Bændablaðið - 22.11.2005, Qupperneq 34
34 Þriðjudagur 22. nóvember 2005
Á ÍSLENSKA BÆNDUR
Athugið að sendingarkostnaður
er ekki innifalinn í verði. Pantanir
í síma 563-0300 og á netfangið
bondi@bondi.is.
ÚRVALSFATNAÐUR
Gæðafatnaður frá 66°N
Litur: Svört
Merking: „Íslenskur landbúnaður“ og
„Ég er bóndi“ í bláum eða rauðum lit
1.490 kr.
Derhúfa
Litur: Grár
Stærðir: S, M, L, XL, XXL
Merking: „Íslenskur landbúnaður“ eða
„Ég er bóndi“ og „Íslenskur landbúnaður“
890 kr.
Stuttermabolur
Tveir brjóstvasar. Hlíðarvasar. Tveir
bakvasar, annar með hnepptu
vasaloki. Vasi á vinstri skálm með
hnepptu vasaloki. Pennavasi. Vasar
fyrir hnjápúða. 65% polyester / 35%
bómull.
Litur: Blár og dökkblár
Stærðir: 48 - 62
Merking: „Íslenskur landbúnaður“
2.990 kr.
Samfestingur
merktur „Íslenskum
landbúnaði“
Flíspeysurnar eru úr Thermal Pro flísefni sem er nýjasta útfærslan
af Polartec 200 og er meira vatnsfráhrindandi og upprunalegt útlit
heldur sér betur þrátt fyrir marg endurtekinn þvott og notkun. Thermal
Pro er sérstaklega hlýtt miðað við þyngd og andar mest af þykkari
Polartec efnunum.
Barna
Rennd upp í háls. Tveir
renndir vasar á hliðum.
Litur: Mosagrænn
Stærðir: 2 - 14
Kvenna
Aðsniðin.
Litur: Steingrá
Stærðir: S, M, L, XL
Karla
Tveir renndir vasar á
hliðum.
Litur: Steingrá
Stærðir: S, M, L, XL
Flíspeysur
merktar „Íslenskum landbúnaði“
7.990 kr. 6.490 kr.4.190 kr.
Bændasamtök Íslands
Bændahöllinni v. Hagatorg 107 Reykjavík
Kaffisamsæti
Rótarýklúbbs Rangæinga.
Rotarýklúbbur Rangæinga hélt árlegt
kaffisamsæti fyrir eldri borgara í
Rangárþingi á dögunum. Skemmti-
dagskráin var fín, söngur, sögur og
sýningar á myndum úr héraðinu.
Matthías Pétursson hélt fyrirlestur
um persónur í Njálu, sr. Sváfnir las
minningarorð um Pálma Eyjólfsson,
sem lést fyrir skömmu, Eymundur
Gunnarsson sýndi myndir úr hérað-
inu. Á meðfylgjandi mynd má sjá þá
Ísólf Gylfa Pálmasson og Davíð
Samúelsson en þeir sungu og spiluðu
fyrir gesti, bæði innlend og færeysk
lög.
Vel heppnaðir tónleikar Karlakórs Rangæinga
Karlakór Rangæinga hélt árlega hausttónleika sína að
Laugalandi í Holtum 4. nóvember sl. og þóttu þeir
takast með miklum ágætum. Hagnaðurinn af tónleik-
unum rann til ungs manns í sveitinni, Pierre Davíðs
Jónssonar, sem varð fyrir því óhappi að velta stórum
malarflutningabíl og slasast mjög mikið. Eðlilega varð
hann fyrir tekjumissi fyrir utan allt annað sem fylgir
svo alvarlegu slysi.
Þeir sem komu fram voru: Eldri félagar Karlakórs
Reykjavíkur, stjórnandi Kjartan Sigurjónsson; Góðir
grannar, stjórnandi Eyrún Jónasdóttir; Berglind og
Kristrún Hákonardætur, Tyrfingur Sveinsson, Gísli
Stefánsson, Hákon M. Guðmundsson og Kjartan G.
