Bændablaðið - 13.10.2011, Side 35
35Bændablaðið | fimmtudagur 13. október 2011
Klara Bjarnadóttir er 14 ára
gömul, æfir handbolta og blak
með Aftureldingu í Mosfellsbæ og
spilar á baritón í Skólahljómsveit
Mosfellsbæjar. Hún hefur nóg
fyrir stafni og mun ferðast tölu-
vert innanlands í vetur til að sinna
áhugamálunum.
Nafn: Klara Bjarnadóttir.
Aldur: 14 ára.
Stjörnumerki: Vatnsberi.
Búseta: Hraðastaðir 6, 271
Mosfellsbær.
Skóli: Varmárskóli.
Hvað finnst þér skemmtilegast í
skólanum? Skemmtilegasta fagið
er stærðfræði en annars bara að hitta
krakkana.
Hvert er uppáhalds dýrið þitt? Ég
á ekki beint uppáhaldsdýr en hundar,
hestar og kindur standa upp úr í augna-
blikinu.
Uppáhaldsmatur: Ég get ekki sagt
að ég eigi mér uppáhaldsmat en svið,
saltfiskstrimlar í súrsætri sósu og
lambaprime eru mjög góður matur.
Uppáhaldshljómsveit: Engin sérstök,
en ég hlusta á dubstep tónlist.
Uppáhaldskvikmynd: Ég á enga
uppáhaldskvikmynd en The Hangover
Part I og II eru skemmtilegar.
Fyrsta minningin þín? Þegar ég
var fjögurra ára gömul þá ætluðum
við, ég og Melkorka vinkona mín að
gista heima hjá henni, en þetta var
fyrsta skiptið sem við gistum, held
ég. Við búum hlið við hlið og það
er girðing á milli húsanna okkar og
við bjuggum til svona styttri leið í
gegnum garðana og yfir girðinguna.
Mamma hennar kom heim til mín
og sótti okkur og ég man að ég var
í Pocahontasnáttkjólnum mínum og
með fjólubláu Stubbasængina mína.
Hún sótti okkur og þegar við vorum
að fara yfir girðinguna varð ég eitt-
hvað hrædd eða ég fékk heimþrá eða
eitthvað, allavegana fór ég að gráta og
mamma hennar þurfti að labba með
mig aftur heim.
Æfir þú íþróttir, eða spilarðu á
hljóðfæri? Já, ég æfi handbolta og
blak með Aftureldingu og spila á bari-
tón í Skólahljómsveit Mosfellsbæjar.
Hvað er það skemmtilegasta sem þú
gerir í tölvu? Ég er ekki viss en alltaf
þegar ég er í tölvunni hef ég Facebook,
skype og msn opið þannig að það er
svona skemmtilegast.
Hvað ætlar þú að verða þegar þú
verður stór? Mig langar að verða
arkitekt eða tannréttingasérfræðingur.
Hvað er það klikkaðasta sem þú
hefur gert? Ég er ekki viss hvað er
það klikkaðasta sem ég hef gert en ég
hef gert alveg nokkuð marga klikkaða
hluti.
Hvað er það leiðinlegasta sem þú
hefur gert? Það leiðinlegasta sem
ég hef gert er mögulega skólasund.
Annars finnst mér ekkert vera leiðin-
legt, ég geri ekki eitthvað sem ég held
að sé leiðinlegt en því miður þarf ég
að fara í skólasund.
Ætlar þú að gera eitthvað sérstakt í
vetur? Ég er að fara á landsmót SÍSL
(Samband íslenskra skólalúðrasveita)
á Selfossi og ég er líka að fara að
keppa í blaki í Neskaupstað svo fátt
eitt sé nefnt. /ehg
„Hef gert nokkuð marga klikkaða hluti“
Uppáhaldsmatur Klöru eru
svið, salt skstrimlar í súrsætri
sósu og lambaprime.
FÓLKIÐ SEM ERFIR LANDIÐ
Margnota flík við ýmis tækifæri
PRJÓNAHORNIÐ
Borðstofusettin er hægt að skoða hér: www.listinn.is/husgogn.htm
og í Listanum, Akralind 7, virka daga frá kl. 10-17.
