Bændablaðið - 15.04.2008, Page 20
Bændablaðið | Þriðjudagur 15. apríl 200820
Íslenski torfbærinn er órjúfanleg-
ur hluti menningararfsins og ekki
sá ómerkasti. Nú er unnið að því
að koma á fót kennslu- og menn-
ingarmiðstöð með sýningarskála,
sem helguð verður torfbænum og
raunar íslenskri byggingarlist frá
upphafi vega. Miðstöðin verður í
Austur-Meðalholtum í hinum
gamla Gaulverjabæjarhreppi í
Flóa og stendur til að opna hana
almenningi árið 2009.
„Íslenski bærinn“ heitir þetta
framtak og í forsvari fyrir því er
Hannes Lárusson myndlistarmaður.
Meginviðfangsefni Íslenska bæj-
arins verður íslensk byggingarlist
á landsvísu og er ætlunin að skoða
hana bæði í norðurevrópsku og
hnattrænu ljósi. Verður þar litið til
ýmissa þátta, svo sem verkmenn-
ingar, fornleifa, sögu og listgildis,
en auk þess að vera stór hluti af lífs-
skilyrðum Íslendinga er torfbærinn
einstakur hlekkur í menningarsögu
Evrópu.
Samt sem áður hefur torfbænum
lítið verið sinnt af fræðimönnum og
takmarkaður áhugi verið á því að
viðhalda og þróa þann hugsunar-
hátt og verklag sem liggja þessum
byggingum til grundvallar. Þarna
liggja ýmis tækifæri, ekki síst á
sviði menningartengdrar ferðaþjón-
ustu. Auk þess er hægt að sækja
tækniþekkingu til torfbæjarins, sem
nýst gæti í umhverfismótun og hús-
byggingum nútímans.
Hannes Lárusson bendir á,
að nú sé enn á besta aldri nokk-
ur hópur fólks sem hafi haft bein
kynni af torfbæjum og afkomend-
um þeirra, hinum einföldu timb-
urhúsum. Hann segir það hluta af
undirbúningi Íslenska bæjarins að
safna heimildum og upplýsingum
um útlit og skipulag bæja, sem enn
voru í notkun á tuttugustu öld.
„Allar upplýsingar um verkfæri
og verklag tengt hleðslu, torfskurði
og byggingu þessara húsa eru afar
mikilvægar heimildir í þessu sam-
bandi,“ segir Hannes og hvetur þá
sem búa yfir upplýsingum í formi
frásagna og myndefnis, sem teng-
jast íslenska torfbæjararfinum, að
hafa samband við sig. Hann svarar
í síma 694-8108 eða á netfanginu
hanlar@islenskibaerinn.com.
ÞH
Íslenski bærinn rís í Flóanum
Fjósavélar eða liðléttingar, eins
og þær vélar eru gjarnan kall-
aðar, eru skráðar hjá Vinnu-
eftirlitinu í svokallaðan IM
flokk. Fyrir bragðið eru þær
skoðunarskyldar einu sinni á ári
og til að mega stjórna liðléttingi
þarf að sækja svokallað frum-
námskeið hjá Vinnueftirlitinu.
Verði bændur eða aðrir, sem
nota þessar vélar, fyrir slysi við
vinnu á þeim en hafi ekki tekið
frumnámskeið hafa þeir engan
tryggingarétt, að sögn Snæfríðar
Einarsdóttur hjá Vinnuvéladeild
Norðurlandsumdæmis.
Dráttarvélar hér á landi eru
skráðar sem ökutæki og sér
Umferðarstofa um þá skráningu.
Ekki þarf þó að koma með drátt-
arvélarnar til skoðunar eins og
önnur ökutæki. Vinnueftirlit rík-
isins heimsækir bændabýli lands-
ins á 4ra til 5 ára fresti og skoð-
ar þá dráttarvélar eins og annan
búnað, sem tilheyrir býlunum. Því
er hægt að aka dráttarvélum eftir
þjóðvegum landsins án þess að
þær séu skoðaðar einu sinni á ári
eins og bifreiðar.
Litla námskeiðið og hið stóra
Sé dráttarvél hins vegar í útseldri
vinnu er skylda að skrá hana sem
vinnuvél og þá er hún skoðuð einu
sinni á ári af Vinnueftirlitinu. Til
þess að stjórna dráttarvél í útseldri
vinnu þarf stjórnandinn að hafa farið
á frumnámskeið, en Vinnueftirlitið
heldur slík námskeið.
