Bændablaðið - 12.07.2012, Síða 1

Bændablaðið - 12.07.2012, Síða 1
13. tölublað 2012 l Fimmtudagur 12. júlí l Blað nr. 374 l 18. árg. l Upplag 24.000 Skráð vinnuslys meðal bænda eru mun færri en hjá öðrum stéttum. Að jafnaði eru skráð hjá Vinnueftirliti 5-10 slys í landbúnaði árlega en ætla má að þau séu á bilinu 30 til 35. Kristinn Tómasson, yfirlæknir hjá Vinnueftirlitinu, segir líklegast að einungis alvarlegustu slysin séu tilkynnt. Það veki spurningar um hvort bændur tilkynni yfirleitt ekki um þau slys sem þeir verða fyrir og leiti þá heldur ekki eftir þeim rétti sem þeim stendur til boða en með því að sýna slíkt andvaraleysi fari þeir á mis við þau réttindi sem samfélagið býður þeim líkt og öðrum þegnum landsins. Algengustu vinnuslysin í landbúnaði eru meðal bænda sem stunda blandaðan búskap. Slys við umhirðu búpenings eru tíðust en einnig er mikið um slys sem verða við notkun fjölbreytts tækjabúnaðar. Kristinn segir það sína skoðun að Búnaðarþing ætti að taka málið upp og fjalla af meiri krafti um vinnuverndarmál bænda. Sjá nánar á bls. 6 Vantalin vinnuslys Málningarstörf til sveita 18-1917 Er bruggun ólöglegur heimilisiðnaður? 16 Blómlegt æðarvarp á hlaðinu í Norðurkoti „Bændur í sókn á mörgum sviðum“ Niðurstöður úr skýrsluhaldi búrekstrar fyrir síðasta ár sýna að stærstu gjaldaliðir bænda, áburður, kjarnfóður og rekstrar- kostnaður búvéla, hafa aukist langt umfram verðlag á tímabilinu 2006‒2011. Áburðarverð hefur ríf- lega þrefaldast, kjarnfóðurverð tvöfaldast og verð á olíu hækkað um 144% á sama tímabili. Vísitala neysluverðs hefur á sama tíma hækkað um tæplega 45%. Innleggsverð mjólkur hefur hækkað um tæp 60% á tímabilinu, nautakjöt um 35% og innleggsverð fyrir dilkakjöt hefur hækkað um 43% og nær ekki að fylgja almennu verðlagi. Hækkun aðfanga umfram verðlag hefur því komið verulega niður á afkomu í búrekstri. „Þessi mikla kostnaðarhækkun hefur legið fyrir lengi og við höfum verulegar áhyggjur af þróun olíu- og áburðarverðs. Það er engan veginn mögulegt að velta þessu út í verðlagið og það sýnir sig að land- búnaðurinn hefur tekið á sig miklar byrðar í aðdraganda bankahrunsins og eftir það. Bændur hafa brugðist við í búskapnum með minni notkun á kjarnfóðri og áburði en rekstur bænda er þungur og það er full ástæða til að hafa áhyggjur af því,“ segir Haraldur Benediktsson, for- maður Bændasamtakanna. Framleiðsluvilji bænda ekki ótakmarkaður Tekjur af mjólkurframleiðslu hafa lækkað frá árinu 2006 á föstu verðlagi um 7% en vægi innleggsverðs mjólkur hefur aukist á tíma- bilinu á kostn- að opinberra greiðslna og eru beingreiðslur ársins 2011 um 34% af tekjum vegna mjólkurfram- leiðslu. Tekjur sauðfjárframleiðslu eru 2% lægri árið 2011 miðað við fyrir fimm árum á föstu verðlagi, þrátt fyrir leiðréttingu síðasta árs. Auk þess hafa aðrar búgreinatekjur lækkað um 55% á tímabilinu og tekjur af annarri starfsemi um 35%. Heildartekjur búanna hafa því lækk- að um 10% á föstu verðlagi. „Almennt er sala á íslenskri búvöru mjög góð en framleiðsluvilji bænda er ekki ótakmarkaður við þær aðstæður sem við lifum við í dag. Það hefur sýnt sig að bændur eru í sókn á mörgum sviðum, eins og í orkuframleiðslu og kornrækt svo eitthvað sé nefnt,“ útskýrir Haraldur og segir jafnframt: „Það er fullur vilji meðal þjóðar- innar til þess að halda landbúnaði þróttmiklum og sterkum en til þess þarf almennan bata í efnahagslífinu. Átakahugur er í bændum og séu ákveðnar forsendur, sem meðal ann- ars snúa að stjórnvöldum, til staðar geta opnast góð tækifæri.