Bændablaðið - 15.04.2008, Síða 23

Bændablaðið - 15.04.2008, Síða 23
Bændablaðið | Þriðjudagur 15. apríl 200823 „Ég er mjög ánægður með þessa niðurstöðu og fagna henni mjög,“ segir Hörður Snorrason, bóndi í Hvammi í Eyjafjarðarsveit, en Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur fellt úr gildi fjárnám, sem sýslumaðurinn á Akureyri gerði að kröfu Eyjafjarðarsveitar í fyrrahaust, í eignarhluta Harðar í fasteigninni Hvammi í Eyjafjarðarsveit. Þá var sveitar- félaginu gert að greiða Herði 500 þúsund krónur í málskostnað. Málið snýst um nýtingu afréttar, en Hörður stundar kúabúskap og kveðst því ekki nýta afrétt sveit- arinnar. Sveitarfélagið krafðist þess að hann skilaði dagsverkum í smöl- un afréttarins eða greiddi ella svo- kallað fjallskilagjald. Hörður hefur neitað að greiða gjaldið frá árinu 2003, enda telur hann ekki lagastoð fyrir innheimtu þess hjá sér. Um miðjan október í fyrra var, að kröfu sveitarfélagsins, gert fjárnám í fast- eign Harðar vegna fjallskilagjalds fyrir árin 2003 til 2006 og nemur upphæðin um 100 þúsund krónum. „Ég er leystur undan því að greiða þessi gjöld en nú liggur fyrir sveitarfélaginu að ákveða fram- haldið, hvort fjallskilasamþykkt verði breytt á þann hátt, að heimilt verði að innheimta fjallskilagjald, og þá mun ég hlíta því.“ Hörður segir baráttuna hafa tekið langan tíma, frá árinu 2003, og er feginn að málinu sé nú lokið, „en það er svo annarra að ákveða hvort farið verði með það lengra.“ MÞÞ N1 Akranesi 431-1379 KM. Þjónustan Búardal 434-1611 Dekk og smur Stykkishólmi 438-1385 Bifreiðaþ. Harðar Borgarnesi 437-1192 Vélaverkst. Sveins Borðeyri 451-1145 Hjólbarðaverkstæði Ísafjarðar 456-3501 Bifreiðav. Gunnars Klaustri 487-4630 Framrás Vík 487-1330 Gunnar Vilmundar Laugarvatni 486-1250 Vélaverkstæðið Iðu 486-8840 Hjólbarðaþjón. Magnúsar Selfossi 482-2151 Bifreiðav. Jóhanns Hveragerði 483-4299 Bílaþjónustan Hellu 487-5353 Hvolsdekk Hvolsvelli 487-8005 Bifreiðav. Sigursteins Breiðdalsvík 475-6616 Vélsmiðja Hornafjarðar 478-1340 Bíley Reyðarfirði 474-1453 Réttingav. Sveins Neskaupsstað 477-1169 N1 Mosfellsbæ 440 1378 N1 Réttarhálsi 440 1326 N1 Fellsmúla 440 1322 N1 Reykjavíkurvegi 440 1374 N1 Ægissíðu 440 1320 Bílaverkstæði S. B. ehf. Ísafirði 456-3033 Græðir sf. Varmadal, Flateyri 456-7652 Vélav. Hjartar Eiríkss. Hvammstanga 451-2514 Kjalfell Blönduósi 452-4545 Bílaverkstæði Óla Blönduósi 452-2887 Vélav. Skagastrandar Skagaströnd 452-2689 Pardus Hofsósi 453-7380 Hjólbarðaþ. Óskars Sauðárkróki 453-6474 Kf. Skagfirðinga Sauðárkróki 455-4570 B.H.S. Árskógsströnd 466-1810 Bílaþjónustan Húsavík 464-1122 N1 Vesturbraut 552 Vallarheiði 440 1372 Kraftvélar ehf. /// Dalvegi 6-8 /// 201 Kópavogi Sími 535 3500 /// Fax 535 3501 /// www.kraftvelar.is Gestahús til sölu: Er að byggja 25 fm heilsárshús tvö herb/ forst /bað, mjög vand- að og hentar vel íslenskum aðstæðum. Húsið er fullbúið að utan