Snæfríður Einarsdóttir segir í
samtali við Bændablaðið að hjá
Vinnueftirlitinu sé frumnámskeið-
ið kallað litla námskeiðið. Það
námskeið sem kallað sé stóra nám-
skeiðið gefi réttindi á allar vinnu-
vélar, en frumnámskeið veiti rétt-
indi á dráttarvélar, liðléttinga og
minni jarðvinnslutæki. Snæfríður
segir bændur yfirleitt ekki vita að
fara þurfi á frumnámskeið til að
hljóta tryggingahæf réttindi á vél-
arnar. Talað hafi verið um að halda
sérnámskeið fyrir bændur, sem
væri þá bara fyrir þann flokk sem
veitir réttindi á liðléttingana, en
annars sé frumnámskeið þriggja
daga námskeið.
„Hér er um stórmál að ræða
sem menn virðast almennt ekki
vita um, en er nauðsynlegt að allir,
sem vinna við þessar vélar, viti
af,“ segir Snæfríður. S.dór
Bændur þurfa vinnuvélaréttindi á fjósavélar
Um 170 manns sóttu fagráð-
stefnu skógargeirans, sem haldin
var á Hvolsvelli 3. og 4. apríl sl.
af landshlutabundu skógrækt-
arverkefnunum. Um 25 manns
fluttu erindi um ýmis mál tengd
skógrækt. Fjallað var um bind-
ingu kolefnis, líffræðilegan fjöl-
breytileika, líforku úr skógum
og ræktunarland í framtíðinni,
ásamt öðru skógartengdu, í
mörgum áhugaverðum erindum
á ráðstefnunni.
„Ég var ánægðastur með hvað
allt gekk upp í sambandi við und-
irbúning og framkvæmd ráð-
stefnunnar. Það er ekki einfalt að
skipuleggja ráðstefnu af þessari
stærðargráðu úti á landi, en starfs-
fólk Hótel Hvolsvallar á hrós skilið
fyrir allan viðurgerning á staðnum
og að sjálfsögðu líka starfsfólk
Suðurlandsskóga og aðrir, sem
unnu við ráðstefnuna,“ sagði Björn
B. Jónsson, framkvæmdastjóri
Suðurlandsskóga, sem fór fyrir ráð-
stefnunni með sínu fólki.
„Mörg erindi á ráðstefnunni ýttu
við mér, en það kom mér mest á
óvart hvað rannsóknir og þróun
í sambandi við frystingu trjá-
plantna, sem Suðurlandsskógar og
LbhÍ hafa haft forgöngu um síð-
ustu árin, hafa skilað miklu. Það
er ljóst að þessi þáttur í skógrækt á
Íslandi er að skila meiri framförum
en flest annað í dag. Auknar kröf-
ur eru gerðar til gæða trjáplantna,
sem skilar sér í betri lifun og síðar í
betri skógrækt. Það má segja að öll
erindin hafði verið áhugaverð, en
fyrirlestrarnir um kolefnismál, líf-
massaiðnað og nytjaland höfðuðu
mjög til mín. Það kom mér líka á
óvart að sjá hvað mikið var af ungu
fólki á ráðstefnunni, sem segir
okkur það eitt að við þurfum ekki
að kvíða framtíðinni,“ sagði Björn
ennfremur um ráðstefnuna.
Eftir að ráðstefnunni lauk var
aðalfundur Landssambands skóg-
areigenda haldinn á Hvolsvelli.
Mörg mál lágu fyrir á fundinum,
en brunatryggingar og brunavarn-
ir í skógi voru eitt af stóru málum
fundarins, auk margra annarra mála
sem brenna á skógarbændum um
þessar mundir. Nær 1000 bændur
stunda skógrækt og skjólbeltarækt
á Íslandi í dag. Magnús Hlynur
Hreiðarsson og Agnes Geirdal tóku
meðfylgjandi myndir á ráðstefn-
unni. MHH
Um 170 manns sóttu fagráðstefnu
skógargeirans á Hvolsvelli
Sjaldan eða aldrei hafa eins margir mætt á fagráðstefnu skógargeirans, eða um 170 manns.
Edda Björnsdóttir í Miðhúsum að fara að smella kossi á Guðjón Magnússon
hjá Landgræðslunni, en þau voru svo ánægð að sjá hvort annað á ráð-
stefnunni.
Jón Loftsson skógræktarstjóri
mætti að sjálfsögðu á Hvolsvöll.
Steinunn Ósk Kolbeinsdóttir var
meðal ráðstefnustjóranna. Hér er
greinilega mjög gaman hjá henni.
Slegið var á létta strengi á kvöldvökunni. Hér eru þau Valgerður Erlings-
dóttir, Bjarni Diðrik, Hreinn Óskarsson og sr. Guðbjörg Arnardóttir í Odda.
Björn B. Jónsson á ráðstefnunni á
Hvolsvelli. Í pontunni er Björgvin
Eggertsson, einn af ráðstefnustjór-
unum.