Bændablaðið - 13.10.2011, Side 19

Bændablaðið - 13.10.2011, Side 19
Blaðauki 13. október 2011 20 Alþjóðamatvæladagur Matvæla- og landbúnaðarstofnunar Sameinuðu þjóðanna (FAO), verður haldinn sunnudaginn 16. október næst- komandi. Hann er að þessu sinni helgaður baráttunni gegn sveiflum í matvælaverði. Að því tilefni er umfjöllun hér í Bændablaðinu um matvælaframleiðslu og fæðuöryggi í heiminum. Þeirri spurningu er oft hent á loft hvað Ísland geti lagt af mörkum til þess að berjast gegn neikvæðri þróun matvælaframleiðslu á alþjóðavísu. Þrátt fyrir að við séum agnarsmá í samfélagi þjóðanna þá er það engu að síður þannig að allir bera sína ábyrgð. Hér til hliðar er rætt við Julian Cribb sem er þekktur fyrirlesari á sviði fæðuöryggismála. Á næstu síðum ræða íslenskir sér- fræðingar m.a. um landhnignun, áherslur í íslenskum landbúnaði, þróun á Norðurlöndunum og einnig er rætt við Árna Mathiesen sem um þessar mundir starfar hjá FAO í Róm. Alþjóðamatvæla- dagur FAO 20 21 Um 70 milljónir sveltaLandhnignun Matvælaframleiðsla og fæðuöryggi WORLD FOOD DAY 16 OCTOBER 2011 www.fao.org Þurfum að umbylta landbúnaði í heiminum – og framleiða miklu meira með minni tilkostnaði segir Julian Cribb Mánudaginn 17. október næst- komandi standa Bændasamtök Ís lands, Landgræðslan, Landbúnaðarháskóli Íslands og sjávarútvegs- og landbúnaðar- ráðuneytið fyrir hádegisfundi í húsnæði Íslenskrar erfða- greiningar undir yfirskriftinni Matvælaframleiðsla morgundags- ins. Þar mun Julian Cribb halda fyrirlestur um þær hættur og þau tækifæri sem heimurinn stendur frammi fyrir vegna sífelldrar fólks- fjölgunar, hækkandi matvæla- og aðfangaverðs og erfiðleikanna sem fylgja því að brauðfæða sífellt fleira fólk. Julian Cribb er heimsþekktur rithöfundur, blaðamaður og fyrir- lesari um stöðu og horfur á heims- vísu á sviði landbúnaðar, orkumála og umhverfis- og auðlindaverndar. Cribb er fæddur á Bretlandi en fluttist árið 1966 til Ástralíu þar sem hann hefur búið síðan, en frá árinu 1977 hefur hann búið í höfuðborginni Canberra. Hann hefur hlotið 32 verðlaun fyrir ýmis verkefni á sviði blaðamennsku, en þess má geta að hann var fyrsti vestræni blaðamaður- inn til að senda frásagnir beint frá kjarnorkuslysinu mikla í Chernobyl. „Þurfum að umbylta landbúnaði í heiminum“ Bændablaðið hafði samband við Cribb og bað hann að lýsa helstu áskorunum og hættum sem heim- urinn stendur frammi fyrir varðandi matvælaframleiðslu og auðlinda- nýtingu á komandi árum. Árið 2060 verða íbúar heimsins um 10-11 millj- arðar samkvæmt mannfjöldaspám. Fram að þeim tíma er nauðsynlegt að tvöfalda matvælaframleiðsluna til að brauðfæða heiminn. Cribb segir verkefnið risavaxið en þó fram- kvæmanlegt. „Í stuttu máli þurfum við að umbylta landbúnaði í heiminum þannig að við framleiðum miklu meira með minni tilkostnaði. Við þurfum að breyta mataræði jarðar- búa svo það sé heilbrigðara og sjálf- bærara og við verðum að gjörbylta borgum og þéttbýli svo að við hætt- um að sóa vatni og næringarefnum.“ Nýr, vistvænn landbúnaður Umbylting landbúnaðar er í sjálfu sér ekki flókið verkefni í vísindalegu tilliti, segir Cribb. „Það mun þurfa stórauknar rann- sóknir og þróun, auk alheimsátaks við að deila þekkingu meðal bænda. Hinn nýi, vistvæni landbúnaður felst í að framleiða meiri mat, nota minna land, minni orku, minna vatn, minni áburð og minna af óæskilegum, til- búnum efnum. Hinn nýi, vistvæni landbúnaður verður byggður upp á vistfræðilegri þekkingu en fyrst þurfum við að byggja upp vistfræð- ina, einkum jarðvegsvistfræði, sem er alvarlega vanrækt í næstum öllum löndum heims í dag. Þar sem olíuframleiðsla heimsins náði hápunkti árið 2006, er mikil hætta á stórfelldri olíuverðshækkun hvenær sem er. Hækkun eldsneytis- verðs eins og varð á áttunda áratugn- um myndi veita mörgum bændum náðarhögg. Því þurfum við – helst í gær – að þróa nýjar leiðir til orku- framleiðslu til ræktunar og flutninga. Það gætu verið vetni, sólarorka, elds- neyti unnið úr þörungum, lífdísel eða önnur kynslóð lífefnaeldsneytis. Vel undirbúnum löndum mun takast að gera bændur sína óháða jarðefna- eldsneyti áður en næsta stóra högg ríður yfir.