Bændablaðið - 12.07.2012, Blaðsíða 22
22 Bændablaðið | Fimmtudagur 12. júlí 2012
Fróðleiksbásinn
Vilmundur Hansen garðyrkjufræðingur
Grænt upp
Grasið í garðinum er líklega sú
planta sem fær hvað minnsta
athygli. Margir standa í þeirri trú
að gras vaxi af sjálfu sér og þurfi
litla sem enga umhirðu en svo er
ekki. Til að fá fallega grasflöt þarf
að sinna henni af alúð. Flestar
grastegundir eru ljóselskar
og þrífast illa í skugga. Helstu
kostir grassins er að það þolir
nokkurt traðk, er mjúkt undir
fæti og endurnýjar sig sjálft. Gras
hefur góða lykt og fallegan lit en
grasgræna næst illa úr fötum.
Hér á landi eru aðallega tvær
grastegundir notaðar í grasflatir,
vallarsveifgras (Poa pratensis) og
túnvingull (Festuca rubra). Þriðja
tegundin, vallarrýgresi (Lolium
perenne), eða enskt rýgresi eins
og það er stundum kallað, fylgir
stundum með við sáningu. Í fræ-
blöndum er þessum tegundum yfir-
leitt blandað saman í hlutföllunum
50% vallarsveifgras, 40% túnving-
ull og 10% vallarrýgresi.
Eigi flötin að þola ágang þarf
hlutfall vallarsveifgrass að vera
hærra, en fyrir skuggsæla staði á
að vera meira af túnvingli. Þeir
sem eru latir við að kantskera ættu
að nota meira af túnvingli þar sem
hann skríður minna. Vallarrýgresi
er notað í garðflatir með öðrum
grastegundum. Það er fljótt til og
þekur vel og því gott til að ná þekju
á fyrsta sumri. Hlutfall þess má þó
ekki vera mikið, það er viðkvæmt
og deyr yfirleitt á fyrsta eða öðrum
vetri og skilur eftir sár hafi verið
notað of mikið af því.
Undirbúningur
Til að fá góða grasflöt þarf að
gæta vel að öllum undirbúningi.
Hreinsa þarf lóðina vel, fjarlægja
rætur, steina, torfhnausa og hreinsa
allt rusl. Ef vantar mold verður að
útvega hana og blanda með fremur
fínkorna sandi. Síðan þarf að gróf-
jafna svæðið og hafa vatnshalla frá
húsi. Ef garðurinn er blautur þarf að
setja í hann drenlögn.
Þegar búið er að grófjafna skal
tæta 20 til 30 sentímetra niður í
jarðveginn og hreinsa lóðina aftur.
Því næst skal bæta við 2 til 3 rúm-
metrum af ósöltum sandi, gjarna
blönduðum skeljasandi, á hverja
100 fermetra, og lífrænum áburði
eða þörungamjöli í jarðveginn og
tæta enn einu sinni. Ef blanda á til-
búnum áburði í moldina á að nota
6 til 8 kíló á hverja 100 fermetra.
Að lokum skal jafna lóðina í rétta
hæð og þjappa hana lítillega með
valtara. Áður en sáð er eða þökur
lagðar er gott að fara lauslega yfir
flötina með grófri hrífu til að losa
um efsta lagið og bæta viðloðun
fræsins/þakanna við jarðveginn.
Sáning
Hægt er sá bæði vor og haust en
ráðlegast er að gera það að vori.
Haustsáningu á að framkvæma mán-
uði fyrir fyrsta frost. Jarðvegurinn
þarf að vera hæfilega rakur þegar
sáð er og nota skal eitt kíló af fræi
á hverja 100 fermetra. Fyrsta árið
eftir sáningu verður að gæta þess að
umgangur um lóðina sé í lágmarki
en það tekur þrjú ár fyrir sáninguna
að ná fullum þroska.
Sé sáð að vori er nauðsynlegt að
vökva lóðina reglulega í þurrviðrum.
Varast ber að slá grasið of snöggt til
að byrja með. Gott er að halda því í
8 til 10 sentímetra hæð. Þegar flötin
hefur náð sér að fullu má slá hana
í 4 til 5 sentímetra hæð. Sé slegið
sneggra skal vökva á eftir.
