Bændablaðið - 22.11.2005, Síða 41
41Þriðjudagur 22. nóvember 2005
Valtra 6850
Valtra 6850 er 4 strokka 125 hö dráttarvél með frábærum vökvavendigír og þre-
mur kúplingsfríum milligírum sem hægt er að stilla á handskiptingu eða sjálf-
skiptingu eftir hvort hentar betur. Valtra 6850 sameinar kosti þægilegar ámokst-
urstækjavélar og öflugrar dráttarvélar í jarðvinnslu eða fyrir rúllusamstæðu
P
re
nt
sm
ið
ja
S
uð
ur
la
nd
s,
S
el
fo
ss
i
Valtra A 75
Valtra A 75 er 78 hestafla dráttarvél sem með léttleika sínum og lipurð er góður valkostur
fyrir þá bændur sem vantar einfalda og létta dráttarvél með eða án ámoksturstækja.
Valtra T 140
Valtra T 140 er 6 strokka dráttarvél sem með sín 140 hestöfl lætur fátt stöðva sig.
T 140 dráttarvélin er útbúin sama gírkassa og vendigír og Valtra 6850 dráttarvélinni.
Söluhæsta dráttarvélin á Íslandi 2004
Tilboðsvélar Valtra
Einstakur áreiðanleiki Valtra dráttarvélanna er löngu orðinn landsfrægur sem skýrir
hvers vegna sífellt fleiri bændur og verktakar velja Valtra dráttarvélar. Mikill áhugi
hefur verið fyrir tilboðsvélum Valtra í ár enda hefur verð vélanna verið mjög hagstætt
þegar litið er til hversu vel búnar og áreiðanlegar dráttarvélarnar eru.
Austurvegi 69 - Selfossi - Sími 4 800 400 jotunn.is
Innvigtun í viku 44 var 1839
þúsund lítrar á móti 1917 þúsund
lítrum í viku 44 í fyrra og er þetta
samdráttur um 78 þús lítra milli
ára eða 4,06%. Ef miðað er við
viku 44 árið 2003 þá er þetta
aukning um 3,18%. Innvigtun
jókst um 1,36% milli vikna 43 og
44 og virðist því sem innvigtunin
sé að komast vel á skrið aftur á
landsvísu eftir nokkuð krappa og
langvarandi lægð. Enn minnkar
þó innvigtun á svæðum
Mjólkursamlags Ísfirðinga og
Mjólkursamlags KS frá vikunni á
undan. Hið sama er að segja um
MS Blönduósi, en hún hefur
aukist á svæðum MS Reykjavík,
MS Búðardal, Norðurmjólkur og
MS Vopnafirði, Egilsstöðum og
Selfossi.