Bændablaðið - 15.04.2008, Blaðsíða 32
Bændablaðið | Þriðjudagur 15. apríl 200832
Í austurlenskri matargerð eru ótelj-
andi möguleikar á að blanda saman
spennandi hráefnum og án undan-
tekningar verður útkoman að sann-
kölluðum sælkeramat. Hér kemur
hugmynd að fljótlegum og góðum
kvöldmat sem mætti jafnvel bjóða
vel völdum gestum í til smökkunar
og álitsgjafar.
Svínakjöt með
engifer og sveppum
fyrir 4
10 þurrkaðir sveppir
4 hvítlauksrif
8 cm engiferrót
1 lítill laukur
800 g svínavöðvi (má nota kjúkling
eða nautakjöt)
4 msk. olía
2 msk. ljós sojasósa
2 msk. dökk sojasósa
1 msk. sykur
1 msk. pálmasykur (fæst í aust-
urlenskum sérverslunum)
½ dl kjötsoð eða vatn
½ tsk. salt
2 tsk. svartbaunasósa
1 vorlaukur, græni hlutinn
hvítur pipar
Aðferð:
Leggið sveppi í vatn í 10 mínútur.
Látið vatnið renna vel af þeim, gróf-
saxið og setjið til hliðar. Fínsaxið
hvítlauk og leggið til hliðar. Skerið
engiferið í örþunnar sneiðar ásamt
lauk og kjötinu og geymið. Skerið
vorlaukinn í bita.
Hitið olíu á wok-pönnu eða
steikarpönnu og steikið hvítlaukinn
þar til hann verður gullinn. Setjið
kjötið saman við, hrærið og steik-
ið í tvær mínútur. Látið sveppi og
engifer á pönnuna og hrærið vel.
Bætið sojasósum, sykri, pálma-
sykri, svartbaunasósu, kjötsoði og
lauk saman við. Hrærið í á milli
eða um leið og nýtt hráefni fer á
pönnuna, eldið í nokkrar sekúndur.
Setjið réttinn á fat og skreytið með
vorlauknum, sáldrið hvítum pipar
yfir. Berið fram með rjúkandi heit-
um hrísgrjónum og léttu salati.
Mangó með sætum grjónum
2 dl sæt hrísgrjón
4 dl kókosmjólk
2 msk. sykur
½ tsk. salt
3 vel þroskaðir mangóávextir
Aðferð:
Sjóðið hrísgrjónin samkvæmt leið-
beiningum á umbúðum. Setjið 3 dl
kókosmjólk, sykur og salt saman í
skál og hrærið þar til er uppleyst.
Setjið 1 dl af kókosmjólk í pott og
sjóðið niður þar til hún þykknar,
hrærið stöðugt í á meðan og leggið
til hliðar. Hellið kókosmjólkur-syk-
urblöndunni yfir volg hrísgrjón-
in og látið standa í 30 mínútur.
Afhýðið mangóávextina, skerið
í tvennt langsum og eins nálægt
steininum í miðjunni og hægt er.
Fjarlægið steininn og skerið helm-
ingana í fjóra bita langsum. Setjið
hrísgrjónablönduna í miðjuna á
fati eða notið stóra skál og raðið
mangósneiðunum í kringum grjón-
in. Hellið loks þykktu kókosmjólk-
inni yfir mangósneiðarnar og berið
fram.
(Uppskriftir fengnar úr bókinni lærum
að elda taílenskt úr bókaklúbbi Eddu –
Lærum að elda).
ehg
MATUR
Framandi og dágott
3
8 5
4 1 7 9
2 5 6
9 3
7 1 8
6 3 9 1
8 2
7
8
1 3 2 8
4 7
3 5 6
1 6 8 7
5 2 4
2 5
9 7 1 2
6
1 9
2 5 1
7 6
2 4 7
4 1
8 9 3
4 8
3 8 5
9 7
Sudoku
Galdurinn við Sudoku-þrautirnar er
að setja réttar tölur frá 1-9 í eyðurn-
ar. Sama talan má ekki koma fyrir
tvisvar í línu lárétt og lóðrétt og
heldur ekki innan hvers reits sem
afmarkaður er af sverari línum.
