Bændablaðið - 13.10.2011, Síða 4

Bændablaðið - 13.10.2011, Síða 4
Bændablaðið | fimmtudagur 13. október 20114 Fréttir Dagana 7. - 11. nóvember verða haldin 1 - 3 námskeið í gæða- stýrðri sauðfjárrækt. Staðsetning og fjöldi námskeiðanna fer eftir því hvaðan þátttakendur eru og fjölda þeirra. Nýir þátttakendur í gæðastýringu í sauðfjárrækt þurfa að sækja um það til Matvælastofnunar á þar til gerðum umsóknareyðublöðum. Umsóknarfrestur er til 20. nóvem- ber ef framleiðandi óskar eftir álags- greiðslum fyrir næsta almanaksár. Eitt af grunnskilyrðum fyrir þátttöku í gæðastýringu í sauðfjárrækt er að hafa sótt undirbúningsnámskeið. Námskeiðin hefjast kl. 10.00 fyrir hádegi og þeim lýkur kl. 18.00. Námskeiðin eru styrkt af Starfsmenntasjóði bænda Skráning: Þeir sem óska eftir að sækja fyrirhuguð námskeið eru vinsam- legast beðnir að skrá þátttöku til Bændasamtaka Íslands fyrir 20. október. Unnt er að skrá þátttöku í síma 563 0300 eða á tölvupósti bella@bondi.is Bændasamtök Íslands. Námskeið í gæðastýrðri sauðfjárrækt Í Vallanesi á Fljótsdalshéraði er einhver umfangsmesta lífræna ræktun á Íslandi. Kornakrarnir eru víðáttumiklir, enda er lífrænt ræktað bygg undirstaðan í fram- leiðslu býlisins. Grænmetis- og kornakrarnir í Vallanesi ná yfir 50 ha landsvæði og af þeim fóru um 60 tonn af byggi til neytenda á síðasta ári. Bóndinn, Eymundur Magnússon, er frumkvöðull á Íslandi í framleiðslu á lífrænt ræktaðri matvöru fyrir neyt- endamarkað undir vörumerkinu Móðir Jörð og hefur hann á síð- ustu árum, ásamt eiginkonu sinni Eygló Björk Ólafsdóttur, þróað nokkrar vörutegundir úr bygg- inu, sem fallið hafa í kramið hjá neytendum – nú síðast byggflögur sem hugsaðar eru sem mótvægi við hina vinsælu hafra. Sumarið var fremur erfitt í Vallanesi – sólarlítið og kalt – og þegar blaðamaður var þar á ferð í lok sumars var ekki útséð með hvort uppskera fengist af kornökrunum. Eymundur er nú byrjaður að þreskja byggið og segir að útlit sé fyrir um 60 prósent uppskeru. Þó svo að uppskera verði ekki mikil segir Eymundur að neytendur þurfi þó ekki að örvænta því enn séu nægar kornbirgðir til í Vallanesi. Þeim neytendum sem kjósa líf- rænar vörur fram yfir aðrar hefur fjölgað mjög á Vesturlöndum á síðustu árum og það gildir einnig um Ísland. Svo virðist sem neyt- endur verði sífellt meðvitaðri um gæði þess matar sem þeir láta ofan í sig; geri meiri kröfur um hreinleika hans og heilnæmi – og þess vegna séu lífrænar vörur í sókn. Hollt og hagkvæmt bygg Hollusta byggsins er kunn. Í skýrslu Matís frá 2008, Íslenskt bygg til matvælaframleiðslu, kemur m.a. fram að áhugi á byggi til matvæla- framleiðslu hefur farið vaxandi vegna hollustuþátta sem eru í bygg- inu. Það er auðugt af trefjaefnum og vatnsleysanlegu trefjaefnin – svokallaðir beta-glúkanar vekja sérstaka athygli í því sambandi. Þeir geta lækkað blóðkólesteról og dregið úr sveiflum í blóðsykri samkvæmt skýrslu Matís. Þá er í byggi hátt hlutfall flókinna kolvetna og trefjaefna sem eru í samræmi við næringarráðleggingar. Bygg er einnig auðugt af ýmsum bætiefnum, t.d. steinefnum eins og kalíum og vítamíni eins og þíamíni. Nú er talið að korn eins og bygg innihaldi meira af andoxunarefnum en áður var haldið – einkum flavanol og tókóferól. Eymundur segir að í kjölfar kreppunnar, á árinu 2009, hafi sala á bygginu frá Vallanesi aukist um 50 prósent. „Ég skýri það þannig að fólk fór að horfa meira til íslenskrar fram- leiðslu – líta sér nær – bæði vegna þess að verðlag var hagstætt og svo vil ég nú trúa því að þrotlaust kynn- ingarstarf hafi verið farið að skila sínu.