Orðlaus - 01.02.2004, Side 41
Texti: Steinunn Jakobsdóttir
lð eða týna fjölskyldum sínum. Þau eru seld í barnaþrælkun eða eru látin berjast í stríði, við hlið
þjálfuð í að nota vopn og sprengiefni, þau eru þjálfuð til að hata og drepa og stelpurnar eru þar
jaldan verið fjallað um en er gríðarlega mikilvægt til að gera okkur meðvitaöri um hvað er virkilega
gert en beðið eftir því að alþjóðasamfélagið taki á þessari plágu.
Notkun á börnum í hernaði brýtur i bága við alþjóöalög. Það er
striðsglæpur að notast við ólögráða börn í striðsátökum en
rfkisstjórnir landanna hafa brugðist skyldu sinni í að vernda börnin
með þvi að framfylgja ekki lögunum. Rikisstjórn hvers lands ber
lagaleg skylda að vernda börnin og standa vörð um réttindi þeirra.
Það er skylda þeirra að rannsaka öll mál þar sem brotið er á rétti
barnsins og refsa þeim sem á þeim brýtur. Ríki heimsins bera ábyrgð
á að vernda börn gegn mismunun og pyntingum og annarri
ómanneskjulegri meðhöndlun en þrátt fyrir það eru grunnréttindin
mjög vfða brotin.
Lítill árangur hefur náðst í að stöðva notkun barna f hernaði til
þessa og í sumum landanna hefur talan aukist til muna. Ef nokkrum
börnum er bjargað er bara öðrum rænt f staðinn. Þessi tala, 300
þúsund börn, er verðugt umhugsunarefni og mikilvægt er að grípa
til aðgerða strax til þess að sporna við örri fjölgun þeirra.
„Þegar ég verð eldri ætla ég að stofna gengi og
hefna föður míns."
Asif, 12 ára afganskur flóttamaður.
Hverjir standa vörð um réttindin?
Hin ýmsu mannréttindasamtök eins og UNICEF, Rauði krossinn og
Sameinuðu þjóðirnar hafa hvatt skæruliða og skipulagðar hersveitir
til að hætta að notfæra sér börn undir aldri og hvetja ríkisstjórnir
til að vinna að alhliða lausnum og reyna að takast á við vandamálið.
Ýmis sjálfstæö samtök berjast einnig fyrir réttindum þessara barna
og má hér til dæmis nefna Opertation S.I.C.K sem stendur fyrir „Stop
inciting children to kill" (Hættum að hvetja börn til að drepa) og
eins The Coalition to stop the use of Child Soldiers (Samtök til að
stöðva notkun barnahermanna) sem voru stofnuð árið 1998 af
nokkrum NGO's eins og Amnesty International, Defence for Children
International, Human Rights Watch og fleirum. Þessi samtök þrýsta
á Öryggisráð sameinuðu þjóðanna og rfkisstjórnir stórveldanna aö
líta ekki framhjá vandanum, heldur gera allt sem hægt er og meira
til, þvf að á meðan lítið er gert vex úr grasi ný kynslóð
sjálfsmorðsárásarmanna, ofbeldishneigðra hermanna og
hryðjuverkamanna sem þekkja fátt annað en grimmd, morö og
hatur á náunganum.
„Ég vil bara fara heim og vera með fjölskyldunni
minni."
Chrístopher, 12 ára í Uganda
Er einhver lausn?
Það þarf aö kynna alþjóðasamfélaginu vandamáliö og opna augu
almennings. Það þarf að tiikynna öll brot sem uppvfst verður um
tafarlaust og gera brotamennina ábyrga fyrir gjörðum sínum. En
það alira mikilvægasta er að hjálpa börnunum aö samlagast aftur
umhverfi sfnu þegar þau koma úr hernum, hjálpa þeim að vinna úr
hæfileikum sínum á annan hátt en aö meiða og drepa. Gera þeim
kleift að mennta sig og hjálpa þeim að vinna úr öllum andlegum
vandamálum sínum, því að mörg þeirra eru svo skemmd eftir vistina
að þau eru hættuleg sjálfum sér og öðrum. Þessir fyrrverandi hermenn
eiga að fá tækifæri til þess að verða virkir meðlimir samfélagsins.
Við, almenningur, getum margt gert. Við getum gerst meðlimir í
The Coalition to Stop the Use of Child Soldiers og gefið okkar
framlag með því að fara á síðuna . Við eigum öll eitthvað aflögu,
hversu lítið sem það er, en margt smátt gerir eitt stórt, ekki satt?
Einnig getum við framsent linkinn til að reyna að fá fleiri til að gefa
framlag eða til aö dreifa vitundinni um það sem á sér stað.
Þaö þarf að grfpa til róttækra aðgeröa strax til þess að veita
börnunum húsaskjól, læknisaðstoö og aðgang að menntun svo
nokkuð sé nefnt. Það er grfðarlega mikilvægt að allir viðurkenni
mannréttindi þessara barna þar sem þau eiga jafn mikinn rétt á
viðunandi Iffi eins og börnin til dæmis hér á íslandi. Morð, ofbeldi
og pyntingar eiga ekki að viðgangast og þurfa allir að viðurkenna
að slík meðferð er ekki nokkrum manni sæmandi.
„Börn eiga rétt tfl þess að fá að lifa Iffínu, vera
frjáls undan mismunun og misþyrmingu, vera
frjáls undan herkvaðníngu og að vera vernduð f
stríðsátökum og hafa rétt til menntunar,
heilsugæslu og fullnægjandi Iffsskilyrða. Það eru
þeirra mannréttindi að fá að lifa við öryggí og
að vera ekki hneppt í þrældóm, sæta pyntingum
eða annarri ómanneskjulegri meðferð."
Ég vil benda þeim sem áhuga hafa á aö kynna sér málin
betur á eftir farandi heimasíöur:
http://www. hrw.org
http://www.globalmarch.org/childsoldier/
http://amnesty.org/
http://www.amnestyusa.org/children/soldiers/
http://Www.chiid-soldiers.0rg/ ;yv '
„Einn strákurinn náðist þegar hann reyndi að
flýja. Hendur hans voru bundnar, og síðan létu
þeir okkur, nýju fangana, drepa hann með priki.
Mér leið ömurlega. Ég þekkti þennan strák. Hann
kom frá sama þorpi og ég. Ég neitaði að drepa
hann og þeir sögðu við mig að þá myndu þeir
skjóta míg. Strákurinn spurði mig: „Af hverju
ertu að gera þetta?" og ég sagðist ekki eiga
annarra kosta völ. Eftir að við drápum hann létu
þeir okkur smyrja hendur okkar með blóði hans
svo við myndum ekki reyna að flýja."
Susan, 16 ára í Uganda.