Þvermál 150 cm
Kirsuberjaviður
Snúningsplata sem er
auðvelt er að fjarlægja
8 stólar
Ný og glæsileg
hringborðstofusett
Aðeins 275.000 kr.
Stóðhestauppeldi
Tökum að okkur stóðhesta í uppeldi.
Veturgamla og eldri.
Erum staðsett í Hvalfjarðarsveit.
Prjónablaðið Björk 6
Verð 1.980
Nú líður að jólum og ekki seinna vænna en
að fara að huga að jólagjöfum. Þessi flík
hentar fyrir allar stærðir og aðeins þarf að
velja lit sem passar fyrir þann sem á að fá
gjöfina. Þetta er uppskrift af flík sem getur
verið ermar, vesti, toppur, snúið sjal og
trefill. Svo getið þið látið ímyndunaraflið
reika og fundið enn fleiri not fyrir flíkina.
Hönnuður: Droplaug Guttormsdóttir.
Ermar: Þá eru 4 tölur hnepptar saman á
hvorri langhlið.
Vesti: Þá eru 4 tölur hnepptar saman á
sömu langhlið að framan og hin langhliðin
hneppt saman að aftan.
Toppur: Þá er hneppingin eins og á vestinu
nema þá er flíkin tekin upp af öxlunum og
sett utan um hálsinn.
Snúið sjal (möbíus): Þá eru endarnir
hnepptir saman eftir að snúið hefur verið
upp á stykkið.
Strokkur: Þá eru endarnir hnepptir saman
og vafið tvöfalt um hálsinn.
Trefill: Allir hnappar óhnepptir.
Stærð:
Stykkið mælist ca 40 cm x 125 cm liggj-
andi á borði en passar fyrir faðmlengd 150
cm vegna teygjanleika. Prjónið styttra
eða lengra eftir faðmlengd þess sem mun
klæðast flíkinni.
Efni:
Tyra, litur AN8091, um 3 dokkur og 10 tölur,
um 18 mm í þvermál. Prjónar nr 7. Nál og
tvinni.
Aðferð:
Garðaprjón, prjónið slétt fram og til baka.
Fitjið upp 44 lykkjur. Prjónið garðaprjón
3 umferðir. Næstu umferðir eru prjónaðar
þannig: takið fyrstu lykkjuna óprjónaða,
prjónið 1 L sl, *prjónið 2 L sl saman, sláið
upp á prjóninn *, endurtakið frá * - * þangað
til 2 L eru eftir á prjóninum, prjónið þær
sléttar. Þetta er endurtekið þar til stykkið
hefur náð óskaðri lengd. Prjónið þá 3 umf.
garðaprjón og fellið síðan laust af.
Gangið frá endum og festið tölur á eftirfar-
andi staði alveg í kantinn með jöfnu millibili.
Tyra er til í 17 litum og fæst m.a. í Fjarðarkaup,
A4, Litum og föndri, Handavinnuhúsinu
Borgarnesi, Versluninni Hlín Hvammstanga,
Kompunni Sauðárkróki, Aþenu Grindavík,
Birki Ísafirði, Ævintýrakistunni Akranesi,
Versluninni Framtíð Vestmannaeyjum,
Laufskálanum Neskaupstað, Esar Húsavík,
Vaski Egilsstöðum, Sjávarborg Stykkishólmi,
Gallerí Prjónlesi Hvolsvelli, Vogue
Selfossi, Hannyrðabúðinni Hveragerði og
Prjónabúðinni Björk, Bjarkarhóli í Reykholti
og á www.garn.is.
Hetta. Aftaná vesti.
Toppur.
Tölur:
40 cm
15 cm
15 cm
40 cm
Vesti.
Ermar.
Möbíus.
Björk 6 komið út
Fjöldi nýrra og fjölbreyttra
prjónauppskrifta fyrir alla fjölskylduna.
Fæst í öllum helstu hannyrða- og
bókaverslunum landsins.
Bjarkarhóll ehf. Sími 587-6662.