Magnússon ásamt Karlakór Rangæinga undir stjórn
Guðjóns H. Óskarssonar. Kynnir á tónleikunum var
prófasturinn sr. Halldóra J. Þorvaðardóttir. Allir sem
komu að tónleikunum gáfu vinnu sína.
Eldri borgarar tóku lagið. Eldri borgarar í Rangárþingi sungu með Kór eldri borgara úr Hafnafirði á skemmtun
sem haldin var í Hvoli fyrir skömmu. Haraldur Júlíusson frá Akurey stjórnaði kórnum sem stóð sig með miklum
ágætum. /Bbl. Eyvindur.
Spilað og sungið í Rangárþingi
Aðalfundur Samtaka selabænda var haldinn í
Reykjavík laugardaginn 12. nóvember sl. Á fundin-
um var m.a. fjallað um söluhorfur á selskinnum.
Sala og uppgjör vegna vorkópaskinna frá vorinu
2004 gekk erfiðlega og verð var óhagstætt. Þróun á
gengi íslensku krónunnar hefur valdið lækkun á
verði, auk þess sem dregið hefur úr eftirspurn. Þó
virðast einhverjir möguleikar vera að opnast á nýj-
um slóðum sem verið er að kanna, en selveiðar eru
vaxandi atvinnugrein í ýmsum nágrannalöndum
okkar. Vegna þessarar stöðu var veiði á vorkóp
óvenju lítil á liðnu vori.
Eggert Jóhannsson feldskeri framleiðir flíkur úr sel-
skinni eins og undanfarin ár og gengur sala þeirra vel.
Útselskópaskinnin fara eins og áður í leðursútun hjá
Skinnaiðnaði á Akureyri og eru til sölu þar og eru eftir-
sótt af handverksfólki.
Ljóst er að samkvæmt talningu hefur sel fækkað
verulega og töldu flestir að mikið af ungsel færist í net-
um.
Safn og sýning um seli og selanytjar
Þótt á ýmsu hafi gengið við sölu selskinna þá leita sela-
bændur sífellt nýrra leiða. Greint var frá því að sl. vor
stóð áhugafólk í Vestur-Húnavatnssýslu að stofnun
„Selaseturs Íslands“ á Hvammstanga. Hlutverk þess er
að koma upp safni og sýningu um seli og kynna sela-
nytjar við strendur Vatnsness og víðar, ásamt því að
fjalla um sel og selveiðar í víðum skilningi.
Selasetrið hefur fest kaup á hentugu húsnæði á
Hvammstanga. Í haust og vetur verður unnið að upp-
byggingu sýningar og frágangi á útisvæði en setrið
verður opnað næsta sumar. Ávallt hefur verið mikið um
sel á Vatnsnesi og er svo enn. Aðilar í ferðaþjónustu
hafa nýtt sér þetta því skipuleg selaskoðun, í tengslum
við ferðaþjónustu, er þegar stunduð á svæðinu. Því mun
Selasetrið verða góð viðbót við uppbyggingu á ferða-
þjónustu í héraðinu. Selasetrið er hlutafélag og eru
stofnaðilar um sjötíu. Samtök selabænda eru þar á með-
al.
Stjórn Samtaka selabænda skipa: Pétur Guðmunds-
son, Ófeigsfirði, formaður; Ásgeir Gunnar Jónsson,
Stykkishólmi og Hafsteinn Guðmundsson, Flatey, með-
stjórnendur.
Um kvöldið var síðan haldin hefðbundin selaveisla í
Haukahúsinu í Hafnarfirði, þar sem selur og annað góð-
gæti var á boðstólnum. Um 230 gestir sóttu veisluna og
þótti hún takast með ágætum. /ÁS
Selasetur Íslands opnar næsta ár