og tilbúið til afhendingar. Panilklætt að innan, með raflögnum en án gólfefna og baðinnréttingar. Hægt er að fá það fullbú- ið sem tveggja herbergja eða eitt herbergi og eldhús allt eftir þörfum hvers og eins. Tilvalið fyrir þann sem vantar gistihús eða stækka sumarhúsið sitt. Húsið er til sýnis að Cuxhavengötu 1, Hafnarfirði Upplýsingar í síma 8200051. Til sölu MAPA pökkunarvél ásamt mötunar snigli, silói, rykviftu og loftpressu. Verð 1250 þús,+vsk. Uppl. í síma 8930564. Sáning ehf. Kríuási 45c, 221 Hafnarfirði Allt frá því ég las fyrir nokkuð mörgum árum bókina The First Horseman hefi ég einhverra hluta vegna haft mikinn áhuga á hestum og meðferð hesta. Finnst mér oft í samanburði við hvernig hugsað er um hesta erlendis, ill meðferð á hestum hér á okkar kalda landi. Eitt sinn átti ég viðræður við bónda norður í landi sem lokið hafði skólagöngu frá Hólaskóla og fræddist ég mikið af sam- tali okkar. Bóndinn sagði mér að jarðvegur okkar væri ákaf- lega snauður af mörgum vítam- ínum sem búfénaður þarfnaðist. Sumarið okkar væri stutt og fáar sólskinsstundir miðað við mörg önnur lönd. Þess vegna væri til- finnanlegur skortur á bætiefnum. Hestar í heimahögum að haust- og vetrarlagi fá enga næringu úr því sem þeir kroppa, aðeins magafylli og vætu. Ekki er mér kunnugt um hve langt er síðan farið var að fram- leiða fóðurbæti hér á landi fyrir búfé, en það hefur engin áhrif á þann innflutning sem fyrirtækið Hamraberg ehf. hefur nú snúið sér að. Í byrjun er um að ræða fóð- urbæti sem eingöngu er ætlaður hest- um. Fram- leiðslufyrir- tækið er í Norður-Jór- víkurskíri á Englandi og hefur starfað þar í 108 ár. Það er enn í eigu sömu fjölskyldu, stjórnað af fjórða ættlið. Heildarsala fyrir- tækisins árið 2006 var rúmlega 80 þúsund tonn. Framleiðsla þessi er viður- kennd og notuð víðsvegar um ver- öldina, í mörgum Evrópulöndum og auk þess Bandaríkjunum, Kan- ada, Kína og Suður-Afríku, svo nokkur lönd séu nefnd. Fyrirtæk- ið fékk nýverið fengið einkaleyfi á framleiðsluaðferðinni. Tegundin af fóðurbæti sem Hamraberg er farið að selja heitir Speedi-Beet og er bæklingur um efnið fáanlegur á íslensku. Hamraberg ehf. Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ Sími 566 7450. Fax 566 7172 Netfang: tryggvason@simnet.is Fæðubótarefni fyrir hesta Valdimar Tryggvason Héraðsdómur fellir úr gildi fjárnám í Hvamm í Eyjafjarðarsveit „Fagna niðurstöðunni mjög“ Ný stífla á Djúpadalsvirkjun Verið er að byggja yfirfallsstíflu við Djúpadalsvirkjun í Eyjafjarðarsveit og er stefnt að því að verkinu ljúki nú í sumar, að sögn Franz Árnasonar, forstjóra Norðurorku. Stíflan skemmdist mikið í gríð- arlegu flóði í Djúpadalsá þann 20. desember árið 2006. „Það fer eftir veðri og aðstæðum hvenær verkinu lýkur, en við vonum að gangi vel og búið verði að byggja stífluna í sumar,“ segir Franz. www.bondi.is

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.