“ „Vonda“ vandamálið Matvælaframleiðsla í heiminum er háð mjög alvarlegum takmörkunum. Við missum m.a. eitt prósent af rækt- uðu landi árlega, samkvæmt gervi- tunglamyndum. Gríðarleg landflæmi eru þegar undir borgum og bæjum og íbúar þeirra reiða sig alfarið á mat- væli framleidd utan þéttbýlis. Cribb segir lífsnauðsynlegt að snúa þessari þróun við, m.a. með því að setja lög sem sporni við því að landsem hentar til matvælaframleiðslu sé tekið til annarra nota. „Ég tel það nauðsynlegt. Ræktarland í heiminum hefur minnkað síðustu 10 ár, þrátt fyrir hækkandi verð á afurðum bænda. Þetta bendir til þess að gott rækt- unarland sé stöðugt tekið úr land- búnaðarnotum til annarra nota, þ.e. undir þéttbýli, til námuvinnslu og til frístundanota. Þá hafa aðrir þættir eins og rof jarðvegs, mengun og hækkun sjávarborðs þarna einnig áhrif. Í Ástralíu höfum við þegar hafið lagasetningu til að vernda gott landbúnaðarland. Ég tel að þetta þurfi að verða almenn þróun í heiminum, að öðrum kosti þurfa bændur morgundagsins að tvöfalda matvælaframleiðslu í heiminum á helmingi þess lands sem nú er til staðar. Hægt væri að ná 100 prósent aukningu á 50 árum en ég efast um að hægt verði að ná 300 til 400 prósenta aukningu. Þess vegna er nauðsynlegt að bregðast þegar við þessari stöðu. Þarna er dregin upp mynd af því sem ég kýs að kalla „vonda“ vanda- málið. Það eru tíu stór vandamál sem valda því að fæðuöryggi verður lítið. Ef þú leysir aðeins eitt eða tvö þeirra, eins og framleiðsluaukningu, þá hefurðu ekki leyst vandann. Við þurfum að leysa öll vandamálin.“ Landbúnaðarland verði nýtt til matvælaframleiðslu Í ljósi þessa varar Cribb eindregið við því að landbúnaðarland verði tekið úr matvælaframleiðslu og er alfarið mótfallinn hugmyndum um að nýta slíkt jarðnæði til framleiðslu á lífefnaeldsneyti. Hins vegar sé nauðsynlegt að finna aðra orkugjafa en jarðefnaeldsneyti. „Ég tel alls ekki eiga að fram- leiða lífefnaeldsneyti á landbún- aðarlandi, nema þá úr hrati frá annarri ræktun. Hins vegar gætum við mögulega framleitt lífefnaelds- neyti með ræktun þörunga í vatni, bæði í sjó og ferskvatni. Það hafa mjög vænlegar rannsóknir verið gerðar á þessu sviði. Ég hef trú á að þetta verði næsta stóra landbún- aðar-iðnbylting sem fram kemur á heimsvísu. Eina áhyggjuefni mitt þessu tengt er að þörungarækt gæti keppt við matvælaframleiðslu um tilbúinn áburð. Því ættum við að nota lífrænan úrgang frá borgum og mat- vælaframleiðslu sem aðal uppsprettu næringarefna. Auðvitað er einnig hægt að framleiða mat, dýrafóður, lyf og önnur efni úr þörungum, svo það eru mörg tækifæri til nýsköp- unar fyrir bændur sem hefja ræktun þörunga.“ Loftslagsbreytingar gætu haft skelfilegar afleiðingar Líkur eru til að loftslagsbreytingar muni hafa veruleg áhrif á möguleika okkar til að framleiða matvæli. Loftslagsbreytingar munu hafa geigvænleg áhrif á heimsbyggðina alla ef ekki verður gripið til tafar- lausra aðgerða, að mati Cribbs. Nauðsynlegt sé að breyta um kúrs í landbúnaði til að koma í veg fyrir frekari áhrif á loftslag. „Það er ljóst að loftslagsbreyting- ar munu hafa veruleg áhrif á fram- tíð matvælaframleiðslu í heiminum. Hlýnun jarðar um tvær gráður til ársins 2050 gæti þjónað hagsmunum Íslands en gæti á sama tíma skorið matvælaframleiðslu í hitabeltinu og heittempraða beltinu niður um 15-25 prósent, miðað við mat á áhrifunum sem ég hef séð. Fjögurra til fimm gráðu hlýnun jarðar árið 2100 (sem allt stefnir í að óbreyttu) gæti haft skelfilegar afleiðingar í för með sér. Matvælaframboð gæti minnk- að um helming eða meira og slíkt hefði gríðarleg áhrif á stöðugleika í heiminum, sem og íbúaþróun. Því þurfum við ekki aðeins að aðlaga landbúnað að því sem þegar er ljóst, þ.e. hækkun um tvær gráður, heldur þarf heimsbyggðin að hætta notkun jarðefnaeldsneytis eins