem liggur að baki, en eitt eru þó sálfræðingar og geðlæknar sammála um; Konur og menn sem hafa útlit og kynþokka á sama plani geta aldrei verið "bara" vinir. Mannlegt eðli og óviðráðanleg instikt spilla fyrir því. Við erum jú "bara" spendýr. j Vinskapur er laus við kynferðislegar langanir. Ekki þekki ég neinar vinkonur J sem sofa saman. Ef þær gerðu það þá væru þær eflaust samkynhneigðar eða í það minnsta bæ og fyrr eða síðar myndi verða uppgjör í "vinskapnum". í raunverulegu vinasambandi sefur fólk ekki saman því vinskapur eins og við skilgreinum hann f dag er annarskonar samband. Vinum langar ekki upp í rúm saman að gera dodo -þess vegna kallast það vinskapur. Stelpur eiga oft homma vini sem langar ekkert til að sofa hjá þeim | og þær hafa engann áhuga á að sleppa • sér með hommanum. Þau eru bara vinir. ; Þegar fólk af gagnstæðu kyni laðast að hvort öðru þá er margt sem spilar inn í, en ef bæði eru aðlaðandi í augum hvors annars þá munu alltaf litlar öldur veltast um f undirvitundinni (eða þess vegna yfir) sem hvfsla: Kannski gæti einhverntfman eitthvað gerst. Okkurfinnst gaman að eiga "vini' af því með því fáum við jákvæða athygli frá hinu kyninu Þegar þú ert á lausu þá er ekkert vandamál ; að eiga stráka "vini" út um allt. Þá skiptir það engu máli að hormónastarfsemin og instinktin flækist með vinskapnum því þú ert bara skuldbundinn sjálfri þér og þarft ekkert að hafa hreinan skjöld gagnvart einhverjum kærasta. Allar stelpur kannast til dæmis við það að hafa á einhverju tfmabili átt "vin" sem þær héngu oft með á kaffihúsum. Og þó að hvorugt tali kannski nokkurn tímann j um það þá er það stundum þannig að “vinurinn" er með væntingar en þú ekki. ' Þannig hefur það allavega verið hjá mér og öllum þeim stelpum sem ég hef rætt þetta við. Okkur finnst gaman að eiga “vini" af því með þvf fáum við jákvæða athygli frá hinu kyninu. Hvaða stelpa, sem er á lausu, hefur ekki gaman af því að eiga "vin" sem hlustar á hana af athygli og finnst hún sæt og skemmtileg? Hana langar kannski ekki til að verða kærastan hans eða sofa hjá honum, en innst inni nýtur hún athyglinnar í botn. Svona sambönd geta varað lengi, jafnvel þótt bæði fari í önnur sambönd, en það kemur Ifka fyrir að tilfinningarnar gangi of langt og þá flosnar upp úr "vinskapnum" sem er að hluta til vinskapur og að hluta til kynferðislegt play. Strákurinn verður frústreraður yfir því að ná aldrei endamarkinu og þess vegna getið þið ekki verið "vinir" lengur. Gaurarnir fara á "hold" vinir sem tala saman í sfmann oft á dag og þá oftast um “börnin". Á yfirborðinu reynum við að gera þetta en inni í okkur er agnarsmár Hulk sem þrammar um, aldeilis ósáttur við aðstæðurnar. 4 Þessi Hulk er frummaðurinn í tilfinningalífi okkar sem gefur algeran skít í að maður eigi að vera líbó. Hulkinn okkarvill bara eiga sinn maka út af fyrir sig og ekki sjá að hann sé enn að flissa í símann, setja upp gardínur hjá eða eiga trúnaðarsamtöl við manneskju sem á að vera kominn nánast alla leið út úr lífi hinnar (fyrir utan lágmarks athafnir eins og að að sækja afkvæmið á leikskólann og skila því aftur til hins). Svona viltu hafa þetta vegna þess j að í lífi kærastans á aðeins að vera pláss i fyrir eina konu og sú kona ert þú! Málið er einfalt. Við erum heldur ekki hrifin af “vinum" okkar núverandi sem eru af hinu kyninu, svo lengi sem vinurinn sé ekki ættingi, samkynhneigður eða með 50 aukakíló. Þannig er það bara. Maður Hulkinn okkar vill bara eiga sinn erekkert maka út af fyrir sig og ekki sjá að hann sé enn að flissa í símann, setja upp gardínur hjá eða eiga trúnaðarsamtöl við aðra manneskju og fyrstu aldar krafa um að maður eigi að lúffa og finnast ekkert að því að í kringum