Bændablaðið - 13.10.2011, Page 23
Bændablaðið | fimmtudagur 13. október 2011 23
Vantar þig
frystirými ?
Seljum einnig gáma hús, geymslu gáma og sal ernis hús í
ýms um stærðum og gerð um. Útvegum sérlausnir, sniðnar
að þörf um viðskiptavina okkar. Hafðu samband!
Fæðuöryggisumræða og stöðugt
hækkandi matvælaverð virðist
vera að komast á nýtt stig úti í
hinum stóra heimi. Í Bretlandi
hefur vísindafólk í helstu grein-
um tengdum matvælum tekið
saman höndum og gefið út það
sem kallað er fæðuöryggisáætlun
eða „Global Food Security –
Strategic Plan 2011-2016“.
Í skýrslu um þetta verkefni segir:
Markmið verkefnisins er m.a. að
mæta áskorunum um að brauðfæða
vaxandi fólksfjölda á jörðinni, með
því að tryggja framboð, sjálfbærni,
næringu og gæðamatvæli á ásætt-
anlegu verði. Þessi matvæli mun
þurfa að framleiða á stöðugt minna
ræktarlandi, með lægri tilkostnaði
og í takti við veðurfarsbreytingar
í heiminum. Er áætluninni m.a.
ætlað að safna saman gögnum sem
geta nýst yfirvöldum til að bregðast
við þeim áskorunum sem blasa við
í Bretlandi og í alþjóðlegu sam-
hengi, einnig með tilliti til þeirra
áskorana sem fæðuöryggismálin
hafa í svokölluðum þróunarríkjum.
Tekið er tillit til fjölmargra þátta
eins og samspils efnahags og hung-
urs, grunnþátta eins og vatns- og
orkuöflunar, sjálfbærrar matvæla-
framleiðslu, sjálfbærrar framleiðslu
heilsufæðis og rannsókna í víðu
samhengi.
Teikn um versnandi ástand
Lester Brown hjá Earth Policy
Institute telur að hækkandi mat-
vælaverð í heiminum sé komið til
að vera. Öll teikn sýni að ástandið
eigi bara eftir að versna vegna
loftslagsbreytinga, fólksfjölgunar,
skorts á neysluvatni og spillingar
jarðvegs. Þetta álit kemur fram í
grein undir nafninu „The Great
Food Crisis of 2011“ sem birtist
í Foreign Policy Magazine fyrr á
þessu ári. Bendir Brown á að mat-
vælaverðstoppar í gegnum tíðina
hafi einkum stafað af áhrifum
veðurs á uppskeru. Það hafi bæði
haft áhrif á framboð og eftirspurn,
sem leiddi til verðhækkana. Nú
séu fólksfjölgun, bættur efnahagur
ýmissa hópa sem og aukin notkun
korns til eldsneytisgerðar farin að
hafa mikil áhrif til viðbótar. Á árinu
2009 hafi t.d. 119 milljónir tonna af
416 milljóna tonna kornframleiðslu
verið notað til að framleiða líf-
efnaeldsneyti. Þessar 119 milljónir
tonna myndu duga til að fæða 350
milljónir manna í heilt ár.
Á framleiðsluhliðinni sé svo
annar neikvæður þáttur, sem sé
sá að ræktarland sé að tapast.
Veðurtengdir þættir muni því hafa
mun meiri áhrif en áður.
Neysluvatnsþurrð í Sádí-Arabíu
Brown nefnir ýmis dæmi til stað-
festingar orða sinna. Sádí-Arabía
hafi um langt árabil getað reitt sig
á uppdælingu vatns úr jarðlögum
sem dugði til innanlandsneyslu. Nú
séu þessar neðanjarðarvatnslindir
að verða uppurnar. Þess vegna hafi
hveitiuppskera landsins, sem reiðir
sig á vökvun, skroppið saman um
tvo þriðju á árunum 2007 til 2010.
Reiknað sé með að hveitifram-
leiðsla verði algjörlega aflögð í
landinu árið 2012. Telur Brown
engan vafa á að þessi vatnsskortur
Sádí-Araba sé ástæða þess að for-
svarsmenn þjóðarinnar hafi verið
að reyna að fá leigt land í Afríku.
Stóraukin eftirspurn
Bendir Brown á að íbúum jarðar-
innar fjölgi um 80 milljónir á ári
og stöðugt fleira fólk, eða um 3
milljarðar, þokist upp velmegunar-
keðjuna og ört bætist í millistéttir
heimsins, sem séu frekari til fæð-
unnar. Allt leiði þetta til áframhald-
andi hækkunar matvælaverðs.
Matvælaóeirðir í Bandaríkjunum
Í allsnægtaríkinu Bandaríkjunum
var í ársbyrjun talað um nýjar mat-
vælaóeirðir í líkingu við það sem
gerðist þegar hrísgrjóna- og hveiti-
verð rauk upp úr öllu valdi árið
2008. Þær hækkanir komu í kjölfar
stórhækkunar á eldsneytsiverði.
Bent var á að hækkun hitastigs
á jörðinni og fólksfjölgun hefðu
umtalsverð áhrif á líf jarðarbúa.
Einnig var bent á að flóð í Ástralíu
væru farin að hafa áhrif á kjöt-
framboð í Bandaríkjunum. Flóðin
höfðu áhrif til hækkunar kjötverðs
á heimsmarkaði, sem íslenskir
útflytjendur kindakjöts hafa notið
góðs af. Flóðin leiddu líka til mik-
illar hækkunar á ullarverði á heims-
markaði, sem hefur reyndar einnig
komið íslenskum landbúnaði til
góða. /HKr.
Bretar með áhyggjur af fæðuöryggi:
Hafa sett á fót fæðuöryggisáætlun til 2016
Álfagallerýið í sveitinni
Teigi, Eyjafjrðarsveit
Við bjóðum fjölbreytt úrval af íslensku
handverki, hönnun og listmunum.
Opið frá 14-18 um helgar og eftir samkomulagi.
Við bjóðum alla hjartanlega velkomna.
Vinsamlega látið vita ef hópar eru á ferð.
S. 894-1323 Gerða eða 820-3492 Svana
!
!"#$$$%&%
""#$%& "#$%&
' (! !
)
*
!!(
+ ,'
))
-
.
! .!* .
-
/ '+!0
+1
!
! .!
( !!
.!
,'!
)
2 .
-
+2 --+'
2
. *
'
3' (! !
-!
*
4'
/!
'
/!
* +5
'4' 6!!
( !
!!
7
-
+00
!2'
'
!-!
-
)!.!
8
(
9-
5
4'!
5
!
2 +
))
:7
/4'
4
' (! !
-
,
!
!!(
5
/
5
;
!!
"''' ()*+, -' . ./ ,
/
, 0''' (1,-''' 23""#00! 4 3$%''#$&'' 23"&#-%! 4 3$&''#$5''
23%'#&'! 4 3"0''#"-'' 23-6#$%&! 4 3$6''#0%''
Bændablaðið
Smáauglýsingar. 5630300