A u k h e f ð b u n d i n n a r
skrúðgarðablöndu af fræi
eru á markaði svokallaðar
golfvallablöndur. Golfvallablandan
hentar ekki fyrir heimilisgarða og
vinnan við viðhald grasflatarinnar
er mjög mikil.
Þökur
Þeir sem vilja gras strax og helst
í gær ættu frekar að þekja en sá.
Undirbúningur fyrir þökur er sá
sami og fyrir sáningu. Leggja má
þökur frá því snemma að vori og
fram á haust. Gott er að leggja eina
beina röð af þökum umhverfis
flötina sem á að tyrfa. Eftir það eru
þökurnar lagðar eins og múrsteinar,
hálf í hálft, og götum lokað með
bútum í lokin. Gætið þess að þjappa
þökunum ekki of þétt saman því
þá myndast holrúm undir þeim og
fletir sem ekki ná að skjóta rótum.
Ef skera þarf boga í flötina er gott
að leggja slöngu, helst með vatni í,
til að móta bogann og nota slönguna
sem skapalón til að skera eftir. Að
þökulögn lokinni þarf að valta
flötina og vökva.
Þegar þökur eru keyptar verður að
skoða þær vandlega við afhendingu
og gæta þess að ekki leynist í þeim
illgresi, eins og snarrótarpuntur,
skriðsóley, mosi eða gróf fóðurgrös.
Viðhald
Um það leyti sem grasið tekur
við sér á vorin er gott að raka yfir
flötina með laufhrífu og fjarlægja
mosa, lauf og annað rusl sem hindrar
loftstreymi í sverðinum. Bera skal
alhliða garðáburð á snemma að vori,
3 til 4 kíló af tilbúnum áburði duga
á 100 fermetra. Mánuði síðar skal
bera á sama magn og í kringum
verslunarmannahelgina helmingi
minni skammt. Einnig er gott að bæta
kalki eða ósöltum skeljasandi í lóðina
á nokkurra ára fresti til að hækka
sýrustigið og halda niðri mosa.
Reglulegur sláttur er hluti af
viðhaldi en ekki má slá of snöggt því
blaðmassinn verður að vera nógur
til að sjá rótunum fyrir næringu.
Best er að slá oft og reglulega og
það verður að raka slægjuna burt því
annars rotnar hún í sverðinum og
heftir vöxt. Sé nauðsynlegt að vökva
flötina skal vökva lítið í einu snemma
á morgnana eða seinni hluta dags, en
ekki í sterku sólskini. Ef grasið er
orðið mjög þétt er hætta á að ræturnar
fái ekki nóg súrefni og að flötin verði
kyrkingsleg. Við þannig aðstæður er
nauðsynlegt að gata svörðinn með
gaffli með reglulegu millibili og raka
ósöltum sandi ofan í holurnar.
Garðyrkja & ræktun
Mosinn í
grasflötinni
Mosi er fallegur þar sem hann
vex á trjástofnum, grjóti og göml-
um steinveggjum. Margir garð-
eigendur líta aftur á mosann sem
vandamál ef mikið er af honum
í grasflötinni. Mosi vex þar sem
saman fer súr jarðvegur, raki og
skuggi og hann heldur áfram að
vaxa niður í 4°C.
Því miður er ekkert töfraráð
til gegn mosa. Sé skuggi af háum
trjám verður að grisja til að
hleypa sólarljósi niður í flötina.
Þar sem raki er mikill í jarðvegi
verður að ræsa flötina eða hækka
hana upp til að vinna á mosanum.
Einnig er gott að raka mosann úr
flötinni með hrífu og jafnvel gata
flötina og setja sand í holurnar.
Gott er að dreifa ríkulega af kalki
eða ósöltum skeljasandi yfir gras-
flötina á nokkurra ára fresti til að
hækka pH-gildið í jarðveginum.
Fífilhunang
500 fífilblóm án stönguls
2 sítrónur
1,5 lítri vatn
3 kíló sykur
Setjið fífilblómin í pott með
vatninu, þvoið sítrónurnar vel,
skerið í sneiðar og setjið í pott-
inn. Sjóðið í hálftíma og síið vel.
Setjið löginn aftur í pott og bætið
út í hann þremur kílóum af sykri.
Látið malla í þrjá tíma og hrærið
í öðru hverju.
Vallarsveifgras (Poa pratensis)Vallarrýgresi (Lolium perenne) Túnvingull (Festuca rubra)