Bændablaðið - 13.10.2011, Page 34

Bændablaðið - 13.10.2011, Page 34
34 Bændablaðið | fimmtudagur 13. október 2011 Magnús keypti sér 30 ær árið 2006, svo 80 ær árið 2007 og fjölgaði svo úr þeim stofni. Þannig hóf Magnús búskapinn, en um haustið 2006 fór hann í Landbúnaðarháskólann á Hvanneyri, eftir að hafa klárað smíðanám. Foreldrar Magnúsar, þau Elías Guðmundsson og Sigríður Magnúsdóttir, sáu um ærnar á meðan Magnús var á Hvanneyri. Vorið 2008 útskrifað- ist Magnús sem búfræðingur og hóf þá búskap að fullu. Rannveig, Arnar Finnbogi og Erla Rán komu svo inn í búskapinn núna í sumar, eftir að hafa verið hálf- gerðir heimalningar á bænum í tæpt ár . Býli? Stóra-Ásgeirsá. Staðsett í sveit? Víðidal í Húnaþingi vestra. Ábúendur? Magnús Ásgeir Elíasson, Rannveig Aðalbjörg Hjartardóttir, Arnar Finnbogi 6 ára og Erla Rán 3 ára. Fjölskyldustærð (og gæludýra)? Ásamt okkur fjórum eru hér tveir hundar; þau Táta 7 ára og Moli rúmlega 6 mánaða, og tvær kisur; þær Gugga 4 ára og Vala Flosa 2 ára. Stærð jarðar? 950 ha. Tegund býlis? Hrossa- og sauð- fjárrækt. Fjöldi búfjár og tegundir? Í vetur voru rétt um 300 vetrarfóðr- aðar ær og um 20 hross. Hvernig gengur hefðbundinn vinnudagur fyrir sig á bænum? Vakna, fá sér kaffi og súkkulaði, út að gefa, temja/þjálfa hross, gefa svo aftur. Skemmtilegustu/leiðinlegustu bústörfin? Það er mottó hér á bæ að það eru engin störf leiðinleg, bara misjafnlega skemmtileg. En skemmtilegasti tíminn er vorið, þegar lömbin og folöldin koma í heiminn og gróðurinn er að lifna við. Á haustin er svo líka spennandi að skoða hvernig lömbin koma út eftir sumarið og hrossin á fjórða vetri sem byrjað er að frumtemja. Hvernig sjáið þið búskapinn fyrir ykkur á jörðinni eftir 5 ár? Svipaðan og núna nema bara betri, meiri endurræktun á túnum, fimm fyrstu verðlauna merar í ræktun, um 400 vetrarfóðraðar ær og svo svona þrír krakkar í viðbót. Hvaða skoðun hafið þið á félags- málum bænda? Félagsmál bænda hér á svæðinu eru í góðum gír, félagsmálin hjá hestamannafélag- inu Þyt eru alveg frábær og til fyrirmyndar. Hvernig mun íslenskum land- búnaði vegna í framtíðinni? Verður örugglega bras áfram en mikilvægt að halda okkur utan ESB og auðvelda nýliðun í landa- búnaðinum. Hvar teljið þið að helstu tækifærin séu í útflutningi íslenskra búvara? Í mjólkurvörunum og lambakjötinu, svo að markaðsetja íslenska hestinn meira. Hvað er alltaf til í ísskápnum? Mjólk og suðusúkkulaði. Hver er vinsælasti maturinn á heimilinu? Ætli það séu ekki Magga Special-samlokurnar. Eftirminnilegasta atvikið við bústörfin? Það skeður nú margt skemmtilegt við bústörfin en það eftirminnilegasta í augnablikinu er síðastliðið vor, hvað var mikið rok og kuldi og húsin full af ám og lömbum sem ekki var hægt að hleypa út. 4 6 7 1 2 7 8 3 3 4 5 6 1 9 7 5 3 3 9 5 1 3 2 2 9 7 9 4 3 2 2 8 3 2 6 1 1 7 4 8 7 6 3 1 4 3 5 3 9 1 9 5 1 4 3 8 2 6 7 3 9 2 5 6 5 4 9 7 Sudoku Galdurinn við Sudoku-þrautirnar er að setja réttar tölur frá 1-9 í eyðurn ar. Sama talan má ekki koma fyrir tvisvar í línu lárétt og lóð rétt og heldur ekki innan hvers reits sem afmarkaður er af sverari lín um. Þrautirnar eru miserfiðar, sú sem er lengst til vinstri er léttust og sú til hægri þyngst en sú í miðjunni þar á milli. Hægt er að fræðast nánar um Sudoku-þrautirnar á vefsíðunni www.sudoku2.com og þar er einnig að finna fleiri þrautir ef þessi skammtur nægir ekki. Villti kokkurinn Úlfar Finn- björnsson hefur í samvinnu við Sölku útgáfu gefið út uppskrifta- bókina Stóru bókina um villibráð, sem er alfræðirit um nýtingu villi- bráðar. Bókin er skreytt fróðleiks- molum og margar sælkeraupp- skriftir má finna í henni en hér koma örlítil sýnishorn. Söltuð gæsalæri með dijon-sinnepi Fyrir 4 8 gæsalæri 2 dl gróft salt ½ dl nítrítsalt, má sleppa 1 dl sykur Aðferð: Hyljið gæsalæri með salti og sykri og geymið við stofuhita í 3 klukkustundir. Skolið þá saltið af lærunum og setjið þau í pott með köldu vatni þannig að rétt fljóti yfir þau. Sjóðið við vægan hita í 2-3 klukkustundir eða þar til lærin eru orðin mjúk undir tönn. Berið lærin fram með dijon-sinnepi, blönd- uðu, soðnu grænmeti og kartöflum. Skarfalærapottréttur Fyrir 4 800 g kjöt af skarfalærum, einnig má nota gæs 4 msk. olía salt og nýmalaður pipar 1 laukur, skorinn í báta 10 sveppir, skornir í báta 200 g ferskir villisveppir eða 50 g þurrkaðir, lagðir í bleyti 6-8 dl villibráðarsoð eða vatn og nautakraftur 1 dl rúsínur ½ dl þurrristaðar furuhnetur 2 dl rjómi sósujafnari Aðferð: Geymið kjötið við stofuhita í u.þ.b. 20 mínútur og sigtið allan vökva frá. Steikið kjötið upp úr olíu á vel heitri pönnu í 3-4 mínútur eða þar til það er orðið fallega brúnað. Kryddið með salti og pipar. Bætið lauk, sveppum og villisveppum á pönnuna og steikið í 3-4 mínútur til viðbótar. Hellið villi- bráðarsoði á pönnuna og sjóðið við vægan hita í 50-60 mínútur eða þar til kjötið er orðið mjúkt undir tönn. Bætið rúsínum og furuhnetum saman við og sjóðið í 5 mínútur til viðbótar. Hellið rjóma út í og þykkið með sósujafnara. Smakkið til með salti og pipar. Berið fram með t.d. hrísgrjónum eða kartöflumús, salati og brauði. /ehg MATARKRÓKURINN Líf og lyst BÆRINN OKKAR Veisluréttir úr villibráð 9 2 6 Erla Rán og Arnar Finnbogi á hestinum Dróma frá Stóru-Ásgeirsá, 6 vetra, fyrsta hestinum sem öll fjölskyldan á saman. Rannveig og Magnús standa hjá. Stóra-Ásgeirsá 5 Söltuð gæsalæri með dijon-sinnepi er einfalt að matreiða en þau taka svolítinn tíma í suðu.

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.