“ Þar vísar Eymundur til þess að hann hefur unnið óslitið á hverju ári í 20 ár við að kynna byggið fyrir Íslendingum; gefið þeim að smakka og útlistað möguleika á notkun þess í matargerð. Auk byggsins, sem selt er bæði heilt (Bankabygg) en einnig malað og valsað, eru ýmsar aðrar vörutegundir framleiddar undir merkjum Móður Jarðar. Það eru m.a. vörur sem innihalda bygg; s.s. þrjár gerðir af tilbúnum grænmetisbuffum og Hrökkvi, fjórar bragðtegundir af stökku hrökkkexi sem er 70 prósent úr byggi og hveiti frá Vallanesi. Síðan má nefna tvær gerðir af kryddsultum (chutney) sem heita Rauðrófugló og Gulrófugló og innihalda bæði rófur og rauðrófur – enda er einnig stunduð víðtæk grænmetisræktun í Vallanesi. Eymundur og Eygló eru sífellt að skoða möguleika í ræktun og sölu og hafa nú á prjónunum að fram- leiða repjuoliu til manneldis. „Ég þreskti repjuna 5. október sl. og er búinn að þurrka hana, en við sáðum fyrir henni síðasta sumar. Nú fer ég að huga að því að finna tækjabúnað til að pressa olíuna úr fræjunum og ef allt gengur eftir þá ættum við að geta sett íslenska lífræna repjuolíu á neytendamarkað upp úr áramótum. Lífrænn kúabóndi í Eyjafirði, á Finnastöðum, hefur þegar falast eftir því að fá hratið sem til fellur.“ /smh Sumarið var fremur er tt í Vallanesi sólarlítið og kalt og þegar blaðamaður var þar á ferð í lok sumars var ekki úts ð með hvort uppskera fengist af kornökrunum. Auk kornsins og afurða úr því eru ýmsar aðrar vörutegundir framleiddar undir merki Móður jarðar. Lífrænt ræktaða byggið í Vallanesi Einungis 60 prósent uppskera fæst nú í haust – lífrænt ræktuð repjuolía til manneldis á markað eftir áramót Hádegisfundur | Allir velkomnir - frír aðgangur Matvælaframleiðsla morgundagsins - verður nóg af mat fyrir íbúa jarðar? mánudagur 17. október kl. 12:00-13:30 Fyrirlestrarsalur Íslenskrar erfðagreiningar, Vatnsmýri. Fundurinn fer fram á ensku Nánari upplýsingar á www.bondi.is Fyrirlesari: Julian Cribb, höfundur bókarinnar „The Coming Famine: The global food crisis and what we can do to avoid it“ Kokkalandsliðið í samvinnu við bændur og útgáfufélagið Sögur mun á næstu dögum gefa út bók- ina „Eldum íslenskt með kokka- landsliðinu“ þar sem áhersla er lögð á íslenskt hráefni, uppruna þess og einfaldar uppskriftir. Í bókinni sem er tæpar 200 síður eru fjölmargar uppskriftir að grænmetisréttum, kjötréttum, eftir- réttum og einnig er farið í brauðgerð og kökubakstur. Kokkalandsliðið hefur einfaldleikann að leiðarljósi í bókinni en miðað er við að ekki þurfi meira en 5 hráefni í hvern rétt. Margar uppskriftir eru sóttar í smiðju fyrri kynslóða en m.a. er sláturgerð tekin fyrir og að sjálfsögðu eru ýmsir þjóðarréttir eins og kjötsúpa á sínum stað. Jafnframt er lögð áhersla á að kynna bændur sem standa að fram- leiðslunni en þeir miðla líka áhuga- verðum fróðleik til lesenda. Vorið 2009 voru framleiddir 20 sjónvarps- og vefþættir undir nafninu „Eldum íslenskt“. Bændasamtökin framleiddu þættina en stjórnandi var þáverandi yfirkokkur Hótel Sögu, Bjarni Gunnar Kristinsson. „Eldum íslenskt“ var sýnt á sjónvarpsstöð- inni ÍNN en einnig á matarvef mbl. is. Að sögn Bjarna er bókin rökrétt framhald þáttanna en í fyrra gaf kokkalandsliðið út bókina „Einfalt með kokkalandsliðinu“ sem hlaut mjög góðar móttökur. Það er útgáfufélagið Sögur sem gefa bókina út og dreifa henni. Eldum íslenskt með kokkalandslið- inu verður fáanleg í verslunum um næstu mánaðamót en bókin verður boðin í forsölu á útsölustöðum N1 um allt land seinni hluta október- mánaðar. Eldum íslenskt með kokkalandsliðinu - áhersla á einfaldar uppskriftir, gott hráefni og bændur Í bókinni ldum íslenskt með kokka- landsliðinu eru íslenskar búvörur í öndvegi.

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.