“ /ehg Feðgarnir Hörður Daði Björgvinsson og Björgvin Harðarson standa hér í gróskumiklum repjuakri á bænum Sandhóli í Meðallandi. Þar eru umfangsmiklar framkvæmdir í gangi þessa dagana því verið er að byggja rúmlega 300 fermetra kornþurrkstöð og endurrækta tugi hektara af landi. Nánar á bls. 20-21. Mynd: Tjörvi Bjarnason Haraldur Benediktsson Landssamband skógareigenda vill nánari útskýringu stjórnvalda á loftslagslögum Ekkert annað en eignaupptaka ætli ríkið að hrifsa kolefnisbindinguna til sín „Við teljum okkur eiga alla kolefn- isbindingu sem til verður í okkar skógum, ætli ríkið að slá eign sinni á hana er það ekki annað en eignaupptaka,“ segir Edda Björnsdóttir, formaður Félags skógareigenda. Ný lög um lofts- lagsmál voru samþykkt á síðustu dögum Alþingis fyrir sumarlokun og hafa þau verið mikið í umræðu síðustu daga, m.a. voru þau til umfjöllunar á stjórnarfundi Landssamtaka skógareigenda á þriðjudag. Edda segir að einkum hafi verið rætt um um ákvæði 36. greinar nýju laganna sem fjalla um með- ferð losunarheimilda sem tengjast bindingu kolefnis. Þar segir að þær losunarheimildir sem verða til við bindingu kolefnis í gróðri og jarðvegi eða vegna endurheimtar votlendis í samræmi við alþjóðlegar skuldbindingar Íslands á því sviði, skulu bókfærðar á reikning íslenska ríkisins í skráningarkerfi skv. 22. gr. Edda segir að þrátt fyrir þetta ákvæði í loftslagslögunum, um að binding kolefnis skuli bókfærð á reikning íslenska ríkisins haldi skógareigendur fast við fyrri sam- þykktir um að kolefnisbinding í skógi sé eign skógareigenda, „enda er timbrið sem til verður í skóginum að mestu byggt upp af kolefni og það er afskaplega erfitt að skilja það frá sem eign annarra en þeirra sem eiga skógana,“ segir Edda. Kolefni hluti af verðmæti skóganna Hún segir margt óljóst í lögunum og skógarbændur hafi óskað eftir fundi með ráðamönnum til að frá gleggri skilgreiningu á einstökum greinum nýsettu laganna. „Við vitum ekki hvað þarna er á ferðinni, sjáum ekki hvernig á að útfæra ýmis atriði, en til að mynda er í lögum um lands- hlutabundnu skógræktarverkefnin skýrt kveðið á um að skógurinn sé eign þeirra bænda sem honum planta. Við teljum því alveg ljóst að það kolefni sem skógurinn bindur sé hluti af þeim verðmætum sem skógurinn gefur,“ segir Edda. Edda segir að skógarbændur hafi fylgst með öllu ferlinu varðandi setningu nýju loftslagslaganna og sent inn umsagnir en svo virðist sem sjónarmið þeirra hafi verið virt að vettugi. „Ef til vill hafa ekki allir sama skilning á málinu og við teljum að stjórnvöld skuldi okkur skýringu,“ segir Edda og bætir við að skógarbændur eigi t.d. það timbur sem til fellur í skógrækt og því væri undarlegt að undanskilja önnur verð- mæti sem skógurinn skapar. „Að sjálfsögðu teljum við okkur líka eiga það kolefni sem skógurinn bindur. Ætli ríkið að hrifsa þau verðmæti til sín er það eignaupptaka, ekkert annað.“ /MÞÞ Sjá nánari umfjöllun um bindingu kolefnis á bls. 14. Edda Björnsdóttir

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.