Orðlaus - 01.02.2004, Page 10
iæja góðir hálsar, þá er komið að því. Óskarinn verður afhendur í Kodak-ieikhúsinu í sjötugasta og sjötta sinn þann 29. febrúar næstkomandi og því
ætlar Orðlaus að sjálfsögðu að spá fyrir um úrslitin. Þá er bara ekkert annað að gera en að horfa á Stöð2 og sjá hvort við höfum eitthvað vit á þessu
eða hvort við séum bara að bulla. „And the Oscar goes to...
Besta Kvikmyndin:
Lord Of The Rings: The Return Of The
King
Lost In Translation
Master And Commander: The Far Side
Of The World
Mystic River
Seabiscuit
Orðlaus spáir að Lord Of The Rings muni
fara heim með óskarinn sem besta
myndin. Hvað annað?
Ólíklegust: Seabiscuit. Fín mynd, en er
bara með eina aðra tilnefningu sem
besta handrit byggt á annari sögu.
Kemur ekki nógu sterkt inn, því miður.
Besta Leikkona í aukahlutverki
Shohreh Aghdashloo í House Of Sand
And Fog
Patricia Clarkson í Pieces Of April
Marcia Gay Harden í Mystic River
Holly Hunter í Thirteen
Renée Zellweger í Cold Mountain
Orðalaus spáir að Renée Zellweger muni
sigra þennan flokk. Fékk Globe-inn fyrir
hlutverkið sitt og er þetta þriðja árið í
röð sem hún er tilnefnd til óskarsins.
Hún hlýtur að vinna þetta núna.
Ólíklegust: Shohreh Aghdashloo.
Orðlaus kannast því miður ekkert við
þessa leikkonu og akademían örugglega
ekki heldur og það mun líklegast verða
henni að falli.
Besti Leikstjórinn:
Fernando Meirelles fyrir City Of God
Peter Jackson fyrir Lord Of The Rings:
The Return Of The King
Sofia Coppola fyrir Lost In Translation
Peter Weir fyrir Master And Commander:
The Far Side Of The World
Clint Eastwood fyrir Mystic River
Orðlaus spáir að Peter Jackson muni vera
valinn besti leikstjórinn. Hann var
tilnefndur í sama flokki fyrir LOTR:
Fellowship Of The Ring og tapaði, en
þetta gæti verið hans kvöld.
Ólíklegastur: Fernando Meirelles. City
Of God var besta mynd sem kom í bíó á
síðasta ári að mati Orðlaus en það sem
mun örugglega verða Meirelles að falli
er að myndin er á portúgölsku og er
mjög ofbelldisfull. Eitthvað sem að
akademían er ekki alveg að meika.
Besti Leikari í Aðalhlutverki:
Johnny Depp í Pirates Of The Caribbean:
The Curse Of The Black Pearl
Ben Kingsley í House of Sand And Fog
Jude Law í Cold Mountain
Bill Murray í Lost In Translation
Sean Penn í Mystic River
Orðlaus spáir því að Bill Murray muni
hreppa hnossið. Leikur hans í þessari
mynd hefur fært honum fjölda
viðurkenninga eins og t.d Golden Globe-
verðlaunin og hefur hann víst aldrei
verið betri.
Óliklegastur: Ben Kingsley. Hann hefur
unnið óskarinn áður í sama flokki fyrir
myndina Gandhi en þessi mynd fékk ekki
næga umfjöllun til að geta látiö hann
fara heim með óskarinn.
Besta Leikkona í Aðalhlutverki:
Keisha Castle-Hughes í Whale Rider
Diane Keaton i Something's Gotta Give
Samantha Morton ( In America
Charlize Theron í Monster
Naomi Watts í 21.Grams
Orðlaus spáir að Charlize Theron muni
setja óskarinn fyrir ofan arinhilluna sína.
Hún vann Globe-inn fyrir leik sinn í
þessari mynd og er sigurstranglegust
samkvæmt erlendum fjölmiðlum.
Ólíklegust: Samantha Morton. Góð
leikkona en við höldum að hún muni
vinna seinna fyrir allt aðra mynd.
Besti Leikari í Aukahlutverki
Alec Baldwin í The Cooler
Benicio Del Toro í 21.Grams.
Djimon Hounsou í In America
Tim Robbins í Mystic River
Ken Watanabe í The Last Samurai
Orðlaus spáir að Tim Robbins muni fá
óskarinn í hendurnar.
Ólíklegastur: Djimon Hounsou. Ég veit
ekki afhverju, fínn leikari, en tilfinningin
segir mér að hann eigi ekki eftir að
vinna.
Besta Teiknimyndin í fullri lengd.
Brother Bear
Finding Nemo
The Triplets Of Belleville.
Orðlaus spáir að Finding Nemo muni
vinna þetta. Þetta er bara ein vinsælasta
teiknimynd allra tíma hingað til. Þarf
að segja fleira?
Fyrir besta handritið spáum við að Sofia
Coppola muni vinna fyrir Lost In
Translation
og að Peter Jackson muni vinna fyrir
handrit byggt á öðru efni ( Lord Of The
Rings)
Við semsagt höldum og satt að segja
vonum að 29. febrúar verði kvöld
Hringadrottinssögu.
Ef þið viljið vita meira um óskarinn
mælum við með því að fara á
www.oscar.com þar sem hægt er að sjá
allar tilnefningarnar og þú getur líka
gert þína eigin spá.
Hvaða myndirtilnefndar eru í bíó núna?
Sambíóin eru að sýna:
Mystic River, Finding Nemo, Brother
Bear, Something's Gotta Give, The Last
Samurai og er Cold Mountain
væntanleg þar á bæ þann 20. febrúar
næstkomandi.
Skffubíóin (Smárabió, Regnboginn,) eru
að sýna LOTR:Return Of The King (ásamt
Laugarásbíó) Master And Commander,
21.Grams og Lost In Translation.
Myndirnar Monster,The Triplets of
Belleville, In America og House Of Sand
And Fog vitum við ekki enn hvort að
bíóin ætli að taka til sýninga en við
vonum.
Seabiscuit og City Of God eru
væntanlegar á DVD og VHS.