núverandi sé kannski ein fyrrverandi og einhverjar vinkonur sem senda honum sms, kjafta stanslaust á msn og skreppa með honum á kaffihús. Á stráka spjallvef á netinu kom þessi spurning upp, hvortstrákar og stelpur gætu bara verið vinir og 80% strákanna svöruðu eins: Það fer eftir því hvernig gellan lítur út! Ok, svo ferðu í samband og allt gengur Ijómandi vel til að byrja með. Þið talið saman um fólk sem þið þekkið og þú kemst að því að hann á einhverja "vinkonu" eða kannski nokkrar "vinkonur". Þú pælir ekkert mikið í því og finnst þetta allt í lagi af því þú miðar við sjálfa þig. Ert hætt að tala við kaffihúsa "vini" þína af því nú ertu komin með kærasta. Hittir reyndar ennþá Robba homma reglulega og skemmtir þér með honum, en gaurarnir eru allir komir á "hold" og þú ferð ekki lengur með þeim f bíó eða á kaffihús. Þar sem þú miðar við sjálfa þig sérðu fyrir þér einhverja hressa, stutthærða, þybbna og hálf-lesbíulega gellu þegar hann talar um vinkonuna, en svo hittiröu hana og þá flýgur kúkurinn í viftuna! Gellan er nefninlega playboy kanínu vonnabí með pírð augu og í Wonderbra. Blóðþrýstingurinn í þér rýkur upp og þig langar helst til að berja þau bæði, en af því það er of primitívt, þá heldurðu aftur af þér. Þú átt jú að vera svo kúl og afslöppuð. Afbrýðissemi er glötuð. Slappaðu af ... eða hvað? Niðurstaðan er þessi... sáttur við það, en samt ereins og það liggi á manni einhver tuttugustu [ gamla daga þýddi það að eiga “vin" eða "vinkonu" það sama og að eiga kærustu eða kærasta og enn í dag er það þannig að þegar maður er rétt að byrja með einhverjum strák þá kallar maður hann “vin" sinn. Amma hefði aldrei tekið það í mál að afi ætti einhverja sérstaka vinkonu sem hann ræddi um mál hans og ömmu við eða bara um hvað sem er. Það Tilfinningalegur ídealismi er óþægilegur j Sem ungt og upplýst fólk eigum við að 2 vera svo ofsalega afslöppuð og opin. Svo f rosalega "líbó". Við eigum að samþykkja ! það að fyrrverandi og núverandi séu góðir hefði aldrei verið í boði af því vinir eru aldrei af sitthvoru kyninu nema þar liggi einhver löng saga að baki eða sérstakar aðstæður. Köttum krappið; Rétt upp hend sem langar til að eiga kærasta sem á einhverja rosa sæta vinkonu sem hann talar um t Í f f f 1 ykkar mál við? Anyone? Og hvaða stelpu langar að eiga kærasta sem er enn rosalega góður "vinur" fyrrverandi? Orðið "vinur" hefurfleiri en eina merkingu. En eitt er víst að þegar kynferðið og kynferðislegar, meðvitaðar eða ómeðvitaðar, viðurkenndar eða óviðurkenndar langanir spila inn í, þá er alltaf eitthvað smá extra í "vinskapnum". Carrie í Sex and the City kallar Mr. Big vin sinn, en við vitum allar að hann er þokkalega mikið meira en það! Hleypum okkar innri Hulk út Ég á enga vini sem hafa áður verið kærastarnir mínir. Tilfinningin sem ég kalla vinskap er ekki sú sama og það sem bærist um í brjóstinu á mér þegar ég verð hrifin af karlmanni. Þess vegna gæti ég aldrei kallað mína fyrrverandi “vini“ mína, eða yfirhöfuð menn sem ég hef orðið hrifin af og langað til að gera dodo með. Það eru sjálfsblekkingar og lygar að halda slíku fram. En fúslega viðurkenni ég að hafa átt “vini" sem hafa gefið mér meiri athygli en ég þeim og það er ekki vinskapur eins og sá sem ég á við vinkonur mínar. Eina ástæðan sem ég gæti gefið sjálfri mér fyrir því að samþykkja hans "vinskap" við allar vinkonurnar, eða vinkonuna, væri sú að ég vildi sjálf halda í strákana mína og þar með myndi ég álykta að innst inni væri ég ekki tilbúin til að gefa mig alla að nýja kærastanum.

x

Orðlaus

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Orðlaus
https://timarit.is/publication/942

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.