Þrautirnar eru miserfiðar, sú
sem er lengst til vinstri er léttust og
sú til hægri þyngst en sú í miðjunni
þar á milli.
Hægt er að fræðast nánar um
Sudoku-þrautirnar á vefsíðunni
www.sudoku.com og þar er einn-
ig að finna fleiri þrautir ef þessi
skammtur nægir ekki.
Líf og lyst
Svínakjöt með engifer og sveppum er ekta taílenskur réttur sem er einfald-
ur og fljótlegur í matreiðslu. (Mynd: Kristján Maack).
Öllum íbúum Stokkseyrar og Eyrar-
bakka var nýlega boðið í glæsilegan
morgunverð í íþróttahúsi Stokksey-
rar í tilefni af 100 ára afmæli ung-
mennafélagsins á staðnum, en það
var stofnað 15. mars 1908. Fjöl-
margir nýttu sér boðið og fögnuðu
tímamótunum með félaginu, sem
telur í dag um 200 félagsmenn.
og fjölbreytt, en það sér t.d. um
rekstur íþróttahússins á Stokkseyri
samkvæmt sérstöku samkomulagi
við Árborg. Í tilefni af afmælinu
verður dagskrá út allt árið, m.a.
verður fótboltakeppni á milli gatna
á Stokkseyri á bryggjuhátíðinni í
sumar. 34 formenn hafa verið í fé-
-
nason, íþrótta- og tómstundafulltrúi
Árborgar, mætti í morgunverðinn
-
henti félaginu 50.000 króna gjöf frá
sveitarfélaginu. Þá kom Bolli Gun-
narsson, stjórnarmaður í HSK og
MHH
Ungmennafélag Stokkseyrar 100 ára
Stjórn Ungmennafélags Stokkseyrar, talið frá vinstri; Gylfi Pétursson, Ingibjörg Birgisdóttir, Ingibjörg Ársælsdóttir,
formaður, Helga Björg Magnúsdóttir og Vernharður R. Sigurðsson.
Á sumardaginn fyrsta eru 100 ár liðin
síðan Ungmennafélag Reykdæla var
stofnað í Borgarfirði. Þrátt fyrir að
félagið sé þannig eitt elsta starfandi
ungmennafélag landsins er félags-
starf á vegum þess í miklum blóma.
Nýverið lauk t.d. sýningum á leikrit-
inu Þið munið hann Jörund og fékk
sýningin góða aðsókn og dóma.
Í tilefni aldarafmælis félagsins
hefur verið gefið út ritið UMFR – Í
hundrað ár. Jóhanna G Harðardóttir
blaðamaður ritstýrði verkinu sem er
120 síður og ríkulega myndskreytt.
Í formála afmælisritsins segir m.a.
að í tilefni tímamótanna hafi þótt við
hæfi að rifja upp sögu félagsins og
ákveðið að gefa út rit þar sem saga
þess yrði rakin í máli og myndum.
Ritið skyldi vera í léttum stíl og sett
fram á þann hátt að sem flestir fyndu
eitthvað sem vekti áhuga.
Ásamt því að rekja sögu félags-
ins frá upphafi stofnunar þess í
Deildartungu vorið 1908 er rætt
við nokkra gamla ungmennafélaga
um starfið í áranna rás. Meðal efn-
isþátta er ítarleg frásögn af starfsemi
í kringum ungmennafélagshúsið
Logaland og byggingarsaga þess
rakin. Þá er m.a. leikstarfi lýst í
máli og myndum, sagt frá skógrækt
við félagsheimilið, dansleikjahaldi,
bókasafni, íþróttum og æskulýðs-
starfi er gerð góð skil.
Afmælisrit Ungmennafélags
Reykdæla er til sölu í verslun N1 í
Reykholti og kostar krónur 3.500.
Burtfluttir íbúar og aðrir áhuga-
samir um starfsemi UMFR geta
pantað afmælisritið á opnunartíma
verslunarinnar í síma 435-1153 eða
662-5189.
(fréttatilkynning)
Aldar afmælisrit UMFR komið út