Bændablaðið - 15.04.2008, Síða 33

Bændablaðið - 15.04.2008, Síða 33
Bændablaðið | Þriðjudagur 15. apríl 200833 Haukur Hreinsson er búsettur ásamt fjölskyldu sinni í Stykkishólmi og verður 11 ára gamall í ágúst. Draumur hans er að verða atvinnumaður í körfu- bolta, en einnig er hann mikill hestaáhugamaður og ætlar meðal annars í nokkrar hestaferðir með pabba sínum í sumar. Nafn: Haukur Hreinsson. Aldur: 11 ára í ágúst. Stjörnumerki: Ljón. Búseta: Stykkishólmur. Skóli: Grunnskólinn í Stykkishólmi. Íþróttir. Hvert er uppáhaldsdýrið þitt? Hestar. Uppáhaldsmatur: Hamborgari. Uppáhaldshljómsveit: Eminem. Uppáhaldskvikmynd: Blades of Glory. Fyrsta minningin þín? Þegar ég fór í fyrsta skipti í heimsókn til Arnars á Urriðafossi. og körfubolta og er að læra á trommur. Hvað er það skemmtilegasta sem þú gerir í tölvu? Spila körfuboltaleikinn NBA2K8. Hvað ætlar þú að verða þegar þú verður stór? Atvinnu- maður í körfubolta. Hvað er það klikkaðasta sem þú hefur gert? Ég beit einu sinni í rassinn á Hlyni bróður mínum. Hvað er það leiðinlegasta sem þú hefur gert? Taka til í herberginu mínu. Hvað ætlar þú að gera í sumar? Spila fótbolta, keppa á Ungmennalandsmótinu í Þorlákshöfn og fara í hestaferðir með pabba mínum. ehg Fólkið sem erfir landið Haukur Hreinsson er hress og kátur snáði í 5. bekk Grunnskólans í Stykkishólmi og stundar íþróttir af kappi. Hér er hann með tveimur frænkum sínum, systrunum Hörpu Rósey (t.v.), sem er kínversk, og Auði Tiya, sem er frá Indlandi. Leiðinlegast að taka til í herberginu! Styrkveitingar á vegum erfðanefndar landbúnaðarins Meginhlutverk erfðanefndar landbúnaðarins er að vinna að varðveislu og sjálfbærri nýtingu erfðaauðlinda í land- búnaði. Í því skyni hefur nefndin ákveðið að verja fjár- munum í að styrkja einstök afmörkuð verkefni sem falla að þessu hlutverki. Lögð er áhersla á að styrkja verk- efni á eftirfarandi sviðum: erfðaauðlindum í landbúnaði. varðveislu og/eða nýtingu á erfðaauðlindum í landbúnaði. og/eða nýtingu erfðaauðlinda í landbúnaði. - auðlindir í landbúnaði og gildi þeirra. Um styrki þessa geta sótt bæði einstaklingar eða félaga- samtök sem hafa það að markmiði að stuðla að verndun og sjálfbærri nýtingu innlendra erfðaauðlinda í íslenskum landbúnaði. Að jafnaði verða veittir styrkir á bilinu kr. 200-700 þús. Umsóknum skal skilað til formanns erfðanefndar, Áslaugar Helgadóttur Landbúnaðarháskóla Íslands, Keldnaholti, 112 Reykjavík (aslaug@lbhi.is) fyrir 30. apríl n.k. „Mér finnst þetta unga fólk sem hér hefur komið fram í kvöld í raun allt vera sigurvegarar. Það er ekki sjálfgefið þegar maður er 12 ára að hafa kjark til að standa frammi fyrir fullum sal af fólki og lesa upp. En það hafa þessir krakkar gert og með þeim hætti að starf dómnefndarinnar var vandasamt. En að lokum urðum við sammála um hverjir stæðu efstir. Þetta hefur verið frábært kvöld og öll umgjörð keppninnar ykkur til sóma, jafnt keppendum sem þeim sem fluttu tónlist og kynntu það sem fram fór,“ sagði Þórður Helgason formaður dómnefndar þegar hann kynnti úrslit lokahátíð- ar Stóru upplestrarkeppninnar í Fjölbrautaskólanum á Sauðárkróki á dögunum þar sem 12 krakkar úr Skagafirði og Siglufirði kepptu til úrslita. Skáld keppninnar að þessu sinni voru Jón Sveinsson, Nonni, og Steinn Steinarr, en auk þess að flytja efni eftir þessa höf- unda fluttu krakkarnir eitt ljóð að eigin vali. Sigurvegari í ár varð Helga Þórsdóttir úr Árskóla á Sauðárkróki. Í öðru sæti varð Katarína Ingimarsdóttir úr Varma- hlíðarskóla og þriðji varð Arnór Þórðarson úr Árskóla. Þessi þrjú hlutu peningaverðlaun sem Sparisjóður Skagafjarðar gaf. Það eru Raddir, samtök um vandaðan upplestur og framsögn sem standa að Stóru upplestr- arkeppninni í samvinnu við skóla- skrifstofur, skóla og kennara um land allt. ÖÞ Þrjú efstu í Upplestrarkeppninni, sigurvegarinn lengst til hægri. Ljósm. ÖÞ. Vandasamt að velja sigurvegara

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.