Bændablaðið - 15.04.2008, Blaðsíða 11

Bændablaðið - 15.04.2008, Blaðsíða 11
Bændablaðið | Þriðjudagur 15. apríl 200811 Reykjalundur er rótgróið fyrirtæki og á sér langa sögu í framleiðslu á plast- vörum. Fyrirtækið hefur nú í seinni tíð aukið þjónustu á öðrum sviðum t.d. í plastfittings, dælubúnaði hverskonar, gólfhitakerfum svo fátt eitt sé talið. Reykjalundur framleiðir hina kunnu Búreks girðingastaura sem hafa notið mikilla vinsælda og reynst vel í margbreytileika íslensks veðurfars og landslags. Einnig býður Reykjalundur paströr, allt frá hefðbundnum vatnsrörur til röra, sem henta vel til ræsagerðar. Starfsmenn söludeildanna í Mosfellsbæ og á Akureyri veita ráðgjöf við efnisval ásamt frekari upplýsingar um vörur og þjónustu Reykjalundar. Aukin þjónusta Reykjalundar um allt land PLASTRÖR, DÆLUR, FITTINGS, RAFGIRÐINGAR Þórsstíg 4, 600 Akureyri, sími 460 1760, 270 Mosfellsbær, sími 530 1700, rp@rp.is Starfsmenntanám · Blómaskreytingar · Búfræði · Garðyrkjuframleiðsla · Skógur og umhverfi · Skrúðgarðyrkjubraut www.lbhi.is Háskóli lífs og lands Umsóknarfrestur um skólavist er til 4. júní Deutz Fahr Lauskjarna samstæða Árgerð 2004 Krone 1500 Vario Pack Árgerð 2000 Krone 1500 Comby Pack Árgerð 2002 Nýjar og notaðar Vélar Velger dobble action rúllusamstæða Árgerð 2004 McCormick CX 105 Árgerð 2006 340 tímar McCormick MTX 140 Árgerð 2005 Ekin 1425 tíma Stoll F51 ámoksturstæki McCormick MC 115 Árgerð 2005 takkaskipt, ekin 1376 tíma Stoll Róbust 30 tæki. McHale Fusion rúllusamstæða Árgerð 2004 Framfarafélag Dalvíkurbyggðar Málþing um ræktarland og nýtingu þess Framfarafélag Dalvíkurbyggðar mun standa fyrir málþingi um ræktarland og nýtingu þess, að Rimum í Svarfaðardal laug- ardaginn 26. apríl nk. Mikil umræða hefur verið um ræktarland og nýtingu þess á und- arförnum árum. Alls er talið að um 6% af flatarmáli Íslands sé gott ræktunarland. Ónotað ræktunar- land hefur ekkert sérstakt verðgildi í samfélaginu, þótt það geti orðið mikils virði í framtíðinni. Nýting lands er að breytast mjög hratt. Sumarbústaðaland er í háu verði einkum þó í nágrenni þéttbýlis. Landeigendur sækjast eðlilega eftir því að selja land undir sumarbú- staði. Land sem bútað er niður í sumarbústaðalóðir verður aldrei akur eða tún eftir það. Í kjölfar þess að jarðir víða um land fara úr ábúð og komast í hendur aðila sem ekki ætla sér að nýta túnin til hefðbundinna nytja, hafa vaknað spurningar um hvaða aðrir nýtingarmöguleika en til fóð- urframleiðslu séu fyrir hendi. Íbúar í Dalvíkurbyggð hafa ekki farið varhluta af þessari þróun í byggða- og atvinnumálum, og mörg tún sem flokkast undir góð ræktarlönd standa í sinu og eru ónýtt. Nú er vinna við aðalskipulag fyrir Dalvíkurbyggð á lokastigi og þar er verið að skilgreina landbún- aðarland og flokkun ræktarlands eftir gæðum, með það fyrir augum að setja ákvæði um gott ræktar- land. Um þessi mál á málþingið að snúast og munu frummælendur sem hafa sérþekkingu á þessu sviði koma og velta upp möguleikum og tækifærum sem eru í stöðunni og vonandi svara eftir bestu getu eft- irfarandi spurningum: Hvernig á að nytja tún sem standa ónýtt í dag? Eru fleiri möguleikar en að rækta gras og korn? Hvar er æskilegt að rækta skóg og hvar ekki? Þarf ekki að huga að flokk- un ræktarlands og tryggja að góðir akrar verði ekki teknir undir óafturkræf önnur not, s.s. frístundabyggð eða stórfellda skógrækt? Frummælendur á fundinum verða þau Ingvar Björnsson, jarð- ræktarráðunautur á Búgarði, Krist- ín Þóra Kjartansdóttir, sagnfræð- ingur og starfsmaður Sólskóga í Kjarna og Hrefna Jóhannsdóttir skógfræðingur á Norðurlandi og starfsmaður á rannsóknarsviði hjá Skógrækt ríkisins á Mógilsá.

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.