fljótt og auðið er til að koma í veg fyrir skelfilegar afleiðingar. Landbúnaður á Íslandi gæti notið góðs af hlýnandi loftslagi, en Ísland mun ásamt öllum öðrum þurfa að fást við áhrifin af svim- andi verðhækkunum á matvælum, stríðsástandi og flóði flóttamanna ef hlýnun loftslags verður fjórar gráður eða meira. Enginn er ónæmur fyrir þessum áhrifum. Til að koma í veg fyrir að land- búnaður stuðli að frekari hlýnun jarðar verðum við að færa búfé til baka inn á gresjur og graslendi, stjórna beitinni betur þannig að gras- lendi jafni sig, binda meiri koltvísýr- ing á gríðarstórum svæðum og varð- veita meira vatn í landslaginu. Ef nautgripum, sauðfé og öðrum gras- bítum er beitt á sjálfbæran hátt ætti graslendi að blómstra, þ.e. að ekki gangi á það. Með því móti getum við kolefnisjafnað kjötframleiðslu í heiminum. Hvað varðar kornfram- leiðslu og garðyrkju þá þurfum við að skipta út jarðefnaeldsneyti fyrir sólarorku, vetni, vindorku eða sjálf- bæra framleiðslu lífræns eldsneytis.“ Fyrsta kynslóðin sem vanvirðir mat Sóun á matvælum er gríðarleg í heiminum, segir Cribb, og ljóst er að hann á ekki til nógu stór orð til að lýsa hneykslun sinni á þeirri stað- reynd. „Í dag fer helmingurinn af vinnu bænda í ruslið. Það er til háborinnar skammar. Á sama tíma og milljarður manns lifir við sult og barn deyr af völdum hungurs á 15 sekúndna fresti, þá sóum við mat sem myndi nægja til að fæða þrjá milljarða. Við erum fyrsta kynslóðin í allri mann- kynssögunni sem vanvirðir matinn okkar á þennan hátt. Við getum breytt þessari hræði- legu stöðu með því að endurvinna allan lífrænan úrgang í borgum og veita honum aftur í landbúnað og matvælaframleiðslu. Við þurfum að endurvinna skólp og nýta til áburðar og jarðvegsbóta, nýta næringarefni miklum mun betur í landbúnaði og utan hans og þróa örverur í jarðvegi til að opna á nýtingu á óaðgengi- legum næringarefnum í jarðvegi. Hollendingar og Bretar hafa nú hafið vinnu eftir áætlunum um endur- vinnslu á lífrænum úrgangi í þéttbýli, það er einföld vinna. Við þurfum að gera frekari rannsóknir á endur- vinnslu á úrgangi frá manneskjum, til að forðast mengun af völdum þungmálma, en það er alveg gerlegt. Ég ætti að bæta því við að áburður hefur tilhneigingu til að hækka hraðar í verði en olía. Nú þegar við nálgumst toppinn í vinnslu á fosfór og fosfati aukast líkurnar á að við sjáum geysi- legar hækkanir á tilbúnum áburði. Hvert það land, sem þarf að treysta á innflutning næringarefna, verður því mjög viðkvæmt. Hins vegar munu lönd sem endurvinna næringarefni verða mun öruggari.“ Lífsnauðsynlegt að bæta kjör bænda Cribb segir að lokum rétt að taka fram að það sé lífsnauðsynlegt að bæta kjör bænda. „Aðeins með því getum við aukið sjálfbærni og hagkvæmni í landbún- aði, að öðrum kosti hafa bændur ekki tök á að fjárfesta í slíkri uppbygg- ingu. Ef slíkt tekst má vinna bug á mörgum vandamálum, svo sem í vatnsbúskap og jarðnotkun, eins og ég hef nefnt í svörum mínum hér að ofan.“ /fr Julian Cribb. Fæðuöryggi jarðarbúa Hlutverk íslensks landbúnaðar Við setningu Búnaðarþings 2011 í mars sl. var frumsýnt stutt mynd- band um matvælaframleiðslu í heiminum og þróun hennar. Myndin var jafnframt sýnd í sjón- varpi og er víða að finna á Netinu. Ágúst Sigurðsson, rektor LbhÍ, og hagfræðingarnir Daði Már Kristófersson og Erna Bjarnadóttir fjölluðu þar öll um misjöfn áhrif fólksfjölgunar, skort á ræktunarlandi og breytt loftslags- og ræktunarskilyrði á matvælafram- leiðslu. Í máli rektors LbhÍ kom fram að eitt af hlutverkum Íslands í þessari þróun væri að miðla þekkingu, t.d. um viðbrögð við jarðvegseyðingu. Fjórir bændur komu fram í mynd- bandinu og lýstu sinni sýn á þróun mála, þau Arnheiður Hjörleifsdóttir á Bjarteyjarsandi, Stefán Geirsson í Gerðum, Georg Ottósson hjá Flúðasveppum og Sif Jónsdóttir á Laxamýri. Myndbandið er aðgengi- legt á vefnum Youtube.com og ber heitið „Matvælaframleiðsla